Morgunblaðið - 11.08.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2012
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
Íslensk hönnun
og handverk
Salattöng 13.900.-
Skál
frá 34.700.-
Úrval morgungjafa
úr 14 karata gulli með
hvítagullshúðaðri rönd
149.900.- parið
Ostahnífur
Smjörhnífur
7.900.-
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!
Handsmíðaðir hringar
7.900.-
Borðbúnaður
úr eðalstáli, skreyttur
íslenskum steinum
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það verður sífellt betur ljóst, þegar
hinar vikulegu veiðitölur berast úr
laxveiðiánum, hvað niðursveiflan er
djúp í sumar. Eftir nokkur afar góð
laxveiðiár eru seiðin sem gengu út í
fyrra ekki að skila sér í árnar í þeim
mæli sem vonast hafði verið til. Enda
geta færri laxveiðimenn sem talað er
við sagt sögur af veiddum löxum en
þeir sem telja þá daga sem þeir „núll-
uðu“. Undirritaður hefur ekki farið
varhluta af fisklausum dögum, þótt
þeir séu fljótir að gleymast loksins
þegar maður hefur hendur á laxi. En
engu að síður tala veiðimenn víðast
hvar um hvað lítið af fiski sé í ánum;
miklu minna en síðustu ár. Það segir
sína sögu að skoða veiðina í síðustu
viku í kunnum laxveiðiám. Í Þverá og
Kjarrá veiddust 39 laxar á 14 stangir,
í Grímsá 20 á átta stangir, tveir í
Hrútafjarðará á þrjár stangir, 17 í
Laxá í Leirársveit á sjö stangir, 25
laxar í Vatnsdalsá á sjö stangir, 16 á
14 stangir í Norðurá, og aðeins fimm
í Laxá í Dölum á sex stangir.
Selá heldur dampi
Ein af fáum ám sem halda dampi
miðað við síðustu ár er Selá í Vopna-
firði. Hún stendur hæst á listanum
yfir aflahæstu árnar sem byggja á
náttúrulegri hrygningu og er veiðin
þar nú komin yfir 1.000 laxa.
„Já, veiðin er býsna góð hér í
Selá,“ segir Orri Vigfússon. Hann
bætir við að augljóslega sé býsna
djúp lægð í þeim þáttum sem ákveða
hvað margir laxar ganga í árnar úr
hafi, lægðin sé eflaust líka til staðar í
Vopnafirði en hún sé bara ekki eins
djúp þar og víðast annars staðar.
„Mér sýnist vera fjörutíu til fimm-
tíu prósenta lægð í laxagöngum á
heildina litið, og ég geri ráð fyrir því
að lægðin á Suðvestur- og Norðvest-
urlandi sé alveg fimmtíu prósent,“
segir hann. „Veiðin hefur verið í upp-
sveiflu í fimm til tíu ár og það er ekk-
ert óeðlilegt að komi niðursveifla að
loknu slíku tímabili.“
Orri segir að vissulega sé sveiflan
djúp núna en ekki þurfi miklar breyt-
ingar í hafinu til að lífslíkur seiða
minnki, fæðuframboð geti breyst eða
hitastig. Margir velta fyrir sér hvort
hinar miklu makrílgöngur eigi þátt í
niðursveiflunni í laxagöngum en Orri
er ekki trúaður á það. „Veiðin á Atl-
antshafslaxinum er aðeins um 1.500
tonn í heild og það er bara brota-
brotabrot af makrílveiðinni og stofn-
unum, ég held því sé ekki um að
kenna, en auðvitað éta þó allir alla í
hafinu.“
Hvað varð um seiðin?
Ástandið í laxveiðinni virðist því
vera hvað best á norðausturhorninu;
í Hofsá er veiðin til að mynda einnig
á svipuðu róli og undanfarin ár.
Minna heyrist af ánum í Þistilfirði. Í
Hafralónsá er veiðin sögð róleg en er
hins vegar „flott“ í Svalbarðsá að
sögn Júlíusar Þórs Jónssonar hjá
leigutakanum Hreggnasa. Sam-
kvæmt hinum vikulegu tölum hafa
yfir 200 laxar veiðst þar á tvær
stangir síðan veiðin hófst í júlíbyrjun.
„Þarna fyrir austan virðast Selá og
Svalbarðsá standa undir væntingum,
og ef til vil fleiri ár, en hvað varð um
öll þessi seiði sem gengu út í fyrra?“
spyr hann og bætir við: „Eitthvað
stórkostlegt hefur gerst í hafinu, því
seiðabúskapurinn var talinn við-
unandi í ánum um allt land.“
Veiðimenn haldi ró sinni
Blaðamaður ræddi í vikunni við
hinn kunna þýska myndlistarmann
Bernd Koberling, sem hefur dvalið
hér á sumrin í yfir þrjá áratugi og
veitt hér fleiri hundruð laxa. Koberl-
ing hvetur menn til að halda ró sinni
þótt niðursveifla komi í laxveiðina.
Þeir sem eru nýbyrjaðir að veiða hafi
ekki lent í þessu áður, og bregði við,
en hann hefur upplifað nokkrar slík-
ar sveiflur í veiðinni hér og segir árn-
ar alltaf ná sér aftur á strik.
Niðursveiflan er sögð djúp
„Mér sýnist vera fjörutíu til fimmtíu prósenta lægð í laxagöngum á heildina litið,“ segir Orri Vigfús-
son Aðeins veiddust sextán laxar í Norðurá í vikunni, tveir í Hrútafjarðará og fimm í Laxá í Dölum
Morgunblaðið/Einar Falur
Verðmæt Þeir eru færri í ár, laxarnir, en þeim mun mikilvægari þegar þeir
veiðast. Björn Rúnarsson veiddi þessar stóru hrygnu í Vatnsdalsá.
Aflahæstu árnar Staðan 8. ágúst 2012
Heimild: www.angling.is
Veiðivatn Veiði
10. ágúst
2011
* 24. júlí 2012
Stangafj.
4. ágúst
2010
5. ágúst
2009
Ytri-Rangá og Hólsá 20 1.853 1.711 2.111 2.593
Eystri-Rangá 18 1.783 1.897 1.726 1.242
Selá í Vopnafirði 7 997 1.273 1.105 1.039
Haffjarðará 6 826 1.160 1.262 1.020
Miðfjarðará 10 821 1.208 1.606 1.445
Blanda 16 820 1.708 2.663 1.767
Norðurá 14 731 1.892 1.724 1.661
Elliðaárnar 6 700 944 897 620
Langá 12 600 997 998 1.045
Hofsá og Sunnudalsá 10 572 545 480 (7 stang.) 475 (7 stang.)
Þverá - Kjarrá 14 521 1.441 2.641 1.345
Haukadalsá 5 356 361 564 486
Hítará 6 320* Ekki fáanlegar Ekki fáanlegar Ekki fáanlegar
Laxá í Aðaldal 18 317 668 765 486
Brennan í Hvítá 2 302 406 Ekki fáanlegar Ekki fáanlegar
„Sjóbirtingsveiðin fer ágætlega
af stað hér í Vatnamótunum,“
segir Ragnar Johansen á Hörgs-
landi á Síðu. „Holl sem lauk
veiðum í gær var með sautján
fiska og þar af var einn 20
pundari. En sá var reyndar lax,
þriðjungur fiskanna var lax. Það
virðist vera talsvert af laxi nú
með birtingnum.“
Birtingurinn er einnig farinn
að stinga sér upp í Tungulæk við
Skaftá vestanverða. Eftir niður-
sveifluna í laxveiðinni í sumar
vonast allmargir veiðimenn eftir
skemmtilegum tímum á sjóbirt-
ingsslóð síðsumars og í haust.
20 pundari í
Vatnamótum
BIRTINGURINN MÆTTUR
Pæjumótið á Siglufirði hófst í gær
og því lýkur á morgun. Mótið er nú
haldið í 22. sinn. Það hefur um ára-
bil verið eitt stærsta kvennaknatt-
spyrnumót landsins. Um 700 stúlk-
ur á aldrinum 8-12 ára eru mættar
til Siglufjarðar ásamt fríðu föru-
neyti foreldra og annarra stuðn-
ingsmanna og skemmta sér saman.
Líkt og undanfarin ár fá allir þátt-
takendur afhentar gjafir frá TM
sem munu nýtast vel yfir mótið.
Einnig fá pæjurnar afhentan þátt-
tökupening til minningar um mótið
ásamt verðlaunum fyrir efstu sætin
í hverjum flokki. Líkt og fyrri ár
mun það lið sem þykir sýna mesta
háttvísi innan vallar sem utan vinna
til háttvísiverðlauna KSÍ. Í ár mun
TM veitir ný háttvísiverðlaun. Þau
verða veitt því stuðningsmannaliði
sem þykir sýna mesta háttvísi á
mótinu. Þannig vill TM hvetja til
þess að stuðningsmenn liðanna séu
stelpunum góð fyrirmynd.
700 stúlkur á pæju-
móti á Siglufirði
STUTT
Skákmót Ár-
bæjarsafns og
Taflfélags
Reykjavíkur fer
fram á morgun,
sunnudaginn 12.
ágúst. Teflt verð-
ur í Árbæjarsafni
og hefst taflið
klukkan 14:00.
Tefldar verða sjö
umferðir með
umhugsunartímanum 7 mín. á
skák.
Að venju verður lifandi tafl, sem
mun hefjast klukkustund fyrr, eða
klukkan 13:00. Lifandi taflið er fyr-
ir löngu orðið árviss viðburður í
dagatali skákmanna og Árbæjar-
safns. Áhugasömum er bent á að
hafa samband við Torfa Leósson
(torfi.leosson@gmail.com) til að
skrá sig til þátttöku í lifandi tafli.
Enn eru laus pláss í lifandi taflinu
og leika peð, riddara, biskup, hrók,
kóng eða drottningu. Þeir sem taka
þátt í lifandi taflinu mæti á
Árbæjarsafn þann 12. ágúst
kl.12.30 til að fara í búninga.
Þátttökugjöld í Stórmótinu eru
kr. 1100 fyrir 18 ára og eldri, en
ókeypis fyrir yngri en 18 ára og eru
þátttökugjöld jafnframt aðgangs-
eyrir í safnið.
Ekkert kostar að taka þátt í Stór-
mótinu fyrir þá sem taka þátt í
lifandi taflinu.
Skákmót og lifandi
tafl í Árbæjarsafni