Morgunblaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 3
Í EYJUM
Júlíus G. Ingason
sport@mbl.is
Segja má að Þór/KA sé komið með
níu fingur á Íslandsmeistaratitilinn
eftir að hafa náð stigi gegn ÍBV í Eyj-
um í gærkvöldi. Þetta stig gerir það
að verkum að Þór/KA getur tryggt
sér
Íslandsmeistaratitilinn með því að
vinna næsta leik sinn í deildinni, gegn
Selfossi á Akureyri eftir tæpa viku.
Það voru þó engir meistarataktar
hjá Akureyringum á Hásteinsvelli í
gærkvöldi því það voru heimastúlkur
sem voru mun sterkari í leiknum, sér-
staklega framan af og í raun ótrúlegt
að þeim hafi ekki tekist að skora fleiri
en eitt mark í fyrri hálfleik. Eyja-
stúlkur fóru afar illa með færin en
Shaneka Gordon fékk líklega besta
færi leiksins strax á 15. mínútu þegar
hún skaut framhjá ein gegn Chantel
Jones, markverði Þórs/KA sem átti
góðan leik. Kristínu Ernu Sig-
urlásdóttur urðu hins vegar ekki á
nein mistök á 35. mínútu þegar hún
lék á einn varnarmann Þórs/KA og
lagði boltann svo snyrtilega í hægra
hornið. Allt stefndi í að ÍBV yrði yfir í
hálfleik en í blálokin urðu heimastúlk-
um á skelfileg mistök í vörninni, sem
Katrín Ásbjörnsdóttir nýtti og jafnaði
metin.
Síðari hálfleikur var jafnari en
Eyjastúlkur virkuðu hættulegri í sín-
um sóknaraðgerðum. Á 78. mínútu
gerðist umdeilt atvik þegar Arna Sif
Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA,
felldi Vesna Smiljkovic, sem var að
sleppa í gegn. Leikmenn ÍBV heimt-
uðu rautt
spjald og virtust hafa fullan rétt á
því en Þórður Már Gylfason, dómari
leiksins, sýndi Örnu þó aðeins gula
spjaldið. Þá átti Shaneka Gordon skot
í innanverða stöngina og Katrín skall-
aði yfir úr ágætu færi hinum megin á
vellinum. En fleiri urðu mörkin ekki
og lokatölur 1-1.
Sleppti rauðu spjaldi
„Dómari leiksins, sem átti ekki góð-
an dag, sleppti klárlega rauðu spjaldi.
Það hefði verið betra ef hann hefði
ekki dæmt neitt, í staðinn fyrir að
gefa þarna gult,“ sagði Jón Ólafur
Daníelsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn
um atvikið þegar Smiljkovic var felld
þegar hún var að sleppa í gegn. Hann
bætti því við að einum fleiri hefði ÍBV
klárað leikinn. „Við sköpuðum okkur
urmul færa, skutum þrisvar í stöngina
og hræðilegt að fá ekki þrjú stig. En
ég held að þessi leikur og leikur þess-
ara liða á Akureyri hafi verið tveir
skemmtilegustu leikirnir í sumar.“
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálf-
ari Þórs/KA, var ekki á sama máli og
kollegi hans hjá ÍBV um atvikið um-
deilda. „Fyrst hann dæmir, þá þurfti
hann að spjalda Örnu. Hún náði bolt-
anum og tæklingin var nálægt því að
vera lögleg. Svo var bakvörðurinn
okkar kominn upp að þeim, þannig að
rautt spjald hefði verið mjög harður
dómur.“
Er stig gott veganesti fyrir ykkur
frá Eyjum? „Við viljum auðvitað alltaf
vinna en að tapa ekki hér í dag fyrir
ÍBV-liðinu í Eyjum er mjög gott.
Stigið gerir það að verkum að nú
þurfum við bara að vinna einn leik og
þá er titillinn okkar. Við vorum líka að
stimpla ÍBV út úr titilbaráttunni, nú
er það bara Stjarnan sem getur náð
okkur. En það eru tveir leikir eftir og
við stefnum á að vinna þá báða og láta
það duga að tapa einum leik í sumar í
deildinni. En umfram allt þurfum við
að vinna leik,“ sagði Jóhann að lokum.
Meistaraefnin í Þór/KA
náðu stigi í Eyjum
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Stöngin Shaneka Gordon, leikmaður ÍBV, slapp í gegnum vörn Þórs/KA á síðustu mínútum leiksins en skaut í stöngina.
Þór/KA getur tryggt sér titilinn með sigri á heimavelli í næstu umferð
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2012
Kristinn Jak-obsson
mun dæma síðari
leik franska liðs-
ins Marseille og
FK Shariff frá
Moldavíu í Evr-
ópudeild UEFA í
knattspyrnu í
kvöld. Þetta er
leikur í umspili um sæti í riðla-
keppninni og fer hann fram á
heimavelli Marseille, sem vann fyrri
leikinn, 2:1. Kristni til aðstoðar
verða þeir Jóhann Gunnar Guð-
mundsson og Gunnar Sverrir
Gunnarsson og fjórði dómari verður
Magnús Þórisson.
Jóhann Berg Guðmundsson ogfélagar hans í hollenska knatt-
spyrnuliðinu AZ Alkmaar fengu
liðsstyrk í gær þegar norski lands-
liðsmaðurinn Markus Henriksson
gekk til liðs við félagið frá Rosen-
borg. Henriksson er 20 ára gamall
miðjumaður sem er í norska lands-
liðshópnum sem mætir Íslendingum
á Laugardalsvellinum þann 7. sept-
ember.
Sergei Ovchinnikov, yfirþjálfarirússneska kvennalandsliðsins í
blaki, lést í gær, aðeins 43 ára gam-
all. Lát þjálfarans bar brátt að en
hann var einnig þjálfari rússneska
liðsins Dynamo Moskva. Hann lést í
æfingabúðum liðsins í Króatíu.
Ovchinnikov tók við þjálfun lands-
liðsins í október 2011 og undir hans
stjórn komst liðið í átta liða úrslit á
Ólympíuleikunum í London þar sem
það tapaði fyrir Brasilíu.
Lucas Leiva, miðjumaður Liver-pool, verður frá keppni næstu
tvo til þrjá mánuði vegna meiðsla í
læri en hann fór af velli meiddur
eftir nokkrar mínútur gegn Man-
chester City á sunnudaginn. Brend-
an Rodgers, knattspyrnustjóri Liv-
erpool, staðfesti í gær að
Brasilíumaðurinn yrði frá vegna
meiðslanna í nokkurn tíma. Þetta er
mikið áfall fyrir Lucas sem missti af
stórum hluta síðasta tímabils eftir
að hafa slitið krossband í leik gegn
Chelsea á síðasta ári.
Þýska meist-araliðið Kiel
átti ekki í vand-
ræðum með að
leggja lið Mudh-
ar frá Sádi-
Arabíu á heims-
meistaramóti fé-
lagsliða í
handknattleik
sem fram fer í Katar. Kiel vann í
gær stórsigur, 42:31, og liðið vann
þar með alla þrjá leiki sína í riðl-
inum og leikur í undanúrslitunum á
morgun. Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði 8 mörk fyrir Kiel en hann
lék einungis í seinni hálfleik. Aron
Pálmarsson spilaði hins vegar
mestallan tímann og skoraði 2
mörk.
Fólk folk@mbl.is
Það verður seint sagt að þýska stórveldið FC Bayern
hafi húmor fyrir því að vinna ekki Þýskalandsmeist-
aratitilinn. Félagið hefur nú þurft að horfa á eftir skild-
inum margfræga til Dortmund undanfarin tvö tímabil
og virðist eins og alltaf staðráðið í að endurheimta
hann.
Það sannaðist með kaupum félagsins á spænska mið-
verðinum Javi Martínez frá Athletic Bilbao í gær en
Bayern borgar fyrir hann 40 milljónir punda. Þar með
er Martínez dýrasti leikmaður í sögu þýsku knattspyrn-
unnar.
Undanfarin sex tímabil hefur Bayern „aðeins“ unnið
þýsku deildina tvisvar sinnum sem þykir ekki nægilega gott á þeim bæn-
um. Bayern hefur á þessum tíma eytt 250 milljónum evra eða 38 millj-
örðum króna í að endurheimta titilinn í hvert skipti sem það hefur ekki
unnið.
Lítum aðeins yfir síðustu sex ár. Sumarið 2007 fagnaði Stuttgart Þýska-
landsmeistaratitlinum. FC Bayern svaraði með því að eyða 78 milljónum
evra í nýja leikmenn eða sem svarar 12 milljörðum króna. Þetta sumar
keypti liðið menn á borð við Franck Ribery, Miroslav Klose og Luca Toni.
Liðstyrkurinn nægði til að endurheimta titilinn og urðu Bæjarar þá
mun rólegri á félagaskiptamarkaðnum sumarið 2008. Félagið eyddi ekki
krónu heldur fékk nokkra menn á frjálsri sölu. Í maí árið eftir horfði Bay-
ern á eftir titlinum til Wolfsburg.
Þá misstu Bæjarar sig aftur og eyddu 67,5, milljónum evra, 10,3 millj-
örðum króna, í leikmenn á borð við Arjen Robben, Mario Gomez og Anat-
oliy Timoshchuk. Titillinn kom aftur til Bæjaralands og nægði þá liðinu
að kaupa Luiz Gustavo á 15 milljónir evra sumarið 2010.
Nú hefur Dortmund unnið tvö síðustu tímabil þrátt fyrir mikla eyðslu
Bayern. Bayern eyddi 39,5 milljónum evra síðasta sumar og er búið að
eyða 65,5 milljónum í ár með tilkomu Javí Martínez. Allt til að end-
urheimta titilinn sem Bæjurum finnst þeir eiga. tomas@mbl.is
38 milljörðum eytt í að endurheimta titilinn undanfarin 6 ár
Javi
Martínez
með það sem okkur vantaði eins og reynslu
álmi en Páll Axel lék hálft tímabil með
tán árum. Miðherjinn sterki Darrel Flake
á félaginu og mun spila með Þór í Þorláks-
nánast fast sæti í efstu deild um árabil og
tíunda áratugnum. Einn lykilmanna liðsins
gilsson, er enn að og hann ætlar að spila í
ára gamall og var byrjaður í meistaraflokki
m. „Sigmar ætlar að taka slaginn og það er
agði Pálmi Þór ennfremur en hann kom lið-
í vor eftir rimmu við nágrannana á Akra-
ng myndaðist í kringum leikina og má búast
i góðan stuðning þegar Dominos-deildin fer
r mæta hinum nýliðunum í KFÍ í fyrsta
dinni
Hásteinsvöllur, Pepsi-deild kvenna,
16. umferð, miðvikudaginn 29. ágúst
2012.
Skilyrði: Hæg gola, heiðskírt en
nokkuð kalt. Völlurinn fínn.
Skot: ÍBV 18 (8) – Þór/KA 13 (5).
Horn: ÍBV 5 – Þór/KA 1.
Lið ÍBV: (4-3-3) Mark: Bryndís Lára
Hrafnkelsdóttir. Vörn: Elísa Viðars-
dóttir, Julie Nelson, Elínborg Ingv-
arsdóttir, Sóley Guðmundsdóttir.
Miðja: Sigríður Lára Garðarsdóttir,
Danka Podovac, Anna Þórunn Guð-
mundsdóttir. Sókn: Shaneka Gordon,
Kristín Erna Sigurlásdóttir, Vesna
Smiljkovic.
Lið Þórs/KA: (4-3-3) Mark: Chantel
Jones. Vörn: Lára Einarsdóttir, Arna
Sif Ásgrímsdóttir, Aldís Marta Sigurð-
ardóttir, Gígja Harðardóttir. Miðja:
Karen Nóadóttir (Þórhildur Ólafs-
dóttir 28.), Kayle Grimsley, Rebecca
Johnson (Lillý Ruth Hlynsdóttir 73.).
Sókn: Tahnai Annis, Katrín Ásbjörns-
dóttir, Sandra María Jessen.
Dómari: Þórður M. Gylfason – Slak-
ur.
Áhorfendur: 110.
ÍBV – Þór/KA 1:1