Morgunblaðið - 30.08.2012, Qupperneq 4
síðan 2009. Hann var með samning
til ársins 2013 en samdi í síðustu
viku til langs tíma. „Þetta samstarf
hefur gengið vel og einnig hefur
gengið vel inni á vellinum og það
hjálpar nú til. Menn horfa til þess
að það verða breytingar innan fé-
lagsins næsta sumar þegar æf-
ingaaðstaðan verður flutt til. Lögð
verður meiri áhersla á unglinga-
starfið og það verður gaman að fá
að taka þátt í því,“ sagði Dagur þeg-
ar Morgunblaðið forvitnaðist um
stöðu mála hjá honum. Þessar
áherslubreytingar hjá félaginu fela
þó ekki í sér útvíkkun á starfi Dags.
„Nei í sjálfu sér ekki. Ég verð
bara áfram með meistaraflokkinn.
Við munum samt sem áður setja allt
undir sama hatt og þar á ég við
meistaraflokkinn, yngriflokkastarfið
og skólaakademíu. Þetta verður
staðsett þar sem ólympíusvæðið í
Berlín er og aðstaðan verður frá-
bær. Þangað förum við næsta sum-
ar,“ útskýrði Dagur.
Erfitt að sjá á eftir Alexander
Dagur tekur það fram að þótt
hann sé búinn að semja við Berl-
ínarliðið fimm ár fram í tímann, þá
er hann engu að síður undir sömu
sök seldur og aðrir þjálfarar í bolta-
greinunum þar sem starfsöryggið er
lítið.
„Þetta er svo sem ekki meiri
langtímasamningur en það að þeir
geta alltaf sagt manni upp eftir tvo
tapleiki eins og gengur og gerist.
Það er kannski meira verið að semja
um það hver borgar brúsann ef
maður hættir eða verður rekinn,“
sagði Dagur og liðið hefur byrjað
deildakeppnina á tveimur sig-
urleikjum að þessu sinni. „Við vitum
að það verður erfitt að fylgja eftir
tveimur góðum tímabilum. Það urðu
breytingar á liðinu og við misstum
Alexander Petersson sem á eftir að
vera erfitt fyrir okkur. Við sjáum
hvað setur,“ sagði Dagur enn-
fremur.
Skýr stefnumótun
Að sögn Dags hefur félagið mark-
að sér skýra stefnu og eru vonir
bundnar við að ala upp leikmenn í
háum gæðaflokki. „Við erum að búa
til yngriflokkastarf og urðum þýskir
meistarar í 2. flokki síðustu tvö árin.
Stefnan er að halda áfram að byggja
upp og gefa þeim strákum tækifæri.
Um leið munum við draga okkur út
úr kapphlaupinu um stærstu bitana
enda eigum við litla möguleika þar,“
sagði Dagur og hann sagði Berl-
ínarliðið til að mynda ekki hafa átt
möguleika á að næla í þá leikmenn
sem komu á markaðinn vegna gjald-
þrots AG Kaupmannahafnar.
„Við vitum að við eigum ekki
möguleika gegn stóru félögum og
höfum ekki verið í keppni um allra
stærstu bitana. Við létum vita af
okkur en eigum bara ekki mögu-
leika þar sem önnur lið bjóða betur.
Það er allt í góðu og við nálgumst
málin á okkar línu. Við höfum oft
tekið leikmenn sem er annaðhvort
verið að henda í burtu annars staðar
eða eru að klára sinn feril. Við höf-
um þá reynt að mjólka út úr þeim
síðustu dropana.“
Landsliðið í topphöndum
Starf landsliðsþjálfara Íslands
losnaði að Ólympíuleikunum loknum
þegar samningur Guðmundar Guð-
mundssonar rann út. Gengið var frá
ráðningu Arons Kristjánssonar á
dögunum en þeir Dagur léku saman
í landsliðum Íslands á árum áður.
Morgunblaðið spurði Dag hvort
HSÍ hefði sett sig í samband við
hann vegna starfsins.
„Nei þeir gerðu það nú ekki. Ég
held að þeir hafi fengið mjög góðan
mann. Ég held að þetta sé í topp-
höndum hjá Aroni og ég tala nú
ekki um ef Óskar Bjarni nær að
vera með þeim áfram,“ sagði Dagur
Sigurðsson ennfremur við Morg-
unblaðið.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Handknattleiksþjálfarinn Dagur
Sigurðsson gerði á dögunum nýjan
samning við þýska félagið Füchse
Berlín til ársins 2017. Dagur hefur
þjálfað liðið með frábærum árangri
Morgunblaðið/Kristinn
Árangur Dagur Sigurðsson hefur náð frábærum árangri með þýska liðið Füchse Berlin sem hann kom meðal annars í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Ekki tjaldað til einnar
nætur hjá Füchse Berlín
Dagur Sigurðsson
» Er samningsbundinn Füchse
Berlín í Þýskalandi til ársins
2017 en hann hefur stýrt liðinu
frá árinu 2009 og árangurinn
verið framar vonum.
» Félagið hefur ekki bolmagn
til að keppa um stærstu nöfnin
á leikmannamarkaðnum. Farin
verður sú leið að byggja upp
leikmenn hjá félaginu.
Dagur samningsbundinn til 2017 Meiri áhersla lögð á unglingastarfið
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2012
Arpad Sterbiksem hefur
verið einn besti
handboltamark-
vörður heims
undanfarin ár
hefur ákveðið að
ganga til liðs við
Barcelona en
hann hefur verið
á mála hjá Ciudad Real, sem nú heit-
ir Atletico Madrid, frá árinu 2004.
Sterbik er 32 ára gamall Serbi sem
hefur öðlast spænskt ríkisfang og
spilar nú með spænska landsliðinu.
Hann hefur einu sinni verið valinn
besti handboltamaður heims af Al-
þjóðahandknattleikssambandinu en
það var árið 2005.
Þróttur frá Neskaupstað hefurákveðið að senda karlalið til
keppni á Íslandsmótinu í blaki og
eru liðin þar með orðin sex sem taka
þátt í mótinu í karlaflokki. Nokkuð
er liðið frá því að Þróttur sendi lið til
keppni í efstu deild en uppgangurinn
er mikill fyrir austan í blakíþrótt-
inni.
Júlían JóhannKarl Jó-
hannsson úr Ár-
manni er nú
staddur í Pól-
landi, ásamt
þjálfara sínum,
en þar mun hann
keppa á heims-
meistaramóti unglinga í kraftlyft-
ingum sem nú stendur yfir. Júlían
keppir í +120 kg flokki og er þetta
fyrsta ár Júlíans í eldri unglinga-
flokki (19-23 ára). Júlían keppti fyrr
á þessu ári á EM unglinga þar sem
hann vann til gullverðlauna fyrir
réttstöðulyftu og mun hann vafa-
laust gera atlögu að heimsmeist-
aratitli unglinga í réttstöðu. Hann á
einnig möguleika á verðlaunum í
öðrum greinum sem og fyrir sam-
anlagðan árangur. Júlían keppir á
sunnudaginn kl. 11.
Belgíski miðjumaðurinn MoussaDembélé gekk í gær til liðs við
Tottenham frá Fulham en Spurs
borgar fyrir hann 15 milljónir
punda.
Fólk sport@mbl.is
Þann 7.september gefur
Morgunblaðið út sérblað tileinkað
börnum og uppeldi.
Víða verður komið við í
uppeldi barna bæði í
tómstundum þroska og öllu
því sem viðkemur börnum.
SÉRBLAÐ
MEÐAL EFNIS:
Öryggi barna innan og utan heimilis.
Barnavagnar og kerrur.
Bækur fyrir börnin.
Þroskaleikföng.
Ungbarnasund.
Verðandi foreldrar.
Fatnaður á börn.
Gleraugu fyrir börn.
Þroski barna.
Góð ráð við uppeldi.
Námskeið fyrir börnin.
Tómstundir fyrir börnin.
Barnamatur.
Barnaljósmyndir..
Ásamt fullt af spennandi efni um börn.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
3. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 5691105
kata@mbl.is
– Meira fyrir lesendur