Morgunblaðið - 05.03.2013, Page 4
ina og má því búast við flugeldasýn-
ingu frá spænska liðinu.
Skyndisóknirnar hættulegar
„Real Madrid er eitt besta liðið
þegar kemur að því að beita skyndi-
sóknum,“ sagði Ferguson um mót-
herjann í gær. „Real sýndi það gegn
Barcelona. Við verðum að finna leið
til þess að ráða við þessar skyndi-
sóknir og á sama tíma reyna sækja
sjálfir.“
Phil Jones verður ekki með Man-
chester United í kvöld vegna
meiðsla en leikmaðurinn ungi átti
mjög góðan leik á Bernabéu þar
sem hann skilaði mikilli og góðri
vinnu á miðjunni.
„Við verðum bara að gera það
sem til þarf. Við þekkjum styrkleika
okkar og veikleika og hvað við get-
um gert vel. Vonandi hjálpar það
okkur í þessum leik,“ sagði Sir Alex
Ferguson.
Þúsund leikir hjá Giggs
Leikurinn á morgun mun marka
tímamót á ferli eins sigursælasta
knattspyrnumanns allra tíma, Ryan
Giggs. Hann var hvíldur um helgina
gegn Norwich svo hann yrði full-
frískur í leikinn í kvöld sem verður
hans 1.000. fyrir Manchester United
á ferlinum. Ferguson stólar á
reynslu velska töframannsins.
„Hann mun koma við sögu hvort
sem hann verður í byrjunarliðinu
eða byrjar á bekknum. Reynsla
hans er okkur ómetanleg. Þúsund
leikir, vá, þetta er einstakt og verð-
ur ekki leikið eftir að ég held,“ sagði
Sir Alex Ferguson.
Evrópukvöld eins
og þau gerast best
Stórlið verður skilið eftir með sárt ennið á Old Trafford í
kvöld Skellir Ronaldo gömlu félögunum? Ryan Giggs
spilar 1.000. leikinn gegn Real Madrid á Old Trafford
AFP
Vinátta Það er ekki víst að alveg svona vel fari á með leikmönnum Man-
chester United og Real Madrid eftir leikinn á Old Trafford í kvöld.
FÓTBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
„Evrópukvöldin gerast ekki betri en
þetta,“ sagði Sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester Unit-
ed, á fréttamannafundi í gær fyrir
stórleik liðsins gegn Real Madrid í
16-liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar í kvöld.
Liðin skildu jöfn, 1:1, í fyrri leikn-
um á Santiago Bernabéu og United
því í ágætri stöðu fyrir kvöldið. Cris-
tiano Ronaldo heimsækir sinn gamla
heimavöll í fyrsta skipti síðan hann
var seldur fyrir metfé sumarið 2009.
„Þetta eru félög með ríka sögu og
þau ættu að bjóða upp á frábæran
leik. Ég efast um að nokkur verði
fyrir vonbrigðum,“ sagði Sir Alex.
Lykilmenn úthvíldir
Eðlilega var talið að tveir El Clá-
sico-leikir með fjögurra daga millibili
myndu þreyta Real-liðið og taka fók-
usinn af leiknum gegn United. Það
hefði vissulega hjálpað enska liðinu
en hlutirnir breyttust snögglega eftir
að Real vann Barcelona, 3:0, í bik-
arnum síðastliðið miðvikudagskvöld.
Þá sá José Mourinho sér leik á
borði að vinna tvo titla á tímabilinu
en möguleikinn í spænsku deildinni
er fyrir löngu horfinn þrátt fyrir ann-
an sigur á Barca um helgina.
Þar hvíldi Portúgalinn nokkra af
sínum helstu leikmönnum, meðal
annars Mesut Özil, Sami Khedira og
Cristiano Ronaldo.
Í staðinn fyrir að El Clásico trufl-
aði undirbúning Real um helgina
hjálpaði sigurinn í bikarnum liðinu
að undirbúa sig fyrir Meistaradeild-
mun sýna átta leiki í riðlakeppninni og þá
sýna japanskar og bandarískar stöðvar alla
leiki sinna þjóða á mótinu. Ísland og Svíþjóð á
föstudag er einn þeirra leikja sem Eurosport
sýnir beint.
Svíþjóð er í 6. sæti, Noregur í 12. sæti, Dan-
mörk í 13. sæti, Ísland í 15. sæti og Kína í 17.
sæti.
Í ár verða leikir frá mótinu í fyrsta skipti
sýndir beint í sjónvarpi í Evrópu. Eurosport
komist á verðlaunapallinn í fjórtán skipti af
þeim átján sem það hefur verið með í mótinu.
Noregur hefur unnið mótið fjórum sinnum,
Svíþjóð þrisvar, Kína tvisvar og Þýskaland
tvisvar.
Til marks um styrkleika mótsins hafa
ríkjandi heimsmeistarar, Japanir, verið með á
undanförnum tveimur mótum og orðið að láta
sér nægja silfur og brons.
Þýskaland er núverandi handhafi bikarsins
eftir sigur á Japan, 4:3, í úrslitaleik mótsins í
fyrra. Bandaríkin unnu þá Svíþjóð, 4:0, í
leiknum um bronsið. Danmörk vann Ísland,
3:1, í leiknum um 5. sætið.
Ísland og Bandaríkin mætast í fyrstu um-
ferð mótsins á morgun klukkan 14 að íslensk-
um tíma. Ísland mætir síðan Svíþjóð á föstu-
daginn klukkan 18 og Kína næsta mánudag
klukkan 15. Að lokum er spilað um sæti mið-
vikudaginn 13. mars.
Í A-riðli mótsins leika Þýskaland, Japan,
Danmörk og Noregur en átta bestu liðin spila
í A- og B-riðlunum. Í C-riðli eru síðan fjórar
lökustu þjóðirnar sem að þessu sinni eru
Portúgal, Mexíkó, Wales og Ungverjaland.
Sigurliðið þar spilar um 7. sætið á mótinu og
liðið í öðru sæti um 9. sætið en þeir leikir eru
gegn liðunum sem verða neðst í A- og B-
riðlum.
Eurosport sýnir 8 leiki í riðlakeppninni
Styrkur Algarve-bikarsins sést best á því
að þrjú bestu landslið heims eru á meðal þátt-
takenda, Bandaríkin, Þýskaland og Japan, og
liðin í A- og B-riðlum eru öll í hópi 17 efstu.
Níunda Portúgalsför íslenska liðsins
Algarve-bikarinn hefst á morgun Ísland
mætir ólympíumeisturunum í fyrsta leik
Ljósmynd/Algarvephotopress
Kína Ísland hefur sigrað Kína þrívegis í fjórum viðureignum þjóðanna á Algarve og hér er
Hólmfríður Magnúsdóttir í baráttunni í fyrra. Liðin mætast í 5. skipti á mánudaginn kemur.
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu kom í
gær til Algarve á suðurströnd Portúgals. Þar
tekur liðið enn og aftur þátt í Algarve-
bikarnum, sterkasta móti kvennalandsliða í
heiminum ár hvert, fyrir utan HM og EM.
Þetta er sjöunda árið í röð sem Ísland er á
meðal þátttökuþjóðanna en liðið hefur verið
með samfleytt frá 2007. Áður var Ísland með í
keppninni árin 1996 og 1997 en hún hefur ver-
ið haldin samfleytt frá árinu 1994 og þetta er
því 20. mótið frá upphafi.
Besti árangur Íslands til þessa er árið 2011
þegar liðið kom skemmtilega á óvart með því
að vinna sinn riðil og leika til úrslita um gull-
verðlaunin gegn Bandaríkjunum. Úrslitaleik-
urinn endaði 4:2 fyrir bandaríska liðið en á
leið sinni í hann vann Ísland sigur á Svíþjóð,
Danmörku og Kína.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er mættur til
leiks með stærri hóp en áður, eða 23 leik-
menn. Þátttökuliðunum var leyft að vera með
jafnmarga leikmenn og verða í úrslitakeppni
Evrópumótsins í sumar en þar verða fimm
þátttökuþjóðanna, Ísland, Þýskaland, Nor-
egur, Danmörk og Svíþjóð.
Bandaríkin unnið átta sinnum
Bandaríkin eru sigursælasta þjóðin á
mótinu til þessa með 8 gullverðlaun, fjögur
silfur og tvö brons. Bandaríska liðið hefur
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2013