Hafnarfjörður - Garðabær - 19.04.2013, Page 10
10 19. apríl 2013
TÍMAREIMAR – BREMSUR – BILANAGREINING - OLÍUSKIPTI
ÁSAMT ÖLLUM ALMENNUM BÍLAVIÐGERÐUM
Tjónaviðgerðir fyrir öll
tryggingafélöginBílaspítalinn – Kaplahrauni 1 – Hafnarfirði Sími 565 4332 – bsp@bsp.is
CABAS tjónaskoðun
Sími 551 3485,
svarað allan
sólarhringinn.
www.udo.is
Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur
Sími 551 3485,
svarað allan
sólarhringinn.
www.udo.is
Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur
Sími 551 3485 - Svarað allan sólarhringinn - www.udo.is
Innkaupakerruhlífar til sölu.
Hreint og þægilegt fyrir
barnið, 3 gerðir.
Sjá www.spurning.is
Guðlaug Kristinsdóttir skrifar:
Hættum að rífast,
framtíðin er björt
Þegar ég kaus síðast sem Hafn-firðingur fann ég atkvæði mínu ekki samastað. Samfélagið var í
uppnámi og þar sem ég var ein þeirra
sem vildi sjá afgerandi breytingar í stjórn-
málum, var ég ósátt við að nýjungarnar
sem spruttu upp víða um land skyldu
ekki ná til bæjarins míns. Á Akureyri var
í boði nýr listi, í Kópavogi var komið eitt-
hvað næst best og Jón Gnarr var með alls
konar í Reykjavík. Ég upplifði mína kosti
sem skilti með tveimur örvum: hægri eða
vi stri? Bylt ngar fortíðar og kreddur úr
gömlum ritgerðum.
Það er óþægilegt að skila auðu og til
að þurfa ekki að gera það í næstu Alþing-
iskosningum kom ég að stofnun frjáls-
lynds, græns og mannréttindasinnaðs
framboðs, Bjartrar framtíðar. Hópurinn
sem að því stendur vill jafnframt bæta
starfshætti á Alþingi, sem á síðustu árum
hefur misboðið landsmönnum með því
að eyða dýrmætum tíma í að rífast við
sjálft sig um sjálft sig, með því að sýna
fram á að kurteis og góð vinnubrögð má
stunda þar jafnt og öðrum vinnustöðum.
Reddingar eða ráðdeild?
Björt framtíð er raunsær flokkur sem
finnst alltof mikil orka fara í að viðhalda
kerfi sem ekki virkar. Efnahagskerfi
okkar byggir á dýrkeyptri sjónhverfingu,
íslenska krónan er ekki þess virði að loka
landinu henni til verndar.
Björt framtíð treystir fólki og vill efla
aðkomu almennings að ákvarðanatöku.
Grundvöllur þess er greiður aðgangur
að upplýsingum um okkar sameiginlega
heimilisrekstur, íslenska ríkiskassann. Í
dag er hann, rétt eins flest önnur heimili,
þjakaður af vaxtabyrði vegna óstöðugrar
fortíðar. Sá kostnaður er næststærsti
útgjaldaliðurinn í bókhaldi landsins.
Björt framtíð er grænn flokkur og vill
vinna að uppbyggingu atvinnulífs án þess
að sífellt sé gengið á dýrmæta náttúru.
Með því að virkja eigin útsjónarsemi
geta Íslendingar aukið hagsæld lands-
ins, framtíðin er björt ef við gerum það.
Guðlaug skipar þriðja sæti á framboðslista
Bjartrar framtíðar í suðvesturkjördæmi.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir skrifar:
Hvaða leið vilt þú fara?
Í pólitík greinir menn á um leiðir en markmiðin eru væntanlega þau sömu að búa til tækifæri í íslensku
samfélagi fyri einstaklinga, fjölskyldur
og fyrirtæki. Í mínum huga er góð
staða efnahagsmála forsenda allra
annarra þátta í samfélaginu. Hún er
forsenda þess að fólk hafi vinnu, hún er
forsenda þess að hægt sé að auka kaup-
mátt og hún er forsenda þess að hér
sé hægt að byggja upp öflugt velferðar
– og menntakerfi og viðhalda því.
Það eru ýmsar leiðir til þess en ég vil
búa í samfélagi þar sem einstaklingnum
er treyst og honum tryggt frelsi til
athafna. Ég vil búa í samfélagi þar sem
atvinnulífinu eru skapaðar aðstæður
til að eflast og þar sem fjölskyldan er
hornsteinn samfélagsins. Þess vegna
er það er bjargföst skoðun mín að
grunngildi sjálfstæðisstefnunnar eigi
nú sem aldrei fyrr brýnt erindi við
fólkið í landinu.
Verkefnin framundan eru mörg og
viðamikil en áherslu verður að leggja á
lækkun skulda ríkissjóðs, fram hjá því
getur enginn stjórnmálaflokkur litið.
Við verðum að mynda samstöðu og
hafa skýra sýn á nýjar leiðir í efnahags-
málum þar sem megin áhersla verður
á stöðugleika og vöxt. Við þurfum að
setja okkur sameiginlega markmið um
að loka fjárlagagatinu, um raunhæfar
aðgerðir fyrir heimilin, að bæta um-
hverfi atvinnulífsins, skapa því um-
hverfi sem leiðir af sér kjarabætur til
launaþega, kjarabætur sem haldast í
hendur við verðmætasköpun í landinu
þannig munum við komast áfram.
Við erum mörg þeirrar skoðunar að
öflugt atvinnulíf sé forsenda velferðar
og menntunar og forsenda þess að við
getum tekið á fjárhags – og lánavanda
heimila í landinu. Við vitum mæta vel
að hagur heimilanna byggir á atvinnu
og öryggi, hvorki skuldavandanum
né hinum félagslega vanda verður eytt
nema fólk hafi vinnu, hafi tekjur til að
greiða niður lánin og ráðstöfunartekjur
til að leyfa sér og börnum sínum að
vera virkir þátttakendur í samfélaginu.
Þess vegna er meginmarkmið
okkar sjálfstæðismanna að fá til þess
umboð í kosningunum 2013 að skapa
hér samfélag þar sem allir geti fundið
kröftum sínum farveg, þar sem velferð
og öryggi borgaranna er tryggt, þar
sem lífskjör jafnast á við það sem best
gerist í heiminum og þar sem frelsi,
ábyrgð og virðing fyrir einstaklingum
er höfð í hávegum.
Ef þú ert mér sammála um leiðir þá
eigum við samleið í kosningunum 27.
apríl.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingmaður, skipar annað sæti
á framboðslista Sjálfstæðisflokksins
í suðvesturkjördæmi.
Framsóknarfögnuður
Siv Friðleifsdóttir, Elín Björg Ing-ólfsdóttir og Vigfús Markússon
mættu á opnun kosningaskrifstofu
Framsóknarflokksins á dögunum. Siv
hættir nú á þingi eftir 18 ára þingsetu
en hún settist fyrst á þing árið 1985.
VG opnaði á Strandgötunni
Vinstri græn opnuðu kosninga-skrifstofu sína á Strandgöt-unni sunnudaginn 7. apríl.
Guðbjörg Sveinsdóttir sem skipar
fjórða sæti listans, Ögmundur Jón-
asson sem er í því fyrsta og Rósa Björk
Brynjólfsdóttir sem er í öðru sæti voru
á staðnum.
ragnheiður ríkharðsdóttir
Guðlaug Kristinsdóttir.