Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2000, Síða 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 26. október 2000 * 43. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
TILfundarvið Keikó,
Mynd: GuömundurÁsmundsson
Ágæt
síldveiði
Ágætur gangur hefur verið í sfld-
veiðum og vinnslu að undanförnu.
Hjá Isfélaginu var í gær búið að
taka á móti um 800 tonnum af sfld.
Antares hafði landað tvisvar og
Gullberg einu sinni. Antares er svo
væntanlegur í nótt með þriðja
farminn. Skipin hafa fært sig af
austursvæðinu vestur fyrir og hafa
vrið að veiðum í Kolluál.
Jón Ólafur Svansson, hjá Isfélaginu,
segir að sfldin að austan hafi verið
nokkuð blönduð en meira um stærri
og betri sfld í þeim afla sem fengist
hefur af vestursvæðinu. Milli 40 og
50 manns hafa unnið við vinnslu
sfldarinnar hjá Isfélaginu.
Sighvatur Bjamason VE hélt til sfld-
veiða á laugardag og í gær var hann
kominn með um 200 tonn af sfld.
„Við bara bíðum spennt, áætlað er að
Sighvatur komi hingað aðfaranótt
föstudags og okkur er ekkert að van-
búnaði að hefja þá vinnslu," segir
Þorsteinn Magnússon hjá Vinnslu-
stöðinni. Sighvatur verður eina skipið
sem landa mun sfld hjá Vinnslu-
stöðinni. Áætlað er að vinna við
sfldina verði tvo til þijá daga í viku og
munu milli 40 og 50 manns koma að
þeirri vinnslu. Þá daga sem ekki er
unnið í sfld verður unnið við bolfisk
sem kemur af togaranum Jóni Vídalín
og þeim tveimur netabátum sem
gerðir eru út hjá Vinnslustöðinni.
Vestmannaeyingar missa forræði yfir Herjólfi:
Uppsögn áhafnar
-verður fyrsta skrefið og næst er að undirbúa flutning af Básaskersbryggjunni
í dag má gera ráð fyrir að til tíðinda
dragi í Herjólfsmálinu. Kærunefnd
útboðsmála fjallaði á þriðjudaginn
um kæru stjórnar Herjólfs hf. sem
telur kostnaðaráætlun Vegagerð-
arinnar ekki standast útboðslýs-
inguna. Samkvæmt heimildum
blaðsins er komin upp sú staða að
nefndin getur ekki tekið afstöðu til
kærunnar. Það er því fátt annað í
stöðunni fyrir stjórnina en að segja
upp áhöfninni og undirbúa brott-
flutning af Básaskersbryggjunni.
Kæra stjómar Herjólfs til kæm-
nefiidar, sem lögð var fram um leið og
frestur Vegagerðar rann út til að
ákveða hvaða tilboði yrði tekið, átti að
koma í veg fyrir bindandi samning við
Samskip sem átti lægsta tilboðið.
Áður en fresturinn rann út ákvað
Vegagerðin að semja við Samskip
sem var eðlilegt, miðað við stöðu
mála. Þrátt fyrir að vegamálastjóri hafi
ekki viljað viðurkenna að gerður hafi
verið bindandi samningur við Sam-
skip eftir að kæran kom fram hafa
Fréttir fyrir því áreiðanlegar heimildir
að svo sé. Sömu heimildir segja að
þetta hafi orðið til þess að kærunefnd
útboðsmála hafi ekki getað tekið af-
stöðu úl kæru stjómar Herjólfs á fundi
sínum á þriðjudaginn.
Heimildarmaður segir þetta vafa-
saman gjöming og ef satt er telur hann
þetta enn eina staðfestinguna á því að
Vegagerðin vilji ekki sjá að Eyjamenn
hafi forræði yfir Heijólfi.
Einhvem pata virðist stjómin hafa
haft af meintum samningi því hún bað
um ffest og ef hann fengist ekki vildu
þeir draga kæmna til baka. „Þetta var
gert á þeim forsendum að þegar væri
búið að skrifa undir og það væri ekki
til neins að strögla lengur," sagði
heimildarmaðurinn.
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri Heijólfs, vildi hvorki játa þessu
né neita þegar rætt var við hann í gær.
„Eg hef ekki ennþá fengið neitt
staðfest af fundi nefndarinnar og á
meðan er lítið um málið að segja,“
sagði Magnús. Aftur á móti segja
heimildir Frétta að öllu starfsfólki
Herjólfs hf. verði sagt upp á næstu
dögum. I stöðunni sé ekki um annað
að ræða. Það er því einsýnt að
Eyjamenn munu sjá á eftir Heijólfi og
nokkmm störfum frá og með næstu
áramótum.
Ungu fólki f jölgar á atvinnuleysisskrá
í lok september voru atvinnulausir á Suðurlandi 71 að
tölu, 54 konur og 17 karlar. Hafði þeim fækkað um 19
frá því á sama tíma í lok ágúst. Af þessum 71 voru
flestir atvinnulausir á Árborgarsvæðinu eða 41.
Þessar tölur svara til 0,6% atvinnuleysis á Suðurlandi
en atvinnuleysi á landinu öllu var í september 0,9% og
hefur ekki komist niður fyrir 1% síðan 1991.
I Vestmannaeyjum vom atvinnulausir í september rétt
um 30 talsins og í gær vom 28 atvinnulausir á skrá í
Vestmannaeyjum. Það sem hvað helst vekur athygli við
skráningu atvinnulausra er hve hlutur ungs fólks hefur
aukist að undanfömu. Stór hópur þeirra sem skráð hefur
sig, er fæddur á tímabilinu 1978 til 1983, fólk um og
innan við tvítugt. Hvað veldur þeirri þróun er ekki gott að
segja en fram til þessa hefur þessi hópur yfirleitt átt
auðveldara með að fá vinnu en þeir sem eldri em.
TM-ÖRYGGI
TTTT jgL 1 iirvix I wwi FYRIR
ÖRVGGI FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll tryggingamánn
-áó/íum svidum.1 , á einfaldan og
hagkvæman háll
áé4 Vetraráæl
Manud. - laugard.
Sun nud.
Aukaferö a föstud.
F i á»Eyj u iii
kl. 08.15
kl. 14.00
kl. 15.30
F i a Þ n 11 a l< s h o f n
kl. 12.00
kl. 18.00
kl. 19200
Sími 481 2800 - Fax 481 2991