Reykjavík - 01.06.2013, Síða 4
1. júní 20134
Dýrðardagar með spámiðlunum
Hrönn og Ölmu í ágúst
Dýrðardagar eru hugsaðir fyrir alla þá sem vilja byggja sig upp andlega og fræðast um
andleg mál í rólegu og góðu umhverfi.
Boðið er upp á göngu og hugleiðslu á
hverjum morgni, og námskeið/fræðslu-
stund eftir hádegi þar sem fjallað er um
mismunandi efni. Farið verður í ferð til
að upplifa álfa og aðrar náttúruverur,
og í Borgarvirki. Einn heilunartími
er innifalinn í þátttökugjaldinu. Yfir
daginn verða fjölbreyttir einkatímar í
boði t.d. hjá spákonum, fyrrilífa heilun,
transheilun, nudd, dáleiðsla og fleira,
greitt er sérstaklega fyrir einkatímana
en allir veita góðan afslátt af sinni
vinnu.
Gist er í tveggja manna herbergjum
og er morgunmatur, hádegisverður
og kvöldmatur innifalinn í verðinu.
Á laugardagskvöldinu er hátíðar-
kvöldverður. Boðið verður upp á
léttan hádegisverð, súpu, salatbar og
brauð, og fisk- eða kjötrétt á kvöldin.
Dóra Svavarsdóttir kokkur mun sjá um
matseldina. Flest herbergin á hótel-
inu eru mjög rúmgóð, með tveimur
rúmum og öll eru þau með vaski. Þátt-
takendur þurfa að hafa með sér sæng,
kodda og rúmföt.
Dýrðardagar standa frá þriðjudags-
kvöldi til hádegis á sunnudag og er gert
ráð fyrir að þátttakendur séu allan tí-
mann. Innifalið í verðinu er gisting í
tveggja manna herbergi, morgunmatur,
hádegisverður og kvöldmatur þriðju-
dagskvöld til laugardags og morgun-
matur á sunnudeginum. Dagleg
ganga, sund, hugleiðsla, námskeið og
fræðslustundir eftir hádegi alla daga,
álfaskoðun, ferðir og fleira. Þátttak-
endur hafa frían aðgang að íþróttaað-
stöðu og sundlauginni á staðnum. Verð
fyrir heildarpakkann er aðeins 38.000.
Dýrðardagar hefjast 13. ágúst og standa
til þess 18.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur
komi á einkabílum á staðinn en hægt er
að aðstoða fólk við að sameinast í bíla.
Frekari upplýsingar gefur Hrönn
Friðriksdóttir spámiðill í síma 861-
2505 eða hronn@spamidill.com
Vorútskrift Fjölbrautaskólans við Ármúla:
2400 nemendur
við skólann á vorönn
Föstudaginn 24. maí fór fram vorútskrift Fjölbrautaskólans við Ármúla. Brautskráðir voru
133 nemendur af 15 námsbrautum, þ.a.
3 nemendur af tveimur brautum, 47
frá heilbrigðisskólanum, 5 af sérnáms-
braut, 1 af framhaldsskólabraut og 83
nýstúdentar af fimm námsbrautum.
Dúx skólans af bóknámsbrautum var
Branislava Ristic og fékk hún jafn-
framt verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í sögu, sálfræði og íslensku
sem annað tungumál. Anton Jiaxu Wei
hlaut sérstök raungreinaverðlaun sem
Háskólinn í Reykjavík veitti
Af starfsmenntabrautum fékk
Sandra Ó. Anulekha Magnúsdóttir
viðurkenningu fyrir mjög góða
lokaritgerð á lyfjatæknabraut og fyrir
góðan námsárangur í sérgreinum
brauta fengu Sandra Mjöll Andrés-
dóttir af tanntæknabraut, Sigríður
Kjartansdóttir af heilbrigðisritara-
braut, Rósa Berglind Hafsteinsdóttir
af læknaritarabraut og Aðalheiður
Ófeigsdóttir af sjúkraliðabraut. Þórey
Einarsdóttir tanntæknir flutti ávarp
fyrir hönd útskriftarnema Heilbrigð-
isskólans og Erla Maren Hrafnsdóttir
fyrir hönd nýstúdenta.
Í ræðu Steins Jóhannssonar, skóla-
meistara kom fram mikilvægi þess að
auka sérhæfða þjónustu við nemendur
innan skólakerfisins. Slíkt verði þó
ekki gert nema til komi aukin fjár-
framlög ríkisins til framhaldsskólanna
sem hafi þurft að búa við gríðarlegan
niðurskurð á síðustu árum. Auknar
kröfur væru settar á herðar skólanna
og hægt væri að spyrja hvernig mögu-
legt væri að að auka þjónustu, auka
námsframboð og skapa ný tækifæri
á tímum niðurskurðar. Enn fremur
skipti miklu máli að skólar fengju að
þróa styttri námsbrautir sem væru
í nánum tenglum við atvinnulífið.
Steinn gat þess að á næsta skólaári færi
af stað tveggja ára nám í nýsköpun og
listum sem væri svar við kalli atvinnu-
lífsins og menntamálayfirvalda um
þróun og stofnun styttri námsbrauta.
Á vorönn stunduðu um 2400 nemendur nám við skólann, en skólinn er með flesta fjarnámsnemendur á framhalds-
skólastigi á íslandi auk þess að vera leiðandi í námi heilbrigðisgreina.
Mæðgurnar og spámiðlarnir Hrönn Friðriksdóttir og Alma Hrannardóttir
standa fyrir Dýrðardögum
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is
fotspor.is
Óskum öllum launþegum
á Íslandi til hamingju
með baráttudag verkalýðsins
1. maí
Alhliða þjónusta
Kominn til þess að vera
Löndun - Ís - Slæging
- Gæðafrágangur
Sala og framboð
á öllum fisktegundum
Fiskmarkaður
Þórshafnar ehf.
Ós sjómön um til
hamingju með daginn
Fjórlitur
76c + 8m
100c + 65m + 30k
Letur svart
Fjórlitur
76c + 8m
100c + 65m + 30k
Ný dögu
ísle sk m
sjá útvegi
Heimaey VE1 e af nýrri kynslóð Rolls-Royce hannaðra fiskiskipa,
þar sem hámarks aflaverðmæti fást með afkastamikilli kælingu
og hagkvæmni í rekstri. Allur aðal vélbúnaður Heimaeyjar er frá
Rolls-Royce.
Héðinn hf. og Rolls-Royce Marine óska Ísfélagi Vestmannaeyja og
áhöfn skipsins velfarnaðar.
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
hedinn.is
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
hedinn.is
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
hedinn.is
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
hedinn.is1a + 1b
5 x2 cm
2a + 2b
5x35 cm
3
8x2 cm
4
10x2 cm
5
6.5 cm
6
8.5 cm
7
8 cm
9
10 cm
10
10 cm
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is
VESTMANNAEYJAHÖFN