Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.1980, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ
Þriðjudagur 1. apríl 1980
7. árgangur - 14. tölubláð.
Villtar kanínnr á Breiðabakka
Mikið er nú um villtar
kanínur á Breiðabakka, rétt
sunnan við Lyngfellsbúið. Er
hér um að ræða sérstakt af-
brigði, sem er rústrautt með
fölbláum röndum.
Krakkar, sem voru á
gönguferð á Bakkanum, urðu
þess vör að kanínur komu
upp úr holu, sem opin mun
vera niður í sjó.
Nánar til tekið er þessi hola
ca. 3 metra austan við veginn
á Breiðabakka og ca. 50 metra
frá beygjunni neðst á Breiða-
bakka.
Úr holu þessari má heyra
sjávarnið, og ef reytt er gras
og sett yfír opið, fýkur það í
loft upp, svo mikill er trekk-
urinn upp úr holunni.
Er staðurinn var athug-
aður, kom í ljós, að 7 kanínur
halda til í þessari holu, og eru
þær mest á ferli um 7 leytið á
kvöldin.
Krakkarnir, sem Fréttir
höfðu tal af, sögðust gefa
dýrunum nýjar gulrætur og
væru þær nú óðast að hænast
að þeim.
Er fólki ráðlagt, sem sjávill
þessar sérstöku kanínur, að
fara ekki á bílum alveg að
þessum stað, heldur leggja
bílunum vestan megin við
veginn, og ganga að staðnum.
Verður væntanlega búið að
merkja staðinn, og ekki frá-
leitt að farið verði með ferða-
menn á staðinn í sumar.
Sem fyrr segir, er fólki
ráðlagt að fara ekki á bílum
alveg að staðnum. Það er
vegna þess að kanínurnar
hoppa strax ofaní holuna,
finni þær titring í jörðinni,
sem bílar valda.
Fyrstu leikir IBV
Nú um páskana fer boltinn
að rúlla hjá leikmönnum IBV.
Þeir hafa nú æft frá því í
febrúar og verið vel mætt á
æfingar, þegar tillit er tekið til
þess, hvert vinnuálag hefur
verið á leikmönnum sem öðr-
um, á þeirri ágætu vertíð, sem
nú stendur sem hæst.
Um hátíðardagana mun
ÍBV leika tvo æfmgaleiki ef
veðurguðirnir verða okkur
hagstæðir. A laugardag 5.
apríl kl. 14.00 leikur ÍBV við
II. deildarlið Armanns á mal-
arvellinum. Á II. í páskum,
mánudag 7. apríl, leikur IBV
síðan við unglingalandsliðið
og hefst sá leikur kl. 17.00.
IBV væntir þess, að sem
flestir sjái sér fært að mæta á
þessa leiki. ÍBV á ekki ann-
arra kosta völ, til þess að fá
leiki, en að borga undir þau
lið, sem á annað borð vilja
koma hingað til leikja. Kostn-
aður við að fá lið hingað er
tæplega 300 þúsund krónur
og þess vegna neyðumst við
til að selja inn á leikina.
Kostar kr. 1500 fyrir full-
orðna, en kr. 500 fyrir börn.
Knattspyrnuráð Vestmannaeyja.
Annir hjá
Herjólfí
Miklar annir eru í
flutningum hjá Herjólfi
þessa dagana. Upppantað
er í klefa í flestar ferðir
fram á miðvikudag í
næstu viku, en nokkur
klefapláss eru laus n.k.
laugardag. Á þetta við um
ferðir bæði til og frá Þor-
lákshöfn.
Upppantað er einnig
fyrir bíla fram á miðviku-
dag í næstu viku.
Herjólfur mun fara í
slipp mánudaginn 14.
apríl nk. Áætlað er að taka
áætlun snemma á sunnu-
dagsmorgun héðan úr
Eyjum, en er skipið kem-
ur aftur frá Þorlákshöfn
mun það halda rakleiðis til
Reykjavíkur, þar sem
skipið verður botnhreins-
að, málað að utan ef veð-
ur leyfir og vél verður
yfirfarin. Reiknað er með
að þetta sé 2-3 daga vinna,
en fjórða daginn verður
hægt að hlaupa upp á, ef
tafir yrðu. Herjólfur kem-
ur síðan inn í áætlunföstu-
daginn 18. apríl.
Að sögn Olafs Runólfs-
sonar frkv.stj. eru miklar
annir framundan í flutn-
ingum Herjólfs, sá tími að
fara í hönd, sem fólk ferð-
ast mikið og eðlilega þarf
meiri vöruflutninga, þeg-
ar mikið gengur á í at-
hafnalífinu.
Aílahæstu bátar 31. marz
NETABÁTAR TONN LANDANIR
GjafarVE........................... 834,3 27
Valdimar Sveinsson VE.............. 820,1 58
Þórunn Sveinsdóttir VE............. 799,3 22
Bjarnarey VE....................... 771,4 29
Árni í Görðum VE................... 764,6 49
TROLLBÁTAR TONN LANDANIR
Sigurbára VE....................... 433,5 13
Heimaey VE ........................ 313,6 10
BjörgVE ........................... 245,5 22
'"Sjá meira um afla á bls. 3
Ljósm.: Sigurgcir Jónasson