Fréttablaðið - 18.07.2014, Side 19
Heilsa og útlit að Hlíðasmára 17 býður upp á nýja afeitrunarmeðferð sem nýtist fólki með hátt sýrustig í líkamanum, veikt æðakerfi, bjúg,
exem, gigt og appelsínuhúð. Meðferðin hentar til dæm-
is íþróttafólki, fólki í yfirþyngd og reykingafólki en hún
ýtir undir hreinsun og bætir líðan. Tækið sem notað
er við meðferðina nefnist Detox Body Styler og er eina
tækið sinnar tegundar hér á landi. Það er framleitt af
Weyergans í Þýskalandi og hefur gefið góða raun.
Afleiðing hás sýrustigs er hátt hlutfall H(+) jóna. Í
meðferðinni eru þær núllstilltar og í kjölfarið skolast
þær út. „Við byrjum á því að bera raflausnargel á við-
skiptavininn en það býr líkamann undir meðferðina.
Með því erum við að núlla út súrt verndarlag húðar-
innar sem eykur einnig gegnumflæði hennar þannig
að jónaskiptin (rafeindaskiptin) ganga betur. Við-
skiptavinurinn er svo klæddur í svokallaðan detox-
poka en í honum eru neikvæðar súrefnisjónir. Þær
tengjast við jákvæðu jónirnar í líkamanum og núll-
stilla þannig sýrustigið,“ útskýrir Sandra Lárusdótt-
ir, eigandi Heilsu og útlits sem flytur tækið inn. Hún
segir fólk oft upplifa kitlandi tilfinningu í fótunum
og fljótlega í kjölfarið fer hreinsunin af stað. Margir
þurfa því á salerni strax eftir meðferð. Meðferðin
tekur 20–40 mínútur. Mismunandi er hversu oft
þarf að koma en ávallt þarf að láta líða 48 klukku-
stundir á milli skipta.
Erla Gunnarsdóttir hefur góða reynslu af
tækinu. Hún fékk hjartaáfall fyrir ári, aðeins
fjörutíu ára gömul. „Ég hef síðan þurft að auka
hreyfingu en átt erfitt með það út af fótunum
á mér, enda hef ég verið gjörn á að fá bjúg og
beinhimnubólgu. Ég fékk svo tækifæri til að fara
með Söndru út til Þýskalands til að prófa tækið
og fann strax gríðarlegan mun. Ég var sérstak-
lega þrútin eftir ferðalagið en leið eins og ég svifi
eftir meðferðina. Ég sá engan bjúg og gat labbað
um allt í tvo daga, en það hafði ég átt erfitt með
áður. Eftir að tækið kom hingað heim hef ég farið
fimm sinnum og líður miklu betur. Ég finn ekki
fyrir fótapirringi sem hefur plagað mig lengi og
er sömuleiðis laus við þurrkubletti. Húðin er
miklu mýkri og ég finn að það hefur orðið mikil
hreinsun í líkamanum. Þá hef ég glímt við kviðfitu
sem mér finnst hafa minnkað. Ég hef meiri orku
og fæturnir bera mig lengra,“ segir Erla glöð í
bragði. „Ég er mjög spennt að fylgjast með öllum
þessum jákvæðu breytingum,“ bætir hún við.
Boðið er upp á nokkrar mismunandi meðferðir
með tækinu; hefðbundna meðferð, detox-með-
ferð, æðaslitameðferð og endurnærandi með-
ferð. Þá er von á annarri vél innan tíðar sem
vinnur sérstaklega á sogæðakerfinu. Áhugasamir
geta fylgst með á Facebook-síðunni Heilsa og
útlit. Eins er hægt að hafa samband í síma 562-
6969 og 773-6669.
ÖFLUG HREINSUN
HEILSA OG ÚTLIT KYNNIR Afeitrunarmeðferð með Detox Body Styler hentar
fólki með hátt sýrustig, veikt æðakerfi, bjúg og appelsínuhúð svo dæmi séu
nefnd. Erla Gunnarsdóttir hefur góða reynslu af tækinu. Henni fannst hún
svífa eftir fyrstu meðferðina og fæturnir bera hana nú miklu lengra en áður.
EKKERT ÓÞÆGILEGT
Sandra Lárusdóttir ásamt Erlu
Gunnarsdóttur. Erla hefur farið
fimm sinnum í tækið og finnur
mikinn mun á sér. Hún er með
minni bjúg, laus við fóta-
pirring og húðin er miklu mýkri.
Þá finnst henni kviðfita hafa
minnkað.
RATLEIKUR
Ferðafélag Íslands stendur fyrir varanlegum rat-
leik sem komið hefur verið fyrir í Heiðmörk. Rat-
leikurinn er hannaður fyrir börn, unglinga og full-
orðna og stendur allt árið. Nánar á www.fi.is
Eina lífræna fæðubótarefnið í heiminum
sem virkar strax
Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa
eða 6 rauðrófur. 100% lífrænt
1 skot 30 mín. fyrir æfingar, keppnir
blandað í 100 - 150 ml af vatni.
Endist 6 tíma í líkamanum.
Bætt blóðflæði og súrefnis upptaka
30 mín. eftir inntöku.
BEETELITE örvar Nitric Oxide framleiðslu strax.
Bættir árangur íþróttafólks allt að 16-20%
Meiri vöðvasnerpa, orka, þrek, úthald allt að
30% meiri súrefnisupptaka, 16-20% meiri árangur við æfingar
og í keppnum. Betra blóðflæði - allt að 30% æðaútvíkkun.
Meira úthald
WE BEET THE COMPETITION Um
b
o
ð
: w
w
w
.v
it
ex
.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum og World Class. Til í tveimur bragðtegundum
Hunter Kemper 4 Time U.S. Olympic Triathlete
Try it once, and you’ll never compete the same.”
REYKJAVÍKUR
MARAÞON
Laugavegi 63 • S: 551 4422
laxdal.is
Vertu vinur á
Facebook
Skoðið
Yfirhafnir
STÓRÚTSALA
30 – 60% afsláttur