Skessuhorn


Skessuhorn - 03.10.2012, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 03.10.2012, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2012 Stjórn og trún að ar ráð Verka lýðs­ fé lags Akra ness sam þykkti í síð ustu viku að láta á það reyna fyr ir dóm­ stól um hvort verð trygg ing hér á landi stand ist lög. Fé lag ið lét vinna lög fræði á lit um mál ið og varð nið­ ur staða tveggja lög fræð inga sú að veru leg ur vafi léki á slíku. „Fé lag ið mun kosta þenn an mála rekst ur og eru nú þeg ar hafn ar við ræð ur við lög fræði stofu um að reka þetta mál fyr ir dóm stól um. Það ligg ur fyr ir að ósk að verð ur eft ir flýti með ferð hjá dóm stól um vegna þessa máls enda eru mikl ir al manna hags mun­ ir í húfi hvað þetta varð ar. Einnig er mjög mik il vægt að dóm stól ar skeri fljótt og vel úr um það hvort verð trygg ing in stand ist lög eður ei í ljósi þeirra stað reynda að marg ir að il ar sem hafa tjáð sig op in ber lega draga það veru lega í efa að verð­ trygg ing á neyt enda lán um stand­ ist lög,“ seg ir Vil hjálm ur Birg is son for mað ur VLFA. Vil hjálm ur seg ir eng um vafa und ir orp ið að verð trygg ing in hef­ ur leik ið ís lensk heim ili illa á liðn­ um árum og sem dæmi hafi verð­ tryggð ar skuld ir heim il anna hækk­ að um 400 millj arða frá 1. jan ú­ ar 2008 til dags ins í dag. „Og bara í dag var til kynnt að neyslu vísi tal­ an hefði hækk að um 0,76% á milli mán aða sem þýð ir að verð tryggð ar hús næð is skuld ir lands manna hækk­ uðu í síð asta mán uði um 11 millj­ arða króna. Það er sama upp hæð og er á ætl að að fram kvæmd irn­ ar við Vaðla heiða göng kosti,“ seg­ ir Vil hjálm ur. Hann upp lýs ir einnig að með al verð tryggð skuld ís lenskra heim ila í dag sé í kring um 22 millj­ ón ir króna, sem þýð ir að slík lán hafi hækk að um 167 þús und krón ur á milli mán aða. „Það sér hvert ein­ asta manns barn hverslags mis kunn­ ar laust ó rétt læti það er að varpa allri á byrgð verð trygg ing ar inn ar á skuld sett heim ili á með an lán veit­ end ur eru tryggð ir í bak og fyr ir,“ seg ir Vil hjálm ur. Á stæð una fyr ir því að Verka lýðs­ fé lag Akra ness ætl ar að fara í þenn­ an mála rekst ur seg ir Vil hjálm­ ur einnig þá að nú er orð ið ljóst að ís lensk stjórn völd ætla ekki að leið rétta þá stökk breyttu hækk­ un sem orð ið hef ur á verð tryggð­ um hús næð is lán um frá hruni held­ ur hafa þau tek ið á kvörð un um að slá skjald borg um fjár mála stofn an ir, er lenda vog un ar sjóði og aðra sem fjár magn ið eiga. „Það er hins veg­ ar sorg legt til þess að vita að verð­ trygg ing in skuli vera var in með­ al ann ars af stjórn völd um svo ekki sé nú tal að um for ystu Al þýðu sam­ bands Ís lands í þess um efn um. Það á að vera hlut verk ASÍ að gæta hags­ muna sinna fé lags manna og VLFA tel ur að hvergi séu eins mikl ir hags­ mun ir fyr ir al þýðu þessa lands eins og að tek ið verði á verð trygg ingu á neyt enda lán um.“ mm „ Þetta er bara ég sjálf, minn hug ar­ heim ur að mestu leyti,“ seg ir Edda Júl í us dótt ir sem þessa dag ana sýn­ ir mynd ir sín ar í setu stofu og á göng­ um dval ar heim il is ins Höfða á Akra­ nesi. Sýn ing una opn aði Edda um það leyti sem ný hjúkr un ar álma var tek in í notk un í Höfða á dög un um og verð ur hún opin til 12. októ ber nk. Þetta er í fyrsta sinn sem Edda sýn ir mynd ir sín­ ar en hún hef ur ver ið að mála í lang­ an tíma. „Vin ir og kunn ingj ar sem séð hafa mynd irn ar mín ar voru lengi bún­ ir að tala um að ég ætti að halda sýn­ ingu og svo loks ins kom að því að ég dreif í því,“ sagði Edda þeg ar blaða­ mað ur Skessu horns hitti hana að máli á Höfða fyr ir helg ina. Edda hef ur átt við heilsu leysi að stríða vel á ann an ára tug og var stödd í dagdvöl á Höfða þeg ar blaða mað ur átti við hana tal. Gott að fá við ur kenn ing una Mynd irn ar sem Edda sýn ir eru tæp­ lega 40 tals ins. Hún seg ist eiga miklu fleiri mynd ir í sín um fór um, far ið með hell ing heim eft ir að hafa val ið úr á sýn ing una. Gest um á Höfða sem séð hafa mynd irn ar, þykja þær fal leg ar og myndefn ið er fjöl breytt hjá Eddu. Það má því segja að gagn rýnend ur hafi lof að sýn ing una, en hvað finnst Eddu um það. Er ekki gott að fá þessa við ur kenn ingu? „Jú, mér þyk ir mjög vænt um það. Ég get núna sagt að ég hafi ekki vit­ að að ég væri svona góð. Áður hélt ég að það væri fyr ir það að fólk væri svo góð hjart að, það viki lofi á mynd irn ar til að gleðja mig. Núna hugsa ég öðru­ vísi þó það væri gam an að fá mynd list­ ar fólk sem ég met mjög mik ils til að gagn rýna sýn ing una, eins og til dæm­ is Bjarna Þór sem ég hef reynd ar í tvígang sótt nám skeið til. Það er alltaf gott að fá gagn rýni á sín verk.“ Bjó til sín mynda blöð og dúkkulís ur Edda er það sem kall að er „org inal“ Ak ur nes ing ur, ólst upp á Vest ur götu 43 til full orð ins ára. „Ég var ekki göm ul þeg ar ég var kom in með blý­ ant í hönd og far in að teikna mynd­ ir og klippa út dúkkulís ur, sem ég lét tala sam an. Ég var í mín um eig in hug­ ar heimi. Það þurfti ekki að kaupa nein mynda blöð handa mér. Ég bjó þau bara til sjálf. Þeg ar barna skóla nám­ inu lauk fór ég í gagn fræða skól ann, en síð asta vet ur inn í gagn fræða nám­ inu var ég í Skóg ar skóla und ir Eyja­ fjöll um. Frændi minn, Magn ús Gísla­ son, var þar skóla stjóri. Ég býst við að á stæð an fyr ir því að mamma sendi mig í Skóga hafi ver ið sú að henni fannst nauð syn legt að ég fengi næði til að ljúka gagn fræða próf inu og sinna mín­ um hug ar efn um. Við vor um sex systk­ in in og því stund um svo lít il þrengsli á heim il inu. Eft ir gagn fræða próf ið fór ég í Mynd list ar­ og hand íða skól ann. Þeg ar vet ur inn var hálfn að ur fékk ég hettu sótt ina, sem hafði þau á hrif að ég varð að mestu heyrn ar laus á öðru eyr­ anu. Við þessi veik indi missti ég tals­ vert úr og á kvað að fara ekki meira í skól ann þann vet ur. Það var til þess að ekki varð úr frek ari skóla námi hjá mér. Ég sé mik ið eft ir því að hafa ekki hald ið á fram, hefði sjálf sagt get­ að orð ið á gæt ur teikni kenn ari, eins og mig lang aði til að verða. Einn kenn ar­ inn minn, Val gerð ur Briem, sagði að ég væri efni leg.“ Taka því sem að manni er rétt Edda seg ir að eft ir að hún stofn aði heim ili með manni sín um Björg vin Haga líns syni hafi hún ver ið heima­ vinn andi hús móð ir í all lang an tíma, en þau eiga fjög ur börn og barna­ börn in eru orð in mörg. „Ég var að vinna í mötu neyt­ inu hérna á Höfða í tals verð an tíma. Svo gerð ist það fyr ir rúm um fimmt án árum að ég missti heils­ una og fatl að ist upp úr því. Fékk líka Park i son sjúk dóm inn sem ég er bú inn að lifa með í ein ell efu ár. Mað ur verð ur að taka því sem að manni er rétt. Það hefði svo sem get að ver ið verra sem mér var út­ hlut að að þessu leyti.“ Edda seg ir að það hafi einmitt ver ið þeg ar hún missti heils una sem hún fór að gera meira af því að mála mynd ir og fást við hand verk. „Ég hef sótt mik ið fönd rið hjá fé­ lags tarfi aldr aðra við Kirkju braut ina. Gert þar fal lega muni úr mósaik og gleri, til dæm is lampa. Ég hef gef ið þetta allt sam an. Ég hef mál að mest í ol íu krít og mynd irn ar mín ar eru að mestu leyti það sem mér dett ur í hug sjálfri. Ég mála ó sköp lít ið eft­ ir ljós mynd um eða öðr um mó tíf um. Ég held að það megi segja að mitt myndefni sé nokk uð fjöl breyti legt, en nýj ustu mynd irn ar mín ar eru að­ al lega blóma mynd ir,“ sagði Edda þeg ar hún fór um sali Höfða fyr ir helg ina og ræddi um sína mynd list við blaða mann Skessu horns. þá Ég hefði sjálfsagt orðið ágætur teiknikennari Edda Júlíusdóttir sýnir myndir sínar á dvalarheimilinu Höfða Nokkur af verkum Eddu á sýningunni á Höfða. Edda í setustofunni á Höfða þar sem hún sýnir myndir sínar. Edda ásamt einum sýningargesta, Ernu Kristjánsdóttur. Verkalýðsfélag Akraness höfðar dómsmál vegna verðtryggingarinnar Handverk og list á Vesturlandi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.