Skessuhorn - 31.07.2013, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2013
Þar sem verslunarmannahelgin er
framundan og Vestlendingar lík-
legir til að leggja land undir fót á
útihátíðir, sumarbústaði eða í úti-
legur, er vert að minna fólk að fara
varlega í umferðinni. Lífið liggur
ekki á.
Veðurspá næstu daga kveður á um
bjartviðri vestan til og 10-16 stiga
hita. Norðlægum áttum er spáð og
hlýjast verður suðvestanlands. Á
frídegi verslunarmanna, á mánu-
daginn, er spáð vestlægri eða
breytilegri átt. Skýjað með köflum
og stöku skúrir. Hiti 10-15 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hvað ætlar þú að
gera um verslunarmannahelgina?“
Rúmlega helmingur svarenda seg-
ist ætla að halda sig heima, eða
50,21%. „Ég verð að vinna“ sögðu
13,84%, og þá svöruðu „Veit það
ekki“ 13,02%. „Ég ætla að elta góða
veðrið“ svöruðu 10,54%, „Ég ætla á
útihátíð“ svöruðu 8,68% og 3,72%
svöruðu „Ég ætla að vera erlendis“.
Hilmar Þór Harðarson er Vestlend-
ingur vikunnar að þessu sinni.
Hilmar er frá Hamri við Grundar-
fjörð og varð í síðustu viku heims-
meistari í crossfit í flokki 55-59 ára.
Nánar er sagt frá því í blaði dags-
ins.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Útgáfan fram-
undan
SKESSUHORN: Samkvæmt
venju kemur Skessuhorn ekki
út miðvikudag eftir verslunar-
mannahelgi, sem að þessu sinni
ber upp á 7. ágúst. Skessuhorn
kemur því næst út miðviku-
daginn 14. ágúst nk. Starfsfólk
blaðsins verður í fríi vikuna 31.
júlí - 6. ágúst. Starfi ritstjóra
gegnir Heiðar Lind Hansson
fram til 6. ágúst og tekur við
tilkynningum og fréttum á vef
Skessuhorns. Þær berast eftir
sem áður á netfangið magnus@
skessuhorn.is.
–mm
Barkarnautur
seldist strax
BREIÐAFJ: Eyjan Barkarnaut-
ur á Breiðafirði, sem auglýst var
til sölu í Morgunblaðinu á laug-
ardaginn 20 júlí, seldist strax
í upphafi síðustu viku. Þetta
staðfesti Pétur Kristinsson fast-
eigna- og skipasali í Stykkis-
hólmi við Skessuhorn. Barkar-
nautur er um 1,5 kílómetra frá
Litla-Dagvarðarnesi á Fells-
strönd í Dölum. Hún er um
25 hektarar að stærð og er um
7 til 8 mílur frá Stykkishólms-
höfn sem er um 30 mínútna
sigling. Engin mannvirki eru í
eynni en þar er lítilsháttar æð-
arvarp. Auglýst verð eyjunnar
var 17 milljónir króna. Að sögn
Péturs er ekki algengt að eyjur
á Breiðafirði eru boðnar til sölu
en þó komi það fyrir endrum og
eins. Framboð af þeim er hins
vegar nóg því talið er að á firð-
inum séu um 3000 eyjar, hólm-
ar og sker.
–hlh
Eftir einn ei
aki neinn
LBD: Lögreglan í Borgarfirði
og Dölum tók einn ökumann
fyrir ölvun við akstur í liðinni
viku. Kom maðurinn daginn
eftir til að ná í bifreiðina og var
þá látinn blása. Sýndi áfengis-
mælirinn þá heldur meira en
þegar hann var tekinn um 14
klst. áður. Hann var því sendur
heim og sagt að það rynni trú-
lega ekki af honum fyrr en hann
hætti að drekka. Þá voru fimm
umferðaróhöpp í umdæmi LBD
í sl. viku, öll án teljandi meiðsla.
Alls voru fjórtán ökumenn tekn-
ir fyrir of hraðan akstur.
-sko
Liggjandi við
hjólreiðar og vís-
að út í móa
LBD: Lögreglunni í Borgarfirði
og Dölum var tilkynnt um þrjá
ljóslausa hjólreiðamenn undir
Hafnarfjalli sl. sunnudagskvöld.
Þegar lögreglan kom að reið-
hjólamönnunum, sem voru af
erlendu bergi brotnir, kom í ljós
að reiðhjól þeirra voru þann-
ig löguð að hjólreiðamennirn-
ir reyndust nánast vera liggj-
andi við hjólreiðarnar og sáust
þeir því mjög illa fyrir utan ljós-
leysið. Voru þeir stoppaðir og
þeim nánast vísað út í móa með
tjöld sín og búnað. Ætluðu þeir
að bíða birtingar áður en þeir
héldu áfram ferð sinni á þessum
óvenjulegu reiðhjólum.
-sko
Í síðustu viku var hafist handa við að
endurnýja þak Grímshússins í Brák-
arey í Borgarnesi. Að framkvæmd-
Fjöldi gesta naut tónlistar í kirkjunni
í Reykholti um síðustu helgi, en þá
var Reykholtshátíð haldin í 17. sinn.
Rjómablíða var alla helgina, en gest-
ir hvíldu sig á sólinni og nutu fag-
urrar tónlistar inni í kirkjunni. „Það
er alltaf mikil stemmning á þessari
hátíð og veðrið skemmdi ekki fyrir.
Maður hafði smá áhyggjur af því að
veðrið gæti verið tvíeggja sverð og
fólk vildi frekar vera úti við. Tón-
leikagestir létu veðrið hins veg-
ar ekki aftra sér og góð aðsókn var
á alla tónleikana,“ segir Sigurgeir
Agnarsson, en hann var í hlutverki
listræns stjórnanda hátíðarinnar í
fyrsta skipti.
Sigurgeir segir að kunnugir telji
að nýyfirstaðin hátíð sé með þeim
best sóttu. Hann segir Reykholtshá-
tíð mikilvæga fyrir menningarflór-
una og skipta heimafólk í Borgar-
firðinum miklu máli. „Það er lykilat-
riði, þetta er ekki hægt nema heima-
menn leggi hönd á plóg.“
Líkt og áður segir er þetta fyrsta
hátíðin sem Sigurgeir stjórnar. Hann
segist strax vera farinn að huga að
næstu hátíð, þó enn sem komið er sé
það aðeins í huganum. „Ég held þó
að ég geti lofað einhverju spennandi
að ári.“ kóp
Grímshúsið meðan á framkvæmdum stóð í síðustu viku.
Framkvæmt í Grímshúsi
Gatnaframkvæmdir við Ólafsvíkurhöfn
Framkvæmdir standa nú yfir við
Gilsbakka við Ólafsvíkurhöfn á
vegum hafnarsjóðs Snæfellsbæjar.
Skipt var um jarðveg og vatnslagn-
ir og gatan síðan steypt. Að sögn
Björns Arnaldssonar hafnarstjóra
verða alls 2.065 fermetrar sem
steypt verður í verkinu. Verktaki er
ÞG Þorgelsson ehf. en Stafnafell sá
um alla jarðvegsvinnu. Björn segir
ennfremur að einnig verði sett upp
götulýsing við Gilsbakka. Verk-
lok eru áætluð í lok ágúst. Kostn-
aður við framkvæmdirnar er um 16
milljónir króna.
Aðspurður um hvort fleiri fram-
kvæmdir séu á dagskrá segir Björn
að í haust verði byrjað á gerð nýs
vinnuplans á höfninni í Rifi. Þar
verða steyptar gangstéttir ástamt
því sem þökulagt verður frá vigt-
arhúsi að trébryggju. Í Rifshöfn
standa einnig yfir framkvæmdir á
nýju vigtarhúsi og eru þær á loka-
stigi að sögn Björns. af Steypuvinna á Gilsbakka í Ólafsvík.
Listamenn voru heiðraðir undir lok lokatónleika Reykholtshátíðar á sunnudeginum. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Góð aðsókn að Reykholtshátíð
Bristol Bach Choir kom fram á föstudagstónleikunum. Ljósm. bhs.
unum stendur Grímshúsfélagið
sem stofnað var gagngert haustið
2011 til þess að vinna að endurbót-
um á húsinu. Nafn sitt dregur hús-
ið af útgerðarfélaginu Grím hf. í
Borgarnesi sem stóð fyrir byggingu
þess árið 1942 í kjölfar góðs geng-
is báta félagsins á síldveiðum. Húsið
átti að hýsa veiðarfæri báta félags-
ins og skrifstofuhald. Útgerðin var
þó ekki langvinn því síldin hvarf og
halla tók undan rekstrinum. Síðan
drabbaðist húsið niður og ekki síst
eftir bruna, þar sem allir innviðir
þess eyðilögðust. Þó ekki hafi ver-
ið fastmótað enn hvers konar hlut-
verk Grímshúsið fær eftir endur-
nýjun, má ljóst vera að útgerðarsaga
Borgnesinga fær þar verðugan sess
líkt og saga hússins greinir frá.
Að sögn Sigvalda Arasonar, for-
manns Grímshúsfélagsins, hefur
gamla þakið verið flutt til urðunar
að Fíflholtum á Mýrum. Nýja þak-
ið er hins vegar í smíðum við húsið
og verður sett á þegar húsið verður
tilbúið. Verkið annast Ámundi Sig-
urðsson í Borgarnesi. Næsta verk-
efni verður síðan að smíða nýja
glugga í húsið og vonast Sigvaldi til
þess að af því verði fyrr en seinna.
Sigvaldi vildi að endingu hvetja sem
flesta til ganga til liðs við félagið.
Áhugasamir eru beðnir um að snúa
sér til hans eða Sveins G. Hálfdán-
arsonar, varaformanns.
hlh