Skessuhorn - 31.07.2013, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2013
Golfklúbbur Borgarness hélt upp á
40 ára afmæli sitt með viðhöfn í blíð-
skaparveðri við klúbbhús félagsins
á Hamarsvelli í Borgarnesi á laug-
ardaginn. Á annað hundrað manns
lagði leið sína að Hamri en í tilefni
dagsins stóð klúbburinn m.a. fyrir
golfmóti í samstarfi við Gevalia og
hátíðardagskrá.
Hátíðardagskráin samanstóð af
ávörpum og héldu tölu þeir Ingvi
Árnason formaður GB, Jón Ásgeir
Eyjólfsson forseti Golfsambands
Íslands og Ragnar Frank Kristjáns-
son forseti sveitarstjórnar Borgar-
byggðar. Ragnar færði klúbbnum
blómvönd fyrir hönd sveitarfélags-
ins og þá gaf Jón Ásgeir klúbbn-
um háttvísibikar GSÍ, sem kemur
til með að verða veittur árlega þeim
félaga í GB sem þykir sína sérstaka
háttvísi. Þá notaði Jón Ásgeir tæki-
færið og sæmdi tvo félaga í GB gull-
merki GSÍ fyrir þeirra framlag til
golfíþróttarinnar á Íslandi, þá Þórð
Sigurðsson og Jón J. Haraldsson,
en báðir hafa tekið ríkan þátt í upp-
byggingu Hamarsvallar og félags-
starfi GB á síðustu áratugum.
Loks afhenti Guðmundur Sig-
valdason, framkvæmdastjóri Golf-
klúbbsins Leynis á Akranesi, af-
mælisgjöf frá Leynismönnum til
GB. Um var að ræða málverk eft-
ir Bjarna Þór Bjarnason af 16. holu
Hamarsvallar eða „eyjunni“ eins
og holan er kölluð, en hún er ein
þekktasta hola vallarins.
Að dagskrá lokinni var gestum
boðið upp á afmælistertu frá Geira-
bakaríi auk þess sem haldin var
vippkeppni sem flestir gestir tóku
þátt í. hlh
Rektorar Háskólans á Bifröst og
Landbúnaðarháskóla Íslands eru
ekki samstiga þegar kemur að
mögulegri sameiningu háskóla á Ís-
landi. Nokkuð hefur verið rætt og
ritað um sameiningu á háskólastigi
undanfarið og hefur menntamála-
ráðherra, Illugi Gunnarsson, sagt
að hann hyggi á sameiningu, í ein-
hverju formi, á kjörtímabilinu.
Illugi hefur sagt að ekki verði far-
ið í sameiningu Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík, fyrsta kast-
ið að minnsta kosti. Hann sagði hins
vegar í samtali við fréttastofu Rík-
isútvarpsins í síðustu viku að hann
horfði frekar til smærri eininga.
„Við erum með nokkra skóla sem
eru litlir sem hafa verið vandamál
á fjárlögum hér undanfarin ár. Það
er ekkert hægt að neita því. Rekstr-
arform þeirra hefur greinilega ver-
ið erfitt. Það þarf að skoða þetta allt
saman. Ég held að það verði ekkert
undan því vikist að það er ekki hægt
að ýta þessum vanda á undan sér ár
eftir ár, eins og hefur verið gert.“
Skessuhorn leitaði til rektora há-
skólanna á Vesturlandi og spurði út í
afstöðu þeirra í sameiningarmálum.
Rektor LbhÍ vill einn
háskóla
Ágúst Sigurðsson, rektor Land-
búnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) tek-
ur vel í hugmyndir um samein-
ingu háskóla. Hann segir fýsileg-
an valkost að hafa aðeins einn há-
skóla á landinu, Íslenska háskólann,
sem væri með starfstöðvar víða um
land. Ágúst segir að í Landbúnað-
arháskólanum hafi sú skoðun lengi
verið ríkjandi að rétt væri að sam-
eina háskóla. Árið 2009 var gefin út
skýrsla þar sem fram kom að heil-
mikill faglegur ávinningur væri af
sameiningu.
„Ég tel að við eigum að taka af
skarið núna um hvernig á að gera
þetta og fara með þetta alla leið.
Sameining er ekki endilega þannig
að verið sé að leggja eitthvað niður
og í henni geta falist sóknarfæri. Ég
hef talað fyrir því í mörg ár að okkur
dugi alveg Íslenski háskólinn. Inn-
an hans gætu síðan starfað mismun-
andi sjálfstæðar einingar. Við þurf-
um á því að halda að þjappa okkur
saman, en kerfið er allt undirfjár-
magnað, eins og allar kannanir og
útreikningar sýna.“ Ágúst telur að
innan Íslenska háskólans gætu ver-
ið starfstöðvar í Borgarfirði, Reykja-
vík, Akureyri og víðar.
Komið hefur fram að Landbúnað-
arháskólinn hefur farið fram úr fjár-
heimildum síðustu árin. Ágúst seg-
ir að það sem helst skýri hallann sé
sú staðreynd að skólinn rekur þrjár
starfsstöðvar. Mikið hafi verið skor-
ið niður og hagrætt og helst sé horft
til tveggja leiða til að bæta fjárhags-
stöðu skólans.
„Annars vegar að koma allri starf-
seminni fyrir á einum stað. Við
höfum verið að skoða það og höf-
um lagt fram tillögur í þeim efnum.
Fleiri en einn möguleiki eru fyrir
hendi í fækkun starfstöðva skólans
en sá sem gengur lengst er að hafa
alla starfsemina á Hvanneyri. Hins
vegar höfum við átt í viðræðum við
Háskóla Íslands um mikið samstarf
og jafnvel sameiningu.“
Ljóst er að breytingar munu þó
ekki taka gildi fyrir upphaf næsta
skólaárs. Tekið verður á móti nem-
endum í næsta mánuði og Ágúst
segir að þá verði ljóst hvernig
starfseminni verður háttað. Meiri
fyrirvara þurfi þó í breytingar, eigi
að fara í þær.
„Við horfum til þess að í haust
verði teknar ákvarðanir um það
hvernig kerfið líti út til framtíðar.
Ég kalla eftir því.“
Bifröst tekur ekki
frumkvæði
Vilhjálmur Egilsson, rektor Há-
skólans á Bifröst, segir að skipulag
háskóla eigi alltaf að vera til um-
ræðu og enginn geti vikið sér und-
an því að um þau mál sé fjallað.
Hugsanleg sameining þurfi hins
vegar að gerast á forsendum skól-
anna sjálfra og þjónustunnar sem
þeir veita samfélaginu.
„Þegar upp er staðið skipta nem-
endurnir og menntun þeirra mestu
máli auk rannsóknanna og annarr-
ar þjónustu fyrir samfélagið og allir
háskólar verða að hafa það sem sitt
stóra markmið að standa sig í hlut-
verki sínu. Allir háskólarnir eiga
að vera fjárhagslega hagkvæmar
og sjálfbærar einingar. Ekki er allt
fengið með stærðinni því að litl-
ar sérhæfðar háskólastofnanir geta
líka átt fullan tilverurétt.“
Vilhjálmi hugnast ekki hug-
myndin um einn háskóla á Íslandi
með starfsstöðvar víða um land.
„Ég tel að það þurfi að ríkja sam-
keppni á þessu sviði eins og öðr-
um í samfélaginu. Sú samkeppni
sem hefur þróast í uppbyggingu og
rekstri háskóla á Íslandi á síðustu
tveimur til þremur áratugum hefur
skilað miklu til samfélagsins. Há-
skólarnir keppast við að uppfylla
þarfir nemenda og reyna að standa
sig. Miklar og jákvæðar breytingar
hafa orðið á þessum tíma og í heild
eru íslenskir háskólar mun sterk-
ari en áður. Það yrði mikil aftur-
för að hverfa til miðstýringar í há-
skólakerfinu og ávísun á stöðnun
og lakari háskóla.“
Árið 2010 fóru fram viðræður
um sameiningu Háskólans á Bif-
röst og Háskólans í Reykjavík, en
að þeim loknum var ákveðið að
Bifröst yrði sjálfstæð eining. Vil-
hjálmur segir að skólinn hafi ekki
áform um frumkvæði í samein-
ingarmálum. „Verði ákveðið ann-
ars staðar að leita eftir viðræðum
við Háskólann á Bifröst og ein-
hver alvara liggur þar að baki þarf
að sjálfsögðu að fara yfir málið.
Ef leitað verður til Háskólans á
Bifröst af hálfu Hólaskóla er það
væntanlega raunhæfasti mögu-
leikinn til sameiningar við ann-
an skóla en það er annarra að setja
það mál af stað.“
Vilhjálmur segir að engin töfra-
tala sé til fyrir fjölda háskóla á Ís-
landi. „Aðalmálið er að skólarnir
séu sjálfbærar einingar sem standa
sig. Íslenskir háskólar kosta sam-
félagið lítið borið saman við önn-
ur lönd og háskólamenntun á Ís-
landi hefur tekið stórstígum fram-
förum og er um margt til mikillar
fyrirmyndar ekki síst þegar litið er
til hversu fámenn þjóð við erum.“
kóp
Nafn: Ylfa Laxdal Unnarsdóttir.
Aldur: 8 ára.
Skóli: Grundaskóli.
Hvenær lestu? Á kvöldin.
Áttu uppáhalds bók? Reisubók
Ólafíu Arndísar (höf. Kristjana
Friðbjörnsdóttir).
Áttu einhvern uppáhalds höf-
und? Nei.
Hvaða bók lastu síðast? Var-
ið ykkur á Valahelli (höf. Iðunn
Steinsdóttir).
Viltu mæla með einhverri
bók fyrir aðra krakka að lesa?
Skrímslabækurnar eftir Áslaugu
Jónsdóttur.
Sumarlesari
vikunnar
Áfram heldur Sumarlesturinn
á Bókasafni Akraness við Dal-
braut, en sumarlestrinum lýkur
9. ágúst. Starfsmenn bókasafns-
ins vilja hvetja alla krakka til að
vera duglega að lesa á næstunni
því senn líður að lokum átaks-
ins. „Krakkar, verið dugleg að
koma í bókasafnið og skrá lest-
urinn ykkar. Þetta á sérstak-
lega við ykkur sem eruð með í
verkefninu, en hafið ekki kom-
ið og skráð hvað þið hafa verið
að lesa,“ vildu starfsmenn bóka-
safnsins koma á framfæri.
Ásgeir Eyjólfsson forseti GSÍ (t.v.) notaði tækifærið og sæmdi þá Jón J. Haraldsson
og Þórð Sigurðsson gullmerki sambandsins fyrir þeirra framlag til golf-
íþróttarinnar á Íslandi.
Margir sóttu afmælishátíð GB
Gestir hlýða á ávarp Ingva Árnasonar formanns GB.
Ekki eining um sameiningu háskóla
Ágúst Sigurðsson, rektor Lbhí á
Hvanneyri.
Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans
á Bifröst.