Breiðholtsblaðið - 01.04.2008, Side 14
14 Breiðholtsblaðið APRÍL 2008
Það er hvorki af fávísi né leiða
á bláhvíta félagslitnum sem frjáls-
íþróttadeild ÍR verður “græn”
á næstunni heldur af þátttöku í
umhverfisátakinu “Græna tunn-
an” í samvinnu við Íslenska
Gámafélagið.
Markmið verkefnisins er að
hvetja til notkunar á svokallaðri
Grænni tunnu sem auðveldar fólki
að spara tíma, pláss og eldsneyti
með því að flokka endurvinnan-
legt sorp heima hjá sér. Tunnan
er tæmd reglulega af Íslenska
Gámafélaginu. Nánari upplýsingar
um tunnuna er að finna á vefsíð-
unni www.gamur.is. Með átakinu
vill Íslenska Gámafélagið slá tvær
flugur í einu höggi; styðja við
starfsemi félaga og vinna um leið
að útbreiðslu Grænu tunnunnar.
Hafa önnur félög þegar tekið þátt
í góðu samstarfi og er nú komið
að því að breiða út Grænu tunn-
una í Breiðholti. Helgina 17.til 18.
maí munu ungir frjálsíþróttamenn
ÍR ganga í hús og bjóða Breiðhylt-
ingum leigu á Grænu tunnunni.
Forsvarsmenn húsfélaga munu
einnig eiga von á að samband
verði haft við þá í mánuðinum.
Áhugasamir geta einnig haft sam-
band við graenatunnan@gamur.
is merkt “Græna tunnan - ÍR”. Við
hvetjum Breiðhyltinga til að taka
vel á móti ÍR-ingum og gera Breið-
holtið enn grænna.
Grænir ÍR-ingar?
FJÖRKÁLFAR Í FRJÁLSUM OG FÓTBOLTA 5-12 ÁRA
Námskeiðið er fyrir hádegi og ætlað stelpum og strákum fædd árið 1996-2002. Um 2ja vikna námskeið er
að ræða. Á námskeiðinu fá börnin tækifæri til að iðka bæði fótbolta og frjálsar íþróttir í bland við ýmsa leiki og
útiveru. Námskeiðið er kl. 08:30-12:30 með nestisbita kl.10:30. Í íþróttagreinunum tveimur verða börnin að hluta
til saman en einnig verður þeim skipt upp í smærri hópa eftir aldri og kunnáttu í viðkomandi grein. Öllum er veitt
viðurkenning að námskeiði loknu og grillað. Aðstaðan til þessarar íþróttaiðkunar er mjög góð við félagsheimili ÍR
að Skógarseli, t.a.m. er til afnota einn fullkomnasti gervigrasvöllur landsins.
Verð fyrir 2 vikur kr. 10.000.-
Tilvalið er að fara á önnur námskeið eftir hádegi, þá Íþrótta- og leikjanámskeið ÍR eða sundnámskeið hjá Ægi
en kennslan fer fram í sundlaug Ölduselsskóla sem er í 5 mín. göngufæri frá ÍR heimilinu.
Námskeið Tímabil
Námskeið 1 9. - 20. júní
Námskeið 2 23. júní - 4. júlí
Námskeið 3 7. - 18. júlí
ÍÞRÓTTA- OG LEIKJANÁMSKEIÐ ÍR FYRIR 5-9 ÁRA
Þetta vikunámskeið er bæði fyrir stelpur og stráka fædd 1999-2002. Á námskeiðinu verður farið í fullt af leikjum,
s.s. ratleiki, gamla góða útileiki, börnin reyna sig í nokkrum íþróttagreinum, reynt við hornsílaveiðar og ýmsar
heimsóknir svo sem í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Nýjungin í þessu námskeiði er sundkennsla frá Sundfé-
laginu Ægi í sundlaug Ölduselsskóla. Með þessu öllu stuðlum við að fjölbreyttri hreyfingu fyrir börnin og skem-
mtilegri upplifun enda einstaklega áhugavert námskeið á ferð. Þess fyrir utan er umhverfi ÍR stórbrotið og margt
hægt að gera í gönguferðum. Íþróttafræðinemi kennir sundið en hún hefur einnig lært þjálfun hjá ÍSÍ og hjá
Sundsambandi Íslands, sem og kennt sund í nokkru ár hjá Ægi og býr að sundlaugavarðarprófi.
Námskeiðin eru í boði allan daginn, frá kl.09:00-16:00, eða hálfan dag fyrir þá sem þess óska. Börnin hafa
jafnframt kost á að vera í gæslu frá 8:00-09:00 og frá 16:00-17:00 dagana sem þau eru á námskeiðinu og er ekki
greitt sérstaklega fyrir það. Hverju námskeiði lýkur með afhendingu viðurkenningaskjala og grillveislu í hádeginu.
Verð fyrir ½ dag í heila viku er kr. 3.900 og allur dagurinn í heila viku kostar 7.500 kr.
Námskeið Tímabil
Námskeið 1 9. - 13. júní
Námskeið 2 16. - 20. júní
Námskeið 3 23. - 27. júní
Námskeið 4 30. júní. - 4. júlí
Námskeið 5 7. - 11. júlí
Námskeið 6 14. - 18. júlí
Námskeið 7 21. - 25. júlí
Skráning á námskeiðin hefst mánudaginn 5. maí og fer hún alfarið fram í gegnum skrifstofu ÍR á
2. hæð félagsheimilisins frá kl.10-16.
Nánari upplýsingar um námskeiðin hjá Sigrúnu Grétu Íþróttafulltrúa ÍR í síma 587-7080.
Sumarnámskeiðin vinsælu hefjast 9. júní