Fréttablaðið - 21.07.2015, Page 38
21. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30
BESTI BITINN
Í BÆNUM
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Vinkonurnar Auður Finnbogadótt-
ir og Silja Rós Ragnarsdóttir hafa
undanfarið ár verið að sækja um í
leiklistarskóla um allan heim. Þær
komust inn í sama skólann, sem er
í Hollywood, og munu elta draum-
inn út þann 25. ágúst næstkom-
andi. Í kvöld munu þær halda brott-
farartónleika á Café Rosenberg til
styrktar uppihaldi í borg englanna.
„Við komumst báðar inn í The
American Academy of Dramatic
Arts, sem er elsti academy-leik-
listarskólinn í Bandaríkjunum. Þar
lærðu meðal annars Kim Catrall,
Paul Rudd og Grace Kelly leiklist.
Það voru sjö þúsund manns sem
sóttu um skólann í ár en aðeins
130 sem komust inn þannig að við
erum alveg í skýjunum. Við feng-
um líka báðar skólastyrk fyrir
áheyrnarprufurnar en það eru
aðeins 30 nemendur sem fá hann,“
segir Silja Rós.
Alls eru þær þrjár frá Íslandi
sem hefja nám í skólanum í
haust. Sú þriðja heitir Berta
Andrea Snædal og er um
þessar mundir að leika í
kvikmynd úti í Bandaríkj-
unum. Silja býst við að þær
verði allar saman í bekk.
„Okkur gekk öllum mjög
vel í prufunum og það
er líklegast að við verð-
um allar saman í bekk. Við Auður
vorum búnar að sækja saman um
skóla seinasta árið þannig að það
er mjög gaman að hafa komist
inn í sama skóla og verða vonandi
saman í bekk.“
Það er ekki ódýrt að fara í nám
erlendis, sérstaklega í Bandaríkj-
unum, og því hafa stelpurnar verið
að safna sér fyrir skólanum lengi.
„Ég er í þremur vinnum eins og er.
Svo tek ég lán frá LÍN. Skólagjöld-
in úti eru náttúrulega allt önnur en
þau sem við þekkjum hérna heima.
Við verðum á heimavist fyrstu önn-
ina en svo í janúar ætlum við að
finna okkur íbúð og vonandi náum
við að spara okkur einhvern pen-
ing með því. Styrkurinn sem við
fengum kemur sér líka einstaklega
vel,“ segir Silja.
Tónleikarnir hefjast klukk-
an níu í kvöld og verða eins
fyrr segir á Café Rosenberg
á Klapparstígnum. Það kost-
ar aðeins 2.000 krónur inn
en það verður engi posi á
staðnum. Hljómsveitin
Four Leaves Left hitar upp
fyrir stelpurnar. Jón Birg-
ir Eiríksson spilar undir
á píanó og Grétar Örn
Axelsson verður á gítar
ásamt Silju. Stelpurnar
ætla að flytja þekkt lög
í bland við frumsamið
efni.
gunnhildur@frettabladid.is
Bestu vinkonur fengu
skólastyrk í Hollywood
Auður Finnbogadóttir og Silja Rós Ragnarsdóttir fl ytja til Los Angeles eft ir mánuð
þar sem þær munu hefj a leiklistarnám. Þær halda styrktartónleika fyrir sig í kvöld.
LÆRA LEIKLIST Í HOLLYWOOD Silja Rós og Auður flytja til Bandaríkjanna eftir mánuð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GRACE KELLY Leikkonan
fræga sótti sama skóla og
stelpurnar komust inn í.
PAUL RUDD Maura maðurinn
stundaði nám við American
Academy of Dramatic Arts.
Ég er í þremur
vinnum eins og er. Svo
tek ég lán frá LÍN. Skóla-
gjöldin úti eru náttúru-
lega allt önnur en þau
sem við þekkjum hérna
heima.
Egg Benedict á Snaps með ískaldri
mímósu og pönnukökur í eftirrétt á
laugardögum.
Þórunn Ívarsdóttir, tískubloggari
„Þetta var rosa gaman, ég hef
allavega aldrei komið fram á
svona skipi áður,“ segir söngkon-
an Jóhanna Guðrún Jónsdóttir.
Hún kom fram ásamt hljómsveit á
tveimur tónleikasýningum um borð
í skemmtiferðaskipinu Sea Princess
um helgina sem lá við Skarfabakka.
„Ég vissi frekar lítið hvað við
vorum að fara að gera, við vorum
bara tilbúin með prógramm. Þetta
var skemmtilegt ævintýri,“ segir
Jóhanna Guðrún. Nokkur hundruð
manns voru á hvorum tónleikum
fyrir sig en skipið tekur tæp-
lega tvö þúsund manns. Skemmt-
anastjóri skipsins bað sérstaklega
um að prógrammið væri blandað,
íslenskt og erlent. „Við tókum góða
blöndu og fólkið tók vel í íslensku
lögin,“ bætir Jóhanna Guðrún við.
Hún segir þó að meðalaldur gesta
hafi verið frekar hár. „Meðalald-
urinn hefur örugglega verið um
sextugt eða sjötugt eins og oft er á
svona skemmtiferðaskipum. Fólkið
var samt afar þakklát og allir voru
í góðu stuði.“
Skipið var í höfn þegar tónleik-
arnir fóru fram en voru Jóhanna og
félagar ekkert smeyk um að skip-
ið myndi sigla af stað á meðan þau
væru innanborðs? „Upphaflega var
ég með smá áhyggjur því að eftir
að sjóið kláraðist höfðum við mjög
tæpan tíma til að koma okkur í
burtu. Fólk var þó enn að streyma
inn í skipið þegar við kláruðum
þannig að þetta reddaðist,“ segir
Jóhanna Guðrún og hlær. - glp
Kom fram á tónleikum á skemmtiferðaskipi
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng fyrir gesti skemmtiferðaskipsins Sea Princess um helgina.
SÖNG Á SKIPI Tónleikagestir á skipinu
kunnu vel að meta Jóhönnu Guðrúnu
og hljómsveitina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-0
6
1
C
1
7
5
3
-0
4
E
0
1
7
5
3
-0
3
A
4
1
7
5
3
-0
2
6
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K