Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2010, Síða 29
MÁNUDAGUR 20. september SVIÐSLJÓS 29
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
TVÆR KONUR
2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR
Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur.
Hentar öllum, stöðvar sykurinn
áður en hann verður að fitu.
STÖÐVIÐ SYKUR
OG KOLVETNI
NÝJUNG! BRENNIÐ FITU
30 Days
120 töflur ásamt
samnefndu
kremi vinnur á
appelsínuhúð.
30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm
(60 eða 150)töflur gegn kviðfitu
gefur 35% meiri virkni.
Valin
heils
uvara
ársin
s
2008
&
B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s
LEIKUR FREDDIE
MERCURY
N ýjustu fregnir frá Hollywood herma að spé-fuglinn Sacha Baron Cohen ætli að taka að sér hlutverk Freddies Mercury í væntan-legri mynd byggðri á ævi söngvarans. Mer-
cury var söngvari stórsveitarinnar Queen en hann
lést úr alnæmi í nóvember árið 1991.
Hlutverkið er ólíkt öllu því sem Cohen hefur tek-
ið að sér fram að þessu en hann frægastur fyrir mjög
grófan grínleik í myndunum Borat og Bruno. Ekki
hefur verið greint frá því hvort Cohen muni syngja
sjálfur í myndinni eða hvort rödd Mercurys verði
notuð þó að það sé líklegt, vegna þess hve einstök
rödd hans var.
Það er Peter Morgan sem skrifar handritið en
hann hefur skrifað handrit mynda eins og The Last
King of Scotland, The Other Boleyn Girl og Frost/Nix-
on. Myndin fjallar um mótunarár Queen og fram að
Live Aid-tónleikunum 1985 en frammistaða hljóm-
sveitarinnar á þeim tónleikum er talin ein sú besta í
rokksögunni.
Freddy og Sacha
Eru ekki svo ólíkir.
Sacha Baron Cohen í hlutverki söngvara Queen:
ÁTÖK
Á STRÖNDINNI
A dam Lambert var allt annað en sáttur þegar ljósmyndari ónáðaði hann og vini hans á South Beach í Flórída fyrir helgi. Lambert, sem er 28 ára, varð svo pirrað-
ur á áreitni ljósmyndaranna að hann lenti í átök-
um við einn þeirra. Lambert reyndi að ná mynda-
vél ljósmyndarans smávaxna en án árangurs.
„Oj, paparassa-ljósmyndarnir eyðilögðu ró-
legu kvöldstundina mína á ströndinni,“ sagði Idol-
stjarnan Lambert um atvikið á Twitter-síðu sinni.
„Þeir eru mjög góðir í því að ögra manni en það
eru engar myndir eða upptökur af dónaskapn-
um sem þeir spúa. Ha, ha, jæja. Ég missti stjórn á
skapinu í smástund en það var frábær tilfinning.“
ÁTÖK Lambert reynir að
komast aftan á ljósmyndarann.
Adam Lambert ósáttur við ljósmyndara:
SÖGÐ HEIMILISLAUS
Leikarinn Randy Quaid og eig-inkona hans Evi eru ekki í góðum málum eftir að þau voru handtekin fyrir innbrot
á laugardag í Santa Barbara í Banda-
ríkjunum. Húsið sem þau brutust inn
í reyndist vera gamla heimilið þeirra.
Eigandi hússins gerði lögreglu við-
vart en hann sagði þau búa þarna
í leyfisleysi og væru bókstaflega að
eyðileggja húsið. Quaid-hjónin voru
kærð fyrir innbrot og fyrir að fara inn í
einkaeign án þess að hafa leyfi til þess. Evi Quaid var þar að auki kærð fyrir
að streitast á móti við handtöku. Þegar eigandinn hringdi í lögregluna sagði
hann Quaid-hjónin vera einhverja heimilisleysingja sem hefðu brotist inn.
Talið er að hjónin hafi skemmt húsið það illa að það eigi eftir að kosta
mörg þúsund dollara að gera við það. Hjónin voru handtekin í fyrra fyrir að
reyna að svíkja tíu þúsund dollara út úr veitingamanni.
Kærð fyrir að brjótast inn í gamla húsið sitt:
Skrautleg hjón Randy og Evi
Quaid eru fremur skrautleg hjón.