Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1932, Síða 13
Verzlunarskýrslur 1930
11
Innflutningur á fóbaki hefur lítið vaxið á undanförnum árum og
samanborið við mannfjölda hefur tóbaksneyzla hérumbil staðið í stað.
Innflutningur á áfengu öli (með yfir 2V4°/o af vínanda að rúmmáli)
hefur verið bannaður síðan 1912, en framan af stríðsárunum gerðist
innflutningur á óáfengu öli allmikill og eins fyrstu árin effir stríðslokin,
en síðustu árin hefur hann farið minnkandi, enda er nú líka komin á
innlend framleiðsla í þessari grein. I löflunni er innlenda framleiðslan
tekin með síðan 1919. Er hún nú orðin miklu meiri en innflutningurinn
og árið 1930 var hún 682 300 lítrar. Það ár var neyzlan af öli meiri en
nokkru sinni áður.
Vínandi og vínföng eru einungis flutt inn af Afengisverzlun ríkisins.
Var þessi innflutningur mjög lítill fyrst eftir að aðflutningsbannið komst
á, en síðan hefur hann aukizt töluvert. Hækkun á vínfangainnflutningn-
unr 1922 og árin þar á eftir stafar af undanþágunni, sem veitt var frá
bannlögunum fyrir létt vín (Spánarvín). Mengaður vínandi er ekki talinn
hér heldur í V. flokki.
1/efnaður og fatnaður. Af þeim vörum , sem hér eru taldar, var
flutt inn 1930 fyrir rúml. 12 milj. kr. og er það nál. 17 0/o af öllum inn-
flutningi það ár. Er það með mesta móti í samanburði við undanfarin
ár. Helzlu vörur, sem falla hér undir, eru taldar hér á eftir og sýnt, hve
mikið hefur flutzt inn af þeim nokkur síðustu árin (í þús. kg).
1926 1927 1928 1929 1930
Ullargarn 12 n 10 n 8
Baðmuliargarn óg tvinni . . . 10 9 12 13 10
Ullarvefnaður 63 48 57 54 63
Baðmullarvefnaður 114 96 124 159 142
Léreft 49 41 53 61 62
Prjónavörur 54 58 73 70 67
Línfatnaður 18 19 18 22 29
Karlmannsfatnaður úr ull . . 30 26 26 47 48
Karlmannsslitfatnaður 28 25 53 59 69
Kvenfatnaður 4 8 13 19 25
Sjóklaeði og olfufatnaður . . . 42 34 41 42 23
Regnkápur 12 9 9 9 16
Skófatnaður úr skinni 86 82 106 142 120
— — gúmi 100 70 114 115 120
— — öðru efni . . 17 8 16 19 19
Heimilismunir og munir til persónulegrar notkunar. Innflutningur
af vörum þeim, sem þar til teljast, nam tæpl. 6 milj. kr. árið 1930 eða
8V3 o/o af öllum innflutningnum. Helztu vörurnar, sem hér falla undir,
eru taldar hér á eftir, og samanburður gerður á innflutningi þeirra
nokkur síðustu árin (í þús. kg).