Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1932, Side 17
15
Verzlunarskýrslur 1930
1926 1927 1928 1929 1930
Sútuð skinn og leður 42 29 33 41 32
Kókosfeiti 589 493 528 575 592
Jurtaolía 152 154 00 174 190
Aburðarolía 509 525 930 1 160 755
Prentpappír og skrifpappír . . 205 222 338 340 387
Umbúðapappír og smjörpappír 222 193 236 283 297
Stangajárn 1 218 566 1 304 2 878 1 608
Járnpípur 555 472 836 1 044 964
Sléttur vír 141 81 89 153 129
Rafmagnsvélar og áhöld .... 103 101 128 209 283
Bifreiðahlutar 78 51 83 120 126
Mótorhlutar 49 28 51 119 60
Af bifreiðum í heilu lagi voru flultar inn 148 árið 1926, 130 árið
1927, 240 árið 1928, 462 árið 1929 og 403 árið 1930.
3. Útfluttar vörutegundir.
Exportation des marchandises.
í töflu II B (bls. 29-34) er skýrí frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
skyldleika þeirra, á sama hátt sem innflutfu vörurnar, og er yfirlit yfir
þá flokkaskiftingu í föflu I (bls. 1).
3. yfirlit (bls. 16*) sýnir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan
hefur numið árlega síðan um aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
því, frá hvaða atvinnuvegi þær stafa. Ennfremur er sýnt með hlutfalls-
tölum, hve mikill hluti verðmagnsins stafar árlega frá hverjum atvinnu-
vegi. Hefur hluldeild sjávarafurða vaxið, en Iandbúnaðarafurða minnkað.
Fram að 1920 námu landbúnaðarvörurnar að meðaltali rúml. ]/5 af
útflutningsverðmagninu, en 1921—25 námu þær ekki nema 13°/o að
meðaltali, en fiskiafurðirnar aftur á móti 85 °/o. Árin 1928 og 1929
námu fiskiafurðirnar jafnvel 88 °/o, en landbúnaðarafurðirnar ekki nema
11 o/o.
Fiskiafurðirnar eru þannig yfirgnæfandi í útflutningnnm. Hafa þær
að verðmagni verið 54!/2 milj. kr. árið 1930. 4. yfirlit (bls. 17*) sýnir,
hve mikill fiskútflutningurinn, að undanskilinni síld, hefur verið árlega
síðan um aldamót. Hefur hann alls 5 — 6-faldast á þessu tímabili. Þó
hefur útflutningur á fullverkuðum saltfiski ekki vaxið nærri eins mikið,
en aukningin verður þeim mun meiri á Labradorfiski, óverkuðum salt-
fiski og ísfiski.