Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1932, Blaðsíða 20
18
Verzlunarskýrslur 1930
Útflutningur af síldarlýsi hefur aukizt afarmikið á síðustu árum, en
úfflutningur hákarlslýsis er orðinn hverfandi lítill.
Hvalafurðir voru allmikið útfluttar héðan af landi á fyrsta áratug
þessarar aldar, en síðan 1915 hefur verið bannað að reka hvalveiðar
héðan af landi og hefur því sá útflutningur fallið í burtu síðan.
Afurdir af veiðiskap og hlunnindum hafa aðeins numið um '/2 °/o
af verðmagni útflutningsins síðustu árin. Helzfu vörutegundir, sem hér
falla undir, eru æðardúnn, selskinn og rjúpur. Af þeim hefur útflutning-
urinn verið síðustu árin:
ÆOardúnn Selskinn Rjúpur
1926 .......... 3 104 kg 3 414 kg 120 805 kg
1927 .......... 3 765 — 4 011 — 126 325 —
1928 .......... 2 895 — 5 227 — 24 000 —
1929 .......... 2 691 — 1 800 — 2 270 —
1930 ........ 2 040 - 1 987 — )) —
Landbúnaðarafurðirnar eru annar aðalþáttur útflufningsins. Árið
1930 voru þær útfluttar fyrir tæpl. 5 milj. kr., en það var þó ekki nema
rúml. 8 o/o af útflutningsverðmagninu alls það ár. Helztu útflutningsvör-
urnar eru saltkjöt, ull, saltaðar sauðargærur og lifandi hross. Síðan um
aldamót hefur útflutningur þessara tegunda verið:
Saltaðar
Saltkjöt Ull sauðargærur Hross
1901—05 meöaltal 1 380 þús. kg 724 þús. kg 89 þús. tals 3 425 tals
1906-10 — 1 571 — — 817 — — 179 — — 3 876 —
1911 — 15 — 2 793 — — 926 — — 302 — — 3 184 —
1916-20 — 3 023 — — 744 — — 407 — — 2 034 —
1921 -25 — 2 775 — — 778 — — 419 — — 2 034 —
1926-30 — 2 345 — — 682 — — 392 - — 876 —
1926'........... 2 268 — — 901 — — 319 — — 490 —
1927 .......... 2 570 — — 719 — — 384 — — 1 191 —
1928 .......... 2 251 — — 699 — — 436 — — 1 319 —
1929 .......... 2 347 — — 786 — - 414 — - 666 —
1930 .......... 2 288 — — 306 — — 406 — — 715 —
Sauðargærur hafa sfundum verið gefnar upp í þyngd en ekki tölu.
Hér er þyngdinni breytt í fölu þannig, að gert er ráð fyrir, að hver
gæra söltuð vegi að meðaltali 2 kg.
Síðustu árin er einnig farið að flytja út töluvert af frysfu og kældu
kjöti. Var sá útflutningur árið 1926: 184 þús. kg, 1927: 389 þús. kg,
1928: 349 þús. kg, 1929: 694 þús. kg, 1930: 875 þús. kg.
Iðnaðarvörur útfluttar eru aðallega prjónles (einkum sokkar og
vettlingar) og kveður sáralítið að þeim útflutningi.
Undir flokkinn „Ymislegt“ falla þær vörur, sem ekki eiga heima
annarsstaðar, svo sem útlendar vörur, skip, bækur, frímerki o. fl.