Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1932, Side 21
Verzlunarsltýrslur 1930
19*
4. Viðskifti við einstök lönd.
L’échange avec Ies pa\>s étrangers.
5. yfirlit (bls. 20*) sýnir, hvernig verðupphæð innflutiu og útflufiu
varanna hefur skifzt 4 síðustu árin eftir löndunum, þar sern vörurnar
hafa verið keypfar eða seldar. Síðari hluti töfiunnar sýnir, hvern þáit
löndin hafa tekið hlutfallslega í verzluninni við ísland samkvæmt íslenzku
verzlunarskýrslunum.
Langmesiur hlufi innfluttu vörunnar kemur frá Danmörku og Bret-
landi, eða um 3/s hlutar alls innflutningsins. Venjulega hefur Danmörk
verið heldur hærri en Bretland, en á síðari árum hefur Bretland þó
stundum verið hærra, svo sem 1928. Næst þessum löndum ganga Þýzka-
land og Noregur með 16 og 11 °/o af öllum innflutningnum 1930. Því
næst kemur Svíþjóð með 5 °/o og Spánn, Bandaríkin og Holland með
2-3 0/0.
Af verðmagni útflutningsins hefur árið 1930 rúmlega J/3 komið á
Spán og er hann langhæsfur af útflutningslöndunum, enda útflutningur
aukizt þangað afarmikið. Fyrir stríðið var útflutningur affur á móti lang-
mestur til Danmerkur (um 2/s af öllum úfflufningnum), en á stríðsárunum
síðari tók að mestu fyrir allan útflutning þangað og síðan hefur hann
ekki náð sér aftur í hið fyrra horf. Síðustu árin hefur hann jafnvel farið
síminnkandi og árið 1930 fóru aðeins 4 °/o af útflutningnum til Dan-
merkur, en aftur á móti tók Bretland við 15 °/o af útfiutningnum. Italía
tók við 13 0/0 af útflutningi 1930, þar næst koma Noregur og Þýzkaland
með 8 0/0 og Svíþjóð og Portúgal með 6 °/o, en þar á eftir Danmörk með
40/0 og Bandarlkin með 3 °/o af útflutningnum.
A 5. yfirliti sést, að miklu meira er flutt út frá Islandi til Spánar,
Italíu og Portúgals heldur en innflutt er frá þessum löndum, en aftur á
móti er miklu meira innflutt frá Danmörku, Bretlandi og Þýzkalandi
heldur en útflutt er þangað.
í töflu IV A og B (bls. 40 — 84) eru taldar upp allar helztu inn-
fluttar og útfluttar vörutegundir og sýnt hvernig inn- og útflutningsmagn
hverrar vöru skiftist eftir löndum. I töflu III (bls. 35-39) er verðmæti
innflutningsins frá hverju landi og útflutningsins til þess skift eftir vöru-
flokkum. Og loks eru í töflu V (bls. 84 — 100) taldar upp með magni og
verði helztu vörutegundirnar í innflutningnum frá hverju landi og í út-
flutningnum til þess.