Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1932, Page 26
24
Verzlunarsliýrslur 1930
tollarnir eru bornir saman við verðmagn inn- og útflutnings sama árið,
þá má bera þau hlutföll saman frá ári til árs. Sýna þau hve miklum hluta
af verðmagninu tollarnir nema á ári hverju, og þess vegna hvort tollgjöldin
hafa raunverulega hækkað eða lækkað. I eftirfarandi yfirliti er slíkur sam-
anburður gerður fyrir árin síðan um aldamót og sýnt hve miklum hundr-
aðshluta af verðmagni innflutnings og úlflutnings inn- og útflutningstoll-
arnir nema á ári hverju.
Innflutn.- Útflutn.- lnnflutn.- Útflutn.-
tollar tollar tollar tollar
1901-05 meðalt. 6.3 °/o 0.9 % 1925 lO.o % 1.6 °/0
1906-10 — 6.9 — 1.3 — 1926 10.7 — 1.7 —
1911—15 — 6.5 — 1.0 — 1927 9.2 — 1.9 —
1916-20 — 3 9 - (+ st.) 1.0 — (+ st.) 1928 9.8 — 1.7 —
1921—25 - 7.2 - (+ st.) 1.9 - (+ St.) 1929 10.o — 1.7 —
1926—30 — 10.1 — 1.7 — 1930 10.8 — 1.8 —
Merkið (+ st.) táknar, að þar við bætist stimpilgjaldslollurinn
(1918—21). A stríðsárunum fóru tollarnir í raun og veru lækkandi, vegna
þess að þeir fylgdust ekki með verðhækkuninni. En síðan 1919 hafa út-
flutningstollarnir verið yfirleitt hærri heldur en fyrir stríðið, og innflutn-
ingstollarnir síðan 1924.
7. Tala fastra verzlana.
Nombre des maisons de commerce.
Skýrsla um tölu fastra verzlana í hverju lögsagnarumdæmi á land-
inu árið 1930 er í töflu VII (bls. 103).
Síðan um aldamót hefur tala fastra verzlana verið þessi:
Heild- salar Kaup- túna- verzl. Sveita- verzl- anir Sam- tats Heild- salar Kaup- túna- verzl. Sveita vcrzl- anir Sam- tals
1901 — 05 meðalt. — 273 27 300 1926 . . 62 803 32 897
1906 -10 — — 416 31 447 1927 . . 64 833 35 932
1911 — 15 — 16 476 24 516 1928 . . 65 839 39 943
1916 -20 — 36 658 33 727 1929 . . 71 898 41 1 010
1921 -25 — 50 752 37 839 1930 . . 76 922 45 1 043
1926 -30 — 68 859 38 965
Föstum verzlunum hefur sífelt farið fjölgandi. Einkum var fjölgunin
mikil á stríðsárunum. Heildverzlunum og umboðsverzlunum hefur fjölgað
tiltölulega meira en öðrum verziunum. Erlendar eru þær vcrzlanir taldar,
er eigandinn er búsettur í Danmörku. Þessum verzlunum hefur farið
fækkandi á síðari árum. I byrjun aldarinnar voru þær taldar 50, í stríðs-
byrjun (1914) 43, eftir stríðslok (1919) 36 og 10 árið 1930.