Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1934, Side 13
Verslunarskýrslur 1932
9*
Kornvöruinnflutningurinn 1932 hefur verið töluvert minni heldur en
tvö næstu ár á undan.
Auk kornvaranna eru þessar vörur helstar, sem falla undir mat-
vöruflokkinn, og hefur innflutningur þeirra verið svo sem hér segir hin
síðari ár (í þús. kg):
1928 1929 1930 1931 1932
Smjörlíki 99 120 149 92 »
NiðursoÖin mjólk 278 368 408 297 38
Ostur 111 147 99 55 »
Egg 60 57 96 97 56
Harl brauð 134 133 112 118 51
Kringlur og tvíbökur . . . 22 17 13 14 2
Kex og kökur 194 228 262 168 4
Jarðepli 1 778 1 864 2 298 2 500 2 235
Epli ný 187 205 206 197 222
Olóaldin (appelsínur) . . . 176 277 284 240 175
Rúsínur 140 153 148 140 29
Sveskjur 151 147 154 139 34
Kartöflumjöl 174 156 138 152 170
Avextir niðursoðnir 67 115 119 117 7
Ávaxtamauk (syltetöj) . . . 90 125 129 120 24
Sagógrjón og sagómjöl .. 99 97 105 . 109 158
Vmsar af þessum vörum hafa fallið burtu eða minkað stórlega
1932 vegna innflutningshaftanna.
Munaðarvörur hafa verið kallaðar þær neysluvörur, sem ekki hafa
verið taldar nauðsynjavörur, svo sem kaffi, te, súkkulað, sykur, tóbak,
áfengir drykkir, gosdrykkir o. fl. Þetta eru þær vörur, sem tollarnir hafa
aðallega verið lagðir á, enda þótt sumar þeirra megi nú orðið telja
nauðsynjavörur, svo sem sykur. Af þessum vörum nam innflutningurinn
árið 1932 3.4 milj. kr. eða rúml. 9 °/o af öllum innflutningnum. Er það
að verðmagni minna heldur en næsta ár á undan, en hlutfallslega meira.
2. yfirlit (bls. 10*) sýnir árlega neyslu af helstu munaðarvörunum á
hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin, bæði
í heild sinni og samanborið við mannfjölda. Er þar eingöngu um inn-
fluttar vörur að ræða, þar til á síðari árum, að við bætist innlend fram-
leiðsla á öli og kaffibæti. Brennivín var talið með vínanda meðan það
fluttist inn, þannig að lítratala brennivínsins var helminguð, þar eð það
hefur hérumbil hálfan styrkleika á við hreinan vínanda, svo að tveir lítrar
af brennivíni samsvara einum lítra af vínanda.
Á yfirlitinu sést, að árið 1932 hefur minkað neysla af öllum þess-
um munaðarvörum, nema vínanda.
Innflutningur á sykri hefur vaxið afarmikið á síðustu 50 árum.
Neysla á mann hefur fimmfaldast og var orðin meir en 40 kg á mann