Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1934, Page 22
18
Verslunarskýrslur 1932
4, yfirlit. Fiskútflutningur (að undanskilinni síld) 1901 — 1932.
Exportation de poisson (sauf hareng) 1901—1932.
Fullverkaöur Óverkaður ísvarinn
saltfiskur saltfiskur fiskur Fiskur alls
poisson salé poisson salé poisson total
préparé non préparé en glace
1000 kg 1000 kg 1000 lig 1000 Ug
1901 — 1905 meðaltal tnoyenne 14 625 331 )) 14 956
1906—1910 — — 16 993 414 )) 17 407
1911—1915 — — 22 398 3 189 1 651 27 238
1916-1920 - — 20 386 4 651 4 100 29 137
1921 1925 — — 37 493 11 016 7 065 55 574
1926—1930 — — 49 917 20 719 9 071 79 707
1928 55 013 28 689 7 861 91 563
1929 52 792 27 447 8 751 88 990
1930 51 324 20 953 11 241 83 518
1931 54 801 16 037 18 808 89 646
1932 57 686 18 783 23 314 99 783
Útflutningur af síldarlýsi hefur aukist afarmikið á síðustu árum, en
útflutningur hákarlslýsis er orðinn hverfandi lítill. Útflutningur þorskalýsis
hefur verið miklu minni tvö síðustu árin heldur en undanfarin ár.
Hvalafurðir voru allmikið útfluttar héðan af landi á fyrsta áratug
þessarar aldar, en síðan 1915 hefur verið bannað að reka hvalveiðar
héðan af landi og hefur því sá útflutningur fallið í burtu síðan.
Afurðir af veiðiskap og hlunnindum hafa aðeins numið um t/3 °/0
af verðmagni útflutningsins árið 1932. Helstu vörutegundir, sem hér falla
undir, eru æðardúnn, selskinn og rjúpur. Af þeim hefur útflutningurinn
verið síðustu árin:
Æöardúnn Selslúnn Rjúpur
1928 ........ 2 895 ltg 5 227 kg 24 000 kg
1929 ........ 2 691 — 1 800 — 2 270 —
1930 ......... 2 040 — 1 987 — » —
1931 ......... 2 578 — 1 804 — » —
1932 ......... 1 566 — 3 432 — » —
Landbúnaðarafurðirnar eru annar aðalþáttur útflutningsins. Árið
1932 voru þær útfluttar fyrir 3!/4 milj. kr., en það var þó ekki nema
6.8 o/o af útflutningsverðmagninu alls það ár. Helstu útflutningsvörurnar
eru saltkjöt, fryst og kælt kjöt, ull og saltaðar sauðargærur. Síðan um
aldamót hefur útflutningur þessara tegunda verið: