Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1963, Qupperneq 14
12
Verzlunarskýrslur 1961
Tveir fremri dálkar yfirlitsins hér fyrir ofan sýna verðbreytingar. Reikn-
aður á meðalverði 1960 nemur innflutningur 1961 2 943 987 þús. kr. og útflutn-
ingurinn 2 503 492 þús. kr., eins og áður segir. En samsvarandi raunverulegar
tölur eru: Innflutningur 3 228 426 þús. kr. og útflutningur 3 074 725 þús. kr. Frá
1960 til 1961 hefur því, ef hvort árið um sig er tekið í heild, orðið 9,7% verðhækkun
á iunflutningsvörum, en 21,0% verðhækkun á útflutningsvörum. Sé innflutningi
skipa sleppt bæði árin, er um að ræða 5,6% verðhækkun á innflutningsvörum, og
er það talin hafa verið hækkun innflutningsverðsins 1961, en ekki fyrr greind 9,7%.
Hafa verður í huga í sambandi við þessar tölur, að nýtt gengi kom til framkvæmda
4. ágúst 1961, og að innflutningur og útflutningur alls ársins er í verzlunarskýrslum
reiknaður á því gengi. Þetta þýðir, að ef engin breyting hefði orðið á verðlagi iun-
flutningsvara og útflutningsvara, reiknað í erlendum gjaldeyri, frá 1960 til 1961,
þá hefði innflutningsverð hækkað 12—13% og útflutningsverð um 13%. En í reynd
hefur innflutningsverð hækkað 5,6% og útflutningsverð 21,0%. Hefur þannig verð
innflutningsvara lækkað lítið eitt, reiknað í erlendum gjaldeyri, en þó nokkur
hækkun orðið á verði útflutningsvara. Yerðhlutfall útfluttra vara og innfluttra vara
hefur samkvæmt þessu breytzt um 14,6% landinu í hag. Af ýmsum ástæðum verð-
ur að nota þessa niðurstöðu með varfærni.
Síðan 1935 hefur þyngd alls innflutnings og útflutnings verið talin
saman. Árin 1935—1950 er þyngd innflutnings í verzlunarskýrslum nettóþyngd,
en frá og með árinu 1951 er hún brúttóþyngd, eins og gerð er grein fyrir í 1. kafla
inngangsins. í töflunni hér á eftir liefur því innflutningurinn 1951—1961 verið
umreiknaður til nettóþvngdar, til þess að samanburður fáist við fyrri ár. Er hér
um að ræða áætlaða tölu. — í skýrslum innflytjenda eru ýmsar vörur ekki gefnar
upp í þyngd, heldur í stykkjatölu, rúmmetrum eða öðrum einingum, og hefur
þessum einingum verið breytt í þyngd eftir áætluðum hlutfölium. Auk þess hefur
þyngdin á ýmsum vörum oft verið ótilgreind í skýrslum að nokkru eða öllu leyti,
svo að orðið hefur að setja liana eftir ágizkun. Heildartölurnar fyrir þyngd inn-
flutnings og útflutnings síðan 1935 liafa orðið sem hér segir og jafnframt er sýnd
breytingin hvert ár, miðað við 1935 = 100:
Iiwflutningur Útflutningur
1000 kg Hlutfall 1000 kg Hlutfall
1935 333 665 100,0 117 127 100,0
1936 321 853 99,5 134 403 114,3
1937 333 970 100,1 148 657 127,9
1938 337 237 101,1 158 689 135,6
1939 341 856 102,5 150 474 128,5
1940 226 928 68,0 186 317 159,1
1941 231 486 69,4 204 410 174,5
1942 320 837 96,1 203 373 173,6
1943 305 279 91,5 209 940 179,2
1944 302 934 90,8 234 972 200,6
1945 329 344 98,7 199 985 170,7
1946 436 639 130,9 174 884 149,3
1947 530 561 159,0 171 606 146,5
1948 486 985 145,9 262 676 242,3
1949 149,6 211 910 180,9
1950 146,5 148 914 127,1
1951 433 000 129,8 217 264 185,5
1952 152,8 181 720 155,1
1953 179,6 169 419 144,6
1954 174,7 199 550 170,4
19S5 193,0 198 718 169,7
1956 215,3 241 179 205,9