Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1963, Qupperneq 25
Verzlunarskýrslur 1961
23*
neyzluvöruflokksins er í yfirlitinu talið of lágt svarandi til þess hluta eldsneytisinn-
flutningsins, sem fer til neyzlu (t.d. bensín á fólksbíla, olía til húsakyndingar). Sömu-
leiðis má halda því fram, að t.d. fólksbílar, sem taldir eru með fjárfestingarvörum,
ættu frekar að vera í neyzluvöruflokknum, ekki síður en aðrar varanlegar neyzlu-
vörur þar, s. s. rafmagnsheimibstæki. Þessi dæmi eru tekin hér aðeins td þess að
skýra yfirlitið um flokkun innflutningsins og stuðla að því, að mcnn noti niðurstöð-
ur þess með varfærni. — Rétt er að geta þess sérstaklega, að allar hrávörur og efni-
vörur til innlendrar neyzluvöruframleiðslu eru í 5. yfirliti taldar neyzluvörur,
en ekki rekstrarvörur.
Innflutningur varnarliðseigna. Við lok heimstyrjaldarinnar var sett á fót nefnd,
er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir setuliðanna tveggja, sem þau tóku
ekki með sér, þegar þau fóru af landi burt. Nefndin sá og um sölu slíkra eigna til
innlendra aðila. Arið 1951 hófust sams konar kaup af bandaríska liðinu, sem kom
til landsins samkvæmt varnarsamningi íslands og Bandarikjanna í maí 1951.
— Vörur þær, sem Sölunefnd varnarliðseigna kaupir af varnarhðinu, fá ekki toll-
meðferð eins og allar aðrar innfluttar vörur, og er þar af leiðandi ógerlegt að telja
þær með innflutningi í verzlunarskýrslum. Rétt þykir að gera hér nokkra grein
fyrir þessum innflutningi og fer hér á eftir yfirlit um heddarupphæð þessara kaupa
hvert áranna 1951—61 (í þús. kr.):
1951 204 1955 2 045 1959 9 797
1952 77 1956 2 439 1960 16 825
1953 664 1957 2 401 1961 8 029
1954 1 731 1958 5 113
í kaupverðmætinu er innifalinn kostnaður við viðgerðir o. fl. til aukningar á
söluverðmæti, o. fl. Sundurgreining kaupverðmætisins eftir vöruflokkum 1960 og
1961 fer hér á eftir (í þús. kr.):
1960 1961
Niðursuðuvörur ................................... 109
Brotajárn ............................................. 130 132
Ymsar járn- og byggiugarvörur, handverkfæri ... 438 213
Hreinlætistæki ........................................ ... 75
Vélar aðrar en rafmagnsvélar .......................... 153 44
Rafmagnsvélar og -áhöld .......................... 214
Fólksbifreiðar (tala: 1960: 100, 1961: 88)........ 2 021 1 546
20 dráttarvélar, 1 jarðýta, 1 snjóplógur, 2 loft-
pressur, 3 vörulyftur, 1 veghefill, 1 vélskófla,
1 lendingarskip, flutningavagnar, o. fl.............. ... 855
Aðrar bifreiðar (tala: 1960: ca. 90, 1961: 49) ... 3 279 474
Varahlutir í bifreiðar og aðrar vélar.................. 597 87
Hjólbarðar og slöngur.................................. ... 26
Olíur ................................................. ... 37
Fatnaður og skófatnaður ............................... 593 99
Búsáhöld, tæki til heimilisnota o. þ. h................ ... 248
Aðrar vörur frá varnarliðinu........................... 715 182
Vörur keyptar innanlands vegna söluvarnings, svo
og viðgerðir ................................... 8 049 3 996
Leyfis-, yfirfærslu- og útflutningssjóðsgjald ......... 527 15
Alls 16 825 8 029