Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1963, Qupperneq 30
28*
Verzlunarskýrslur 1961
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töfiu IV B (bls. 74—83) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar fiokkaðar eftir skyld-
leika á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og eru yfirlit yfir þá flokkaskiptingu
í töflu I og II (bls. 1—3).
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verzlunar-
skýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) á
þeirri höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla
getur ekki átt við ísfisk, sem íslenzk skip selja í erlendum höfnum,
og gilda því um verðákvörðun hans í Verzlunarskýrslum sérstakar reglur. í Verzl-
unarskýrslum 1959 og 1960 var gerð grein fyrir þessum reglum, eins og þær voru
þá. Vegna gengisbreytingarinnar í ágúst 1961 gengu nýjar reglur í gildi í ágúst-
byrjun, og voru þær sem hér segir: Frádráttur frá söluverði vegna flutningskostn-
aðar er 790 kr. á hvert tonn ísfisks til Bretlands og 930 kr. á hvert tonn til Vestur-
Þýzkalands. Frádráttur vegna sölukostnaðar og tolla í Bretlandi er 14% af brúttó-
sölu, en frádráttur vegna vinnu við löndun, leigu á tækjum o. fl. er 50 au. á kg.
Frádráttur vegna sölukostnaðar og tolla í Vestur-Þýzkalandi er 25% af hrúttó-
sölu fram að 1. ágúst, en 15% frá þeim tíma til ársloka, og stafar munurinn af
mismunandi tollum á fiski eftir árstíðum. í Vestur-Þýzkalandi er leiga á löndun-
artækjum og annar beinn löndunarkostnaður lægri en í Bretlandi, svo að ekki
þykir ástæða til að gera sérstakan frádrátt fyrir honum. Hér fer á eftir sundur-
greining á verðmæti ísfisksútflutningsins 1961 (í millj. kr.):
Brctland V.-Þýzkaland Svíþjóö Samtali
Fob-verð skv. verzlunarskýrslum ... 97 280 106 215 680 204 175
Reiknaður flutningskostnaður 12 532 21 918 75 34 525
Áætlaður sölukostnaður og tollur .. 26 404 29 921 - 56 325
Brúttósölur 136 216 158 054 755 295 025
ísvarin síld og loðna er meðtahð í þessum tölum, en hins vegar er hér aðeins
talinn isfiskur fluttur út með íslenzkum fiskiskipum. ísfiskur fluttur með íslenzkum
og erlendum vöruflutningaskipum og flugvélum er ekki meðtalinn, en þar er um
að ræða lítið magn. Frystur fiskur fluttur til útlanda með ísfiskskipum er ekki með-
talinn. Þess skal getið, að einn ísfiskfarinur fór til Hollands, 91,3 tonn fyrir 59 þús.
kr. brúttó, en þar sem söluandvirðið hrökk ekki fyrir reiknuðum flutningskostnaði
er þessari sölu sleppt í útflutningsskýrslum.
Það skal tekið fram, að togarar, sem selja ísfisk erlendis, nota miklar upphæðir
af fiskandvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á
skipshafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum hundraðsliluta, sem
dreginn er frá brúttósölum, þegar fob-verðið er reiknað út. Skortir því mjög mikið
á, að gjaldeyri svarandi til fob-verðs sé skilað til bankanna.
6. yfirlit sýnir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan hefur numið síðan um
aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir því, frá hvaða atvinnuvegi
þær stafa. Enn fremur er sýnt með lilutfallstölum, hve mikill liluti verðmætisins
stafar árlega frá hverjum atvinnuvegi.
í 7. yfirliti er sýnt, hvemig magn og verðmæti útflutningsins 1961
skiptist á mánuði.