Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1963, Side 35
Verzlunarskýrslur 1961
33*
en sá dálkur hefur mjög sjaldan verið útfylltur. Hefur því ekki þótt tiltækilegt að
gera yfirlit um það. Þó hefur verið breytt til um nokkrar vörur, þar sem augljóst
hefur þótt, hvert upprunalandið var. Á þetta einkum við um sumar þungavörur,
svo sem kol, olíur, bensín, salt o. fl.
6. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External trade by customs areas.
Töflu VII á bls. 168 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru eftir
tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þessarar töflu
eru að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er að bæta úr. T. d.
kveður talsvert að því, að farmar og einstakar vörusendingar séu tollafgreiddar —
og þar með taldar fluttar inn — í öðru tollumdæmi en þar, sem innflytjandi er
búsettur. Eins og vænta má, er það aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru
vörur, sem fluttar eru inn af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna bugmynd um skiptingu
útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið á reiki, hvaðan
útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því, að sölusambönd, sem
hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning á sumum helztu útflutnings-
vörunum, þannig að útflutningsvörur utan af landi eru afgreiddar í Reykjavík og
oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem útflutningur frá viðkomandi afskipunarböfn.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti, en tilsvarandi skýrslur um út-
flutning í pósti eru ekki fyrir hendi, enda hefur verið lítið um, að verzlunarvörur
væru sendar út í pósti. — Póstbögglar, sem sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað
til lands eða héðan frá einstaklingum, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslurnar.