Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1968, Side 9
Verzlunarskýrslur 1967
7*
fjallar sérstaklega um innfluttar vörur, verður vikið nánar að fob-verð-
mæti innflutningsins og mismun þess og cif-verðmætisins.
Innfliitningsskýrslurnar ei'u gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til landsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slikan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá hlutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutn-
ingskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem tekið er í verzlunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 yfirleitt
verið tekinn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. með innflutningi júnímánaðar
og desembermánaðar, og sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainn-
flutninginn. Þó var innflutningur flugvéla og skipa í júlí—nóvember 1967
látinn fylgja nóvember-innflutningi og reiknaður á því gengi, sem gilti
til 18. nóvember 1967. — í kaflanum um innfluttar vörur síðar í inn-
ganginum er gerð nánari grein fyrir innflutningi flugvéla og skipa 1967.
— Útflutt skip hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega. I kafl-
anum um útfluttar vörur síðar í innganginum er gerð grein fyrir sölu
skipa úr landi 1967.
Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytj-
anda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það heimil-
að i útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-
verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi með cif-skilmálum,
er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutningskostnað og trygg-
ingu, ásamt umboðslaunum, ef nolckur eru. — Nettóverðið til útflytjand-
ans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að frádregnum gjöldum á
útflutningi. Lög nr. 4/1966 kveða á um útflutningsgjald af sjávarafurð-
um, svo sem hér segir: 530 kr. á tonn (þó aldrei meira en sem svarar
4,2% af fob-verði) freðfiskflaka, skreiðar, hertra þorskhausa, verkaðs
og óverkaðs saltfisks, saltfiskflaka, saltbita, frystra hrogna, frysts hum-
ars og frystra rækja. 4,2% af fob-verði heilfrysts fisks, frysts fiskúr-
gangs, saltaðra þunnilda og saltaðra hrogna. 6% af fob-verði ísvarins
fisks, fiskmjöls, karfamjöls, karfalýsis, heilfrystrar síldar, frystra sild-
arflaka, saltsíldar, loðnumjöls, loðnulýsis, hvallýsis, hvahnjöls, frysts
hvalkjöts, svo og annarra sjávarafurða ót. a. 8% af fob-verði síldarlýsis,
síldarmjöls og sildarsoðkjarna. Niðursoðnar og niðurlagðar sjávarafurðir
og afurðir af selveiðum voru undanþegnar útflutningsgjaldi. Tekjum af
gjaldi þessu er að nær % hlutum varið til greiðslu á vátryggingariðgjöld-
um fiskiskipa, en að öðru leyti vísast til 3. gr. nefndra laga um ráðstöfun
á þeim. Lög nr. 40/1966 kveða á um síldargjöld, sem skal greiða af fob-
verði útfluttra síldarafurða: 0,3% af mjöli og lýsi en 0,2% af öðrum síld-
arafurðum. Undanþegin gjaldinu eru niðursoðin og niðurlögð síld og
einnig ný sild af miðum. — Önnur gjöld á sjávarafurðum héldust óbreytt,