Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1968, Side 22
20*
V erzlunarakýrsiur 1967
svo og heimsiglingarkostnaður. Fyrir getur komið, að tæki, sem talin eru
í innflutningsverði, séu keypt hér á landi og séu því tvítalin í innflutningi.
Af þeirri og fleiri ástæðum er varasamt að treysta um of á þær tölur, sem
hér eru birtar um innflutningsverð skipa. — Þessi skip eru talin með
innflutningi nóvembermánaðar (og þar á eldra gengi): Árni Friðriksson,
Birtingur, Fífill, Gígja, Guðbjartur Kristján, Heimir, ísleifur og dælu-
ramminn. Súlan var talin með innflutningi desembermánaðar (og á
nýju gengi), en öll hin skipin með innflutningi júnímánaðar.
Á árinu voru fluttar inn 7 flugvélar fyrir 232,9 millj. kr„ allar keyptar
í Bandaríkjunum. Þar af var 1 stór farþegaflugvél, þotan Gullfaxi til Flug-
félags íslands, keypt fyrir 230 millj. kr. 5 litlar vélar voru taldar með
innflutningi nóvembermánaðar, að verðmæti 2,4 millj. kr. Hinar töldust
með innflutningi júnimánaðar.
í 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði,
síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin, bæði í heild og á hvern
einstakling. Að því er snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt
magn og talið, að það jafngildi neyzlunni. Sama er að segja um öl framan
af þessu tímabili, en eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu i
landinu er liér miðað við innlent framleiðslumagn. — Vert er að hafa
það í huga, að innflutt vörumagn segir ekki rétt til um neyzlumagn, nema
birgðir séu hinar sömu við byrjun og lok viðkomandi árs, en þar getur
munað miklu.
Tölurnar, er sýna áfengisneyzluna, þarfnast sérstakra skýringa. Árin
1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi
neyzlunni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneyzla, þó að
hluti hans hafi farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi
um, hve stór sá hluti hefur verið, en hins vegar má gera ráð fyrir, að
meginhluti vinandans hafi á þessu timabili farið til drykkjar. — Frá
árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverzlunar rikisins á sterkum drykkjum
og léttum vinum og hún talin jafngilda neyzlunni, en vínandainnflutning-
urinn er ekki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir til fram-
leiðslu brennivíns og ákavítis hjá Áfengisverzluninni, talinn í sölu hennar
á brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vinandainnflutningi hennar
kunni að hafa farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í
töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu mikið það magn muni vera.
Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög lítið hlutfallslega. — Inn-
flutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður í sviga, þar
sem hann er ekki með í neyzlunni. — Það skal tekið fram, að áfengi,
sem áhafnir skipa og flugvéla og farþegar frá útlöndum taka með sér inn
í landið, er eklci talið i þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar mun vera
um að ræða mikið magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina, gerir
það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, eink-
um seinni árin. — Mannfjöldatalan, sem notuð er til þess að finna neyzl-
una hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir
1967, sem við er miðað, er 198 430.