Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1968, Side 30
28*
Verzlunarskýrslur 1967
í kaupverðmætinu er innifalinn kostnaður við viðgerðir o. fl. til aukn-
ingar á söluverðmæti, o. fl. Sundurgreining kaupverðmætisins eftir vöru-
flokkum 1966 og 1967 fer hér á eftir (í þús. kr.):
1966 1967
Fólksbílar (1966: 100, 1967: 107) ................................... 1 709 3215
Vöru- og sendiferðabilar (1966: 33, 1967: 58) .......................... 53 429
Aðrir bilar ............................................................ 17 89
Vörulyftur, dráttar- og tengivagnar ................................... 115 56
Vinnuvélar ............................................................ 170 166
Varahlutir í bila og vélar ............................................ 249 113
Rafmagns- og simavörur ................................................ 825 —
Skrifstofu- og búsáhöld og heimilistœki ............................... 196 321
Fatnaður ................................................................ 6 11
Ýmsar vörur ............................................................ 75 108
Vörur keyptar innanlands vegna söluvarnings, svo og viðgerðir ......... 698 828
Bankakostnaður ......................................................... 10 9
Alls 4123 5 345
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 158—171) er sýndur útflutningur á hverri einstakri
vörutegund eftir löndum og er sú tafla í röð vöruskrár hagstofu Sam-
einuðu þjóðanna, en með dýpstu sundurgreiningu vörutegunda sam-
kvæmt flokkun Hagstofunnar á útflutningsvörum. Hér vísast að öðru
leyti til skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á
bls. 158.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir
vörudeildum hinnar endurskoðuðu vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóð-
anna. í töflu III á bls. 20—23 er sýnt verðmæti helztu útflutningsafurða
innan hverrar vörudeildar sömu skrár, með skiptingu á lönd.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í
verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um
borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölu-
reikningi útflytjanda. Þessi regla getur ekki átt við isfisk, sem islenzk
skip selja i erlendum höfnum, og gilda því um verðákvörðun hans i
verzlunarskýrslum sérstakar reglur. Á síðasta ári var þessum reglum
fylgt við ákvörðun á fob-verði ísfisks til Bretlands: Flutningsgjald
reiknaðist 790 kr. á tonn og frádráttur vegna sölukostnaðar og innflutn-
ingstolls 14% af brúttósöluverði og 50 au. á hvert kg landaðs fisks. Var
þetta óbreytt frá því, sem hafði verið frá og' með ágústbyrjun 1961. Ákvörð-
un fob-verðs á ísfiski til Vestur-Þýzkalands hefur verið sem hér segir síð-
an í ársbyrjun 1962 (sjá nánar febrúarblað Hagtíðinda 1962): Frádráttur
vegna sölukostnaðar og innflutningstolls á ísaðri síld 15% af brúttósölu-
verði 15. febrúar til 14. júní, en 20,22% á öðrum tíma árs. Sams konar frá-
dráttur á öðrum ísfiski 25% 1. janúar til 31. júlí, en 18,915% á öðrum tíma