Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1968, Page 42
40*
Verzlunarskýrslur 1967
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem
útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Tafla VI sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um út-
flutning í pósti og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslur.
í töflu VI kemur fram, að cif-verðmæti vara, sem fóru um toll-
vörugeymsluna í Reykjavík 1967, var 206,8 millj. kr. Tollvörugeymslan
h.f., sem fékk heimild ráðherra til að reka almenna tollvörugeymslu í
Reykjavík (sbr. lög nr. 47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi
i ágúst 1964. Aðalhlutverk hennar er að slcapa innflytjendum aðstöðu
til að fá, að vissu marki, einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám
saman eftir hentugleikum. Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega
fyrirferðarlitlar vörur, og vörur með háum tolli, sem færðar eru i toll-
vörugeymslu. — Það skal tekið fram, að Hagstofan telur allar vörur í
vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru færðar í tollvörugeymslu eftir
komu þeirra til landsins í farmrými skips eða flugvélar, eða í pósti, —
en ekki þegar einstakir hlutar vörusendingar eru endanlega tollafgreiddir
og afhentir innflytjanda.
7. Tollamir.
Customs duties.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sem voru á innfluttum
vörum á árinu 1967.
Benzíngjald og gúmmígjald, innheimt samkvæmt vegalögum nr. 71/
1963, sbr. lög nr. 101/1965, héldust óbreytt á árinu, kr. 3,67 á lítra af
benzíni og 9 kr. á kg af hjólbörðum og gúmmíslöngum.
Gjald af fob-verði bifreiða, sem ríkisstjórninni er heimilt að inn-
heimta samkv. 16. gr. efnahagsmálalaga, nr. 4/1960, breyttist í kjölfar
gengislækkunarinnar sbr. reglugerð nr. 171 12. desember 1967. Samkvæmt
henni var gjald af gjaldskyldum bifreiðum öðrum en jeppum lækkað úr
125% i 90%, en hélzt óbreytt á jeppum, 30%, og bifhjólum, 25%. Undan-
þegnar gjaldi þessu eru eftir sem áður allar bifreiðar 3 tonn eða meira
að burðarmagni, almenningsbifreiðar, sjúkra-, bruna- og snjóbifreiðar,
svo og bifreiðar sem eru hvort tveggja lögreglu- og sjúkrabifreiðar. Sams
konar sérreglur gilda áfram og verið hafa um fob-gjald af leigubifreiðum
til mannflutninga og af atvinnusendiferðabifreiðum. Gjald á hvorum
tveggja er 30%, en þó 65%, ef akstur þeirra er aukastarf viðkomandi
eiganda.
Tollabreytingar voru litlar eða engar á árinu.
Samkvæmt upplýsingum Ríkisbókhaldsins voru tekjur af innfluttum
vörum sem hér segir, í millj. kr.: