Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1968, Side 220
Hagstofa íslands
gefur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verzlun-
arskýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið
út 42 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit
send þeiin í pósti.
2. Hagskýrslur íslands, aukaflokk. 1 honum eru sams konar rit og í aðalfiokki Hag-
skýrshia, nema hvað þau eru í öðru broti (kvartbroti) og „off-set“-fjölrituð.
3. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtarmánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun,
fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um
ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að hirta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár-
legt áskriftargjald Hagtíðinda er 75 kr.
4. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). — í Statistical Bulletin eru hirtar
ýmsar töflur úr Hagtíðindum, og úr Fjármálatíðindum, riti Seðlabanka íslands.
— Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskrift-
argjald þess 45 kr.
5. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún
hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1967 var
1312 bls., og verð 1800 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að hún seljist upp.
Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofuuni, Arnarhvoli (inngangur frá Lindar-
götu), Reykjavík. Sírni 24460.