Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1970, Síða 10
8*
Verzlunarskýrslur 1969
útflutningsdeildar viðskiptaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er uppi
af hálfu útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lag-
færa þetta siðar, og er hér um að ræða ónákvæmni, sem getur munað
miklu.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslur koma aðeins vörur, sem
afgreiddar eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup islenzkra skipa
og flugvéla erlendis á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í
verzlunarskýrslum, og ef slikar vörur eru fluttar inn í landið, koma þær
ekki á skýrslu, nema að svo miklu Ieyti sem þær kunna að vera teknar
lil tollmeðferðar.
Þyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó i verzlunar-
skýrslur. Innfluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með
því ári voru þær taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar
breytingar var aðallega sú, að illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna
i tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki máli við tollafgreiðslu. Hins
vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind i tollskýrslu, vegna þess að vöru-
magnstollur var miðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum, sem komu
til framkvæmda 1. maí 1963, var vörumagnstollur felldur niður á öllum
vörum, nema á salti og eldsneyti, þar sem þýðingarlaus vörumagnstollur
var látinn haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og framkallaðar
kvikmyndafilmur var lagður vörumagnstollur í stað verðtolls. — Vegna
ýmissa annmarka á að miða innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að
reikna þyngd hans nettó frá og með 1. maí 1963, er nýja tollskráin kom
til framkvæmda. í því sambandi er rétt að geta þess, að í verzlunarskýrsl-
um flestra landa er innflutningur miðaður við nettóþyngd.
Farmgjaldataxtar stykkjavöru breyttust ekki á árinu 1969.
Gjaldeyrísgengi. Á bls. 8*-—9* í Verzlunarskýrslum 1968 er gerð grein
fyrir breytingu þeirri á gengi íslenzkrar krónu, er kom til framkvæmda
12. nóv. 1968. Vísast til þess. Stofngengi islenzkrar krónu, 88 kr. hver
bandariskur dollar, hefur haldizt óbreytt síðan i nóv. 1968. — í árslok var
skráð gengi Seðlabankans á erlendum gjaldeyri sem hér segir (i kr. á
tiltekna einingu):
Eining Kaup Sala
Sterlingspund i 211,05 211,55
Ðandaríkjadollar i 87,90 88,10
Kanadadollar i 81,85 82,05
Dönsk króna 100 1 173,74 1 176,40
Norsk króna 100 1 232,40 1 235,20
Sænsk króna 100 1 700,50 1 704,36
Finnskt mark 100 2 098,87 2 103,65
Franskur nýfranki 100 1 578,95 1 582,55
Belgískur franki 100 176,90 177,30
Svissneskur franki 100 2 038,70 2 043,36
Gyllini 100 2 422,30 2 427,80
Tékknesk króna 100 1 220,70 1 223,70
Vestur-þýzkt mark 100 2 382,30 2 387,72
Líra 100 14,00 14,04
Austurrískur schillingur 100 340,00 340,78
Pescti 100 126,27 126,55