Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1970, Síða 20
18*
Verzlunarskýrslur 1969
setja þær í sérstakan lið í rekstrarvöruflokknum. í því sambandi verður
að hafa í huga, að heildarverðmæti neyzluvöruflokksins er í yfirlitinu
talið of lágt svarandi til þess hluta eldsneytisinnflutningsins, sem fer til
neyzlu (t. d. benzín á fólksbíla, olía lil húsakyndingar). Sömuleiðis má
halda því fram, að t. d. fólksbilar, sem taldir eru með f járfestingarvörum,
ættu frekar að vera í neyzluvöruflokknum, ekki síður en aðrar varanlegar
neyzluvörur þar, svo sem rafmagnsheimilistæki. Þessi dæmi eru tekin hér
aðeins til þess að skýra yfirlitið um flokkun innflutningsins og stuðla
að því, að menn noti niðurstöður þess með varfærni. — Rétt er að geta
þess sérstaldega, að allar hrávörur og efnivörur til innlendrar neyzluvöru-
framleiðslu eru í 5. yfirliti taldar neyzluvörur, en ekki rekstrarvörur.
Innflutningur vegna Búrfellsvirkjunar og til byggingar álbræðslu
í Straumsvík. Innflutningur 1969 vegna Búrfellsvirkjunar nam alls 321,5
millj. kr. að cif-verðmæti og er hann innifalinn í innflutningstölum
ársins 1969, eins og undanfarin 2 ár. Samkvæmt lögum nr. 59/1965, um
Landsvirkjun, skal fella niður aðflutningsgjöld og söluskatt af efni, tækj-
um og vélum til viðkomandi framkvæmda, þó ekki af vinnuvélum, en
fjármálaráðherra er heimilt að fresta innheimtu þessara gjalda af vinnu-
vélum, eða hluta þeirra, gegn tryggingum.
Bygging álbræðslu í Straumsvík hófst á árinu 1967. Samkvæmt 14.
gr. samnings ríkisstjórnarinnar og Swiss Aluminium Limited frá 28.
marz 1966, sem fékk lagagildi með lögum nr. 76/1966, er mestallt, sem
með þarf til byggingar álbræðslunnar, undanþegið aðflutningsgjöldum og
söluskatti. Þar eð liér er um að ræða erlenda fjárfestingu og mikinn inn-
flutning af sérstökum uppruna, var sá háttur hafður á 1967 og 1968, að
þessi innflutningur var ekki hafður með i árlegum innflutningtöluin
Verzlunarskýrslna. Hins vegar hefur hann frá og með 1968 verið meðtal-
inn í mánaðarlegum innflutningstölum, birtum í Hagtíðindum, sjá nánar
athugasemd neðst á bls. 69 í aprílblaði Hagtíðinda 1968. Að því er varð-
ar birtingu i Verzlunarskýrslum er liins vegar, frá og með árinu 1969,
rekstrarvöruinnflutningur Islenzka álfélagsins h.f. talinn með öðrum
innflutningi, enda er útflutningur áls, sem hófst á hausti 1969, tekinn
með öðrum útflutningi. Innflutningi til byggingar álbræðslu er á hinn bóg-
inn eftir sem áður sleppt í öllum almennum töflum Verzlunarskýrslna. I
inngangi Verzlunarskýrslna 1967 og 1968 voru birtar sérupplýsingar um
innflutning til Islenzka álfélagsins h.f., sem á þeim árum var einvörðungu
vegna byggingar álbræðslu, og sams konar yfirlit er birt hér á eftir
fyrir 1969. Þar fyrir aftan er svo önnur sérskýrsla með upplýsingum
um rekstrarvöruinnflutning til álframleiðslu 1969, en hann kom fyrst
til sögunnar á því ári. Þær tölur eru, eins og áður segir, taldar með al-
mennum innflutningi. — Þess skal getið, að svo nefndar „verktakavörur“
til byggingar álbræðslu eru ekki teknar á skýrslu og því ekki meðtaldar
í skýrslu þeirri, sem hér fer á eftir. Er hér um að ræða tæki (þar með
áhöld og verkfæri, svo fylgi- og varahlutir) til mannvirkjagerðar o. fl.,
sem íslenzka álfélagið h.f. hyggst flvtja úr landi, þegar þar að kemur. Ef