Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1970, Side 42
40*
Verzlunarskýrslur 1969
löndum en þar, sem þær eru framleiddar, og eins er um ýmsar útfluttar
vörur, að þær eru notaðar í öðrum löndum en þeim, sem fj'rst kaupa þær.
Innkaups- og sölulöndin gefa því ekki rétta hugmynd um liin eiginlegu
vöruskipli milli framleiðenda og neytenda varanna. Ýmis lönd hafa því
í verzlunarskýrslum sinum upplýsingar um upprunaland og neyzluland.
Til þess að fá upplýsingar um þetta varðandi innflutning til íslands, er á
innflutningsskýrslueyðublöðunum dálkur fyrir upprunaland varanna, auk
innkaupalandsins, en sá dálkur er sjaldan útfylltur. Hefur þvi ekki þótt
tiltækilegt að gera yfirlit um það. Þó hefur verið breytt til um nokkrar
vörur, þar sem augljóst hefur þótt, hvert upprunalandið var. Á þetta eink-
um við um sumar þungavörur, svo sem kol, olíur, benzín, salt o. fl. Á sama
hátt vantar oft upplýsingar um neyzluland varanna í útflutningsskýrslum
útflytjenda, og þess vegna er útflutningslandið i þeim að jafnaði söluland
i skýrslum. Frá og með ársbyrjun 1964 er liins vegar vikið frá þessu, að
svo miklu leyti sem upplýsingar um neyzluland liggja fyrir. Hefur það
þýðingu í sambandi við ýmsar vörur, einkum þó skreið.
6. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External trade by places of customs clearance.
Töflu VI á bls. 184 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru
eftir tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þess-
arar töflu eru að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er
að bæta úr. T. d. kveður talsvert að því, að larmar og einstakar vöru-
sendingar séu tollafgreiddar — og þar með taldar fluttar inn — í öðru toll-
umdæmi en þar, sem innflytjandi er búsettur. Eins og vænta má, er það
aðallega i Reykjavik, sem tollafgreiddar eru vörur, sem fluttar eru inn
af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmvnd um
skiptingu útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið
á reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því,
að sölusambönd, sem hafa aðsetur i Reykjavík, annast sölu og útflutning
á sumum helztu útflutningsvörunum, þannig að útflutningsvörur utan af
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem
útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Tafla VI sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um út-
flutning í pósti og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru eklti teknir með í verzlunarskýrslur.
í töflu VI kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvöru-
geymsluna í Reykjavík. Tollvörugeymslan h.l'., sem fékk heimild ráð-
herra til að reka almenna tollvörugeymslu i Reykjavik (sbr. lög nr.
47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi i ágúst 1964. Aðalhlut-
verk hennar er að skapa innflytjendum aðstöðu til að fá, að vissu marki,
einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir hentugleikum.