Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1972, Síða 9
Verzlunarskýrslur 1971
7*
Innflutningstölur verzlunarskýrslna eru afleiðing umreiknings í ís-
lenzka mynt á sölugengi, en útflutningstölur eru aftur á móti miðaðar
við kaupgengi.
Innflutningsskýrslurnar eru gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til landsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá hlutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutn-
ingskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem tekið er i verzlunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tek-
inn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. mcð innflutningi júnímánaðar og des-
embermánaðar, nema þegar sérstök ástæða hefur verið til annars, í sam-
bandi við gengisbreytingar. Sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainn-
flutninginn. — 1 kaflanum um innfluttar vörur síðar í innganginum er
gerð nánari grein fyrir innflutningi flugvéla og skipa 1971. — Útflutt
skip hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega. í kaflanum um
útfluttar vörur síðar í innganginum er gerð grein fyrir sölu skipa úr
landi 1971.
Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytj-
anda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það heimil-
að í útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-
verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi með cif-skilmálum,
er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutningskostnað og trygg-
ingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettóverðið lil útflytjand-
ans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að frádregnum gjöldum á
útflutningi. í ltjölfar gengisbreytingar í nóv. 1968 var útflutningsgjaldi
af sjávarafurðum breytt frá og með ársbyrjun 1969, sjá II. kafla laga nr.
79/1968, um ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenzkrar
krónu. Gjaldi þessu var enn breytt með bráðabirgðalögum nr. 73 1. júní
1970 og með lögum nr. 4 30. marz 1971. Visast til þessara laga. Auk hins
almenna útflutningsgjalds á sjávarafurðum, greiða útflytjendur þeirra
gjald af fob-verði í Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, þó ekki af afurð-
um frá hvalveiðum og selveiðum, sbr. lög nr. 77/1962. Gjald þetta var frá
og með 19. febrúar 1969 hækkað úr 1%% í 2%, % með lögum nr. 74/1969,
um breyting á lögum nr. 77/1962, og enn frekar í 2%% 1. júní 1970, mcð
bráðabirgðalögum nr. 23/1970. Með lögum nr. 5 5. apríl 1971 var veitt
heimild til að lækka gjald af niðurlögðum og niðursoðnum sjávarafurð-
um í Aflatryggingasjóð úr 2,75% í 0,92%. Þessi heimild var notuð og látin
gilda frá 1. júlí 1970. Var gjaldið endurgreitt til samræmis við það.
Þá skal grciða 0,15% af fob-verði sjávarafurða til ferskfiskeftirlits,
sbr. lög nr. 42/1960. Loks er innheimt sérstakt gjald af útfluttum sild-