Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1972, Page 10
8*
Verzlunarskýrslur 1971
arafurðum, sjá lög nr. 40/1966, einnig síldarmatsgjald og síldarsölu-
gjald. — Engin gjöld eru á útfluttum landbúnaðarafurðum og iðnaðar-
vörum.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verzlunarskýrslum
gilda sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar
vörur síðar í inngangi þessum.
Allmikið er um það, að útflutningsverðmæti sé áætlað í skýrslunum,
þ. e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi
útflutningsdeildar viðskiptaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er uppi
af hálfu útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lag-
færa þetta síðar, og er hér um að ræða ónákvæmni, sem getur munað
miklu.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslur koma aðeins vörur, sem
afgreiddar eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenzkra skipa
og flugvéla erlendis á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í
verzlunarskýrslum, og ef slíkar vörur eru fluttar inn í landið, koma þær
ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti sem þær kunna að vera teknar
til tollmeðferðar.
Þyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verzlunar-
skýrslur. Innfluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með
því ári voru þær taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar
breytingar var aðallega sú, að illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna
í tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki máli við tollafgreiðslu. Hins
vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind í tollskýrslu, vegna þess að vöru-
magnstollur var miðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum, sem komu
til framkvæmda 1. maí 1963, var vörumagnstollur felldur niður á öllum
vörum, nema á salti og eldsneyti, þar sem þýðingarlaus vörumagnstollur
var látinn haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og framkallaðar
kvikmyndafilmur var lagður vörumagnstollur í stað verðtolls. — Vegna
ýmissa annmarka á að miða innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að
reikna þyngd hans nettó frá og með 1. maí 1963, er nýja tollskráin kom
til framkvæmda. í því sambandi er rétt að geta þess, að í verzlunarskýrsl-
um flestra landa er innflutningur miðaður við nettóþyngd.
Litlar breytingar urðu á farmgjöldum skipafélaga á árinu 1971. Farm-
gjöld freðfisks hækkuðu þó um 20%, en um þau gilda sérstakir samning-
ar. Þetta eru upplýsingar frá Eimskiptafélagi íslands, en gera má ráð
fyrir, að svipaðar breytingar hafi orðið hjá öðrum skipafélögum.
Gjaldeyrisgengi. Á bls. 8*-—9* í Verzlunarskýrslum 1968 er gerð grein
fyrir breytingu þeirri á gengi islenzkrar krónu, er kom til framkvæmda
12. nóv. 1968. Vísast til þess. Stofngengi islenzkrar krónu, 88 kr. hver
bandarískur dollar, hefur haldizt óbreytt siðan í nóv. 1968. — I árslok var
skráð gengi Seðlabankans á erlendum gjaldeyri sem hér segir (í kr. á
tiltekna einingu):