Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1972, Qupperneq 24
22*
Verzlunarskýrslur 1971
Ieiðslu brennivíns og ákavitis hjá Áfengisverzluninni, talinn í sölu hennar
á brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar
kunni að hafa farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í
töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu mikið það magn muni vera.
Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög Iítið hlutfallslega. — Inn-
flutningur vínanda siðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður í sviga, þar
sem hann er ekki með í neyzlunni. — Það skal tekið fram, að áfengi,
sem áhafnir skipa og flugvéla og farþegar frá útlöndum taka með sér inn
í landið, er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar mun vera
um að ræða mikið magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina, gerir
það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, eink-
um seinni árin. — Mannfjöldatalan, sem notuð er til þess að finna neyzl-
una hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir
1971, sem við er miðað, er 206 092.
Hluti kaffibætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér
segir síðustu árinu (100 kg): 1968: 388, 1969: 329, 1970: 366, 1971: 276.
4. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru-
deildum. Fyrr í þessum kafla er gerð grein fyrir skiptingu innflutnings
skipa og flugvéla á júní og desember, en hann er eins og áður segir
aðeins tekinn á skýrslu tvisvar á ári.
í 5. yfirliti er sýnd sérstök skipting innflutningsins 1971 eftir
notkun vara og flokkun landa, sem flutt er inn frá. Frá og með Verzl-
unarskýrslum 1970 var tekin upp ný flokkun innflutningsins eftir notk-
un, sem Efnahagsstofnunin gerði tillögu um. Þessi nýja flokkun, sem
skýrir sig að miklu leyti sjálf, er svipuð þeirri eldri, en miklu ýtarlegri,
enda eru vöruliðir hennar 69 að tölu, á móti 34 í eldri flokkuninni. Fvrir-
varar þeir, sem gerðir voru við eldri flokkunina (sjá bls. 17*—18* í
inngangi Verzlunarskýrslna 1969) eiga einnig við þá nýju. Rétt þótti að
breyta um leið landaflokkum þessa yfirlits og hafa EFTA-lönd þar út
af fyrir sig, vegna inngöngu íslands í Fríverzlunarsamtök Evrópu 1. marz
1970 (sjá nánar þar um á bls. 46* í Verzlunarskýrslum 1970). — Þess
skal getið, að þessi flokkun innflutnings er nú gerð ársfjórðungslega, en
birting á niðurstöðum hennar er ekki enn hafin.
Innflutningur vegna Búrfellsvirkjunar og til byggingar álbræðslu
í Straumsvík. Innflutningur 1971 vegna Búrfellsvirkjunar nam alls 303,0
niillj. kr. að cif-verðmæti og er hann meðtalinn í öllum töflum Verzlun-
arskýrslna, eins og verið hefur. Lokið var við fyrri hluta Búrfellsvirkj-
unar haustið 1969, en framkvæmdum til vélaaukninga o. fl. mun Ijúka
um mitt ár 1972. Samkvæmt lögum nr. 59/1965, um Landsvirkjun, skal
fella niður aðflutningsgjöld og söluskatt af efni, tækjum og vélum til
viðkomandi framkvæmda, þó ekki af vinnuvélum, en fjármálaráðherra
er heimilt að fresta innheimtu þessara gjalda af vinnuvélum, eða hluta
þeirra, gegn tryggingum.
Bygging álbræðslu í Straumsvík hófst á árinu 1967. Samkvæmt 14.