Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1972, Side 36
34*
Verzlunarskýrslur 1971
og makríl aðeins 2% sölukostnaður. Á öðrum ísfiski: Löndunarkostn-
aður 80 au. á kg, tollur 8,4%, sölukostnaður 3,0%, hafnargjöld o. fl.
2,1%. V.-Þýzkaland: Á ísaðri síld og makril löndunarkostnaður 37 au. á
kg, tollur 2,5%, sölukostnaður 4,3% og hafnargjöld o. fl. 1,5%. Á ísuð-
um karfa: í janúar—apríl: Löndunarkostnaður 83 au. á kg, tollur 10,8%,
sölukostnaður 2%, hafnargjöld o. fl. 5%. 1 september—desember tollur
9,8%, en annað óbreytt. Á öðrum ísfiski: Löndunarkostnaður 83 au. á kg,
tollur 15%, sölukostnaður 2% og hafnargjöld o. fl. 5%. Danmörk: Á
ísaðri síld og makríl 6% sölukostnaður. Færeyjar: Á ísaðri síld og
makríl 2% sölukostnaður. Á öðrum ísfiski: Löndunarkostnaður 80 au.
á kg, sölukostnaður 3%, og auk þess hafnsögugjald, sem var 5000 kr.
fyrir hverja ferð togara og 1000 kr. fyrir bát. Svíþjóð: Á öðrum ísfiski
0,5% sölukostnaður. Noregur: Á ísaðri síld 2,5% sölukostnaður.
Það skal tekið fram, að fiskiskip, sem selja ísfisk erlendis, nota stóran
hluta af andvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl„ svo og til
greiðslu á skipshafnarpeningum, en slikt er ekki innifalið í áður nefnd-
um frádrætti til útreiknings á fob-verðmæti. Skortir því mjög mikið
á. að gjaldeyri svarandi til fob-verðs sé skilað til bankanna.
Fimm skip voru seld úr landi á árinn, að útflutningsverðmæti alls
45 757 þús. kr. Um var að ræða olíuflutningaskipið Litlafell til Grikk-
lands, smiðaár 1950, 764 brúttólestir, útflutningsverðmæti 3 305 þús. kr.
Einnig vöruflutningaskipið Herðubreið til Panama, smíðaár 1947, 366
brúttólestir, útflutningsverðmæti 8 574 þús. kr., og olíuflutningaskipið
Haförninn til Ítalíu, smíðaár 1957, 2 462 brúttólestir, útflutningsverð-
mæti 9 618 þús. Auk þess voru 2 nýir rækjubátar seldir til Indlands.
Þeir voru smíðaðir í Hafnarfirði, 70 brúttólestir hvor, útflutningsverð-
mæti alls 24 260 þús. kr. Ofan greind skip voru öll úr stáli. Litlafell
var talið með útflutningi júnímánaðar, en hin skipin með útflutningi
desembermánaðar.
Á árinu 1971 var ein flugvél seld úr landi. Það var flugvél Land-
helgisgæzlunnar, TF-SIF, sem seld var til Singapore. Hún var að útflutn-
ingsverðmæti 1 742 þús. kr. og talin með útflutningi desembermánaðar.
í 6. yfirliti er sýnt verðmæti útfluttrar vöru síðan um aldamót, með
flokkun á atvinnuvegi. Þessi flokkun var endurskoðuð í ársbyrjun 1970
og varð þá til nýr flokkur: íslenzkar iðnaðarvörur. Nokkrar breytingar
voru gerðar á þeim flokkum, sem fyrir voru, en þær raska ekki samanburði
við fyrri ár. Hin nýja flokkun útflutnings eftir atvinnuvegum kemur fram
í töflu III á bls. 20-—27. Flokkarnir þar eru hinir sömu og i 6. yfirliti, að
öðru leyti en því, að afurðir af hvalveiðum mynda ekki sérflokk í töflu
III, heldur eru þær með sjávarafurðum. Hér er um að ræða töluliði nr.
30, 40, og 41 í töflu III, og auk þess er eitthvað af hvalafurðum í nr. 49
(sjávarafurðir ót. a.).
í 7. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1971
skiptist á mánuði.