Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1972, Page 47
Verzlunarskýrslur 1971
45
sendingar séu tollafgreiddar — og þar með taldar fluttar inn — í öðru toll-
umdæmi en þar, sem innflytjandi er búsettur. Eins og vænta má, er það
aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru vörur, sem fluttar eru inn
af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmynd um
skiptingu útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið
a reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af þvi,
að sölusambönd, sem hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning
a sumum helztu útflutningsvörunum, þannig að útflutningsvörur utan af
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem
utflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Eigin afli fiskiskipa, seldur af þeim sjálfum í erlendri höfn (aðal-
laga ísuð síld og annar ísvarinn fiskur) hefur hingað til í töflu VI verið
talinn fluttur út frá Reykjavík. Á þessu eru augljósir annmarkar, sem
aukast með vaxandi ísfiskútflutningi, og því er þessu breytt frá og með
Verzlunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er nú í sérstökum lið í
töflu VI.
Tafla VI sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um út-
flutning í pósti og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslur.
í töflu VI kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvöru-
geymsluna í Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráð-
herra til að reka almenna tollvörugeymslu í Reykjavík (sbr. lög nr.
47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlut-
verk hennar er að skapa innflytjendum aðstöðu til að fá, að vissu marki,
einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir hentugleikum.
Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega fyrirferðarlitlar vörur, og vörur
nieð háum tolli, sem færðar eru í tollvörugeymslu. — Það skal tekið fram,
að Hagstofan telur allar vörur í vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru
færðar í tollvörugeymslu eftir komu þeirra til landsins í farmrými skips
eða flugvélar, eða í pósti, -— en ekki þegar einstakir hlutar vörusendingar
eru endanlega tollafgreiddir og afhentir innflytjanda. — í júlí 1970 tók
til starfa Almenna tollvörugeymslan hf. á Akureyri. Vörur, sem fara um
hana, eru teknar í innflutningsskýrslur á sama hátt og vörur, sem fara
um tollvörugeymslu í Reykjavík.
7. Tollar og önnur gjöld á innflutningi.
Customs duties etc.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sem voru á innfluttum
vörum á árinu 1971.
Hið sérstaka innflutningsgjald á benzíni hækkaði úr kr. 5,67 á lítra
í kr. 7,87 samkvæmt lögum nr. 98 28. desember 1970. Gjald af hjólbörð-
um og gúmmíslöngum hélzt óbreytt, kr. 36,00 á kg.