Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1979, Side 9
Verslunarskýrslur 1978
7*
aðar, nema þegar sérstök ástæða hefur verið til annars, í sambandi við gengis-
breytingar. Sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainnflutninginn. — í kaflanum
um innfluttar vörur síðar í innganginum er gerð nánari grein fyrir innflutningi
flugvéla og skipa 1978. — Útflutt skip og flugvélar hafa að jafnaði verið tekin á
skýrslu hálfsárslega. í kaflanum um útfluttar vörur síðar í innganginum er gerð
grein fyrir sölu skipa og flugvéla úr landi 1978.
Útflutningurinn er í verslunarskýrslum talinn á söluverði afurða með umbúð-
um, fluttra um borð í skip (f°b) á þeirri höfn, er þær fyrst fara frá. Er hér yfirleitt
miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Sé um að ræða greiðslu
umboðslauna til erlends aðila og það heimilað í útflutningsleyfinu, er upphæð
þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem
seld er úr landi með cif-skilmálum, er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu
flutningskostnað og tryggingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettó-
verðið til útflytjandans er fob-verðið samkvæmt verslunarskýrslum að frá-
dregnumgjöldum á útflutningi. Þessi gjöld, sem lögð hafa verið á útfluttar sjávar-
afurðir, voru felld niður með lögum nr. 5 13. febrúar 1976, en í stað þeirra kom
eitt gjald, 6% af fob-verði. Lagmeti og söltuð grásleppuhrogn voru undanþegin
þessu 6% gjaldi, en afþeim vargreitt vörumagnsgjald, kr. 5 940 á tonn, til ársloka
1977. Með lögum nr. 25 11. maí 1978 var svonefnt fullvinnslugjald, 3% af
fob-verði, lagt á söltuð grásleppuhrogn, og sama gjaldi bætt við hið almenna 6%
útflutningsgjald á söltuðum matarhrognum og frystum þorskhrognum. Með sömu
lögum var 1% fullvinnslugjald lagt á fob-verð lagmetis. Með bráðabirgðalögum
nr. 55 15. júlí 1977 var 6% útflutningsgjaldið fellt niður af kolmunna- og
spærlingsafurðum, og var sú niðurfelling í gildi allt árið 1978 (sbr. lög nr. 66 27.
des. 1977). Tekjur af fullvinnslugjaldinu renna til Þróunarsjóðs lagmetisiðnað-
arins, en tekjur af almenna 6% útflutningsgjaldinu renna til Aflatryggingasjóðs,
Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs, til greiðslu á vátryggingarkostnaði fiskiskipa,
til sjávarrannsókna og Framleiðslueftirlits sjávarafurða, til Landssambands ísl.
útvegsmanna og til samtaka sjómanna (sbr. 4. gr. laga nr. 5/1976). — Engin gjöld
eru á útfluttum landbúnaðarafurðum og iðnaðarvörum.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verslunarskýrslum gilda sérstakar
reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar vörur síðar í inngangi
þessum.
Allmikið er um það, að útflutningsverðmæti sé áœtlað í skýrslunum, þ. e. að
reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi útflutningsdeildar
viðskiptaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er uppi af hálfu útflytjanda, að varan
sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lagfæra þetta síðar, og er hér um að ræða
ónákvæmni, sem getur munað miklu.
Það segir sig sjálft, að í verslunarskýrslur koma aðeins vörur, sem afgreiddar
eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenskra skipa og flugvéla erlendis
á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í verslunarskýrslum, og ef slíkar
vörur eru fluttar inn í landið, koma þær ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti sem
þær kunna að vera teknar til tollmeðferðar.
Þyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verslunarskýrslur. Inn-
fluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með því ári voru þær taldar
brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar breytingar var aðallega sú, að
illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna í tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki
máli við tollafgreiðslu. Hins vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind í tollskýrslu,
vegna þess að vörumagnstollur var miðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum,