Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1979, Qupperneq 18
16*
Verslunarskýrslur 1978
í sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram: Mismunur
cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá útflutningsstaðnum
ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem hér um ræðir, er ekki
einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri útflutningshöfn til
íslands, heldur er í sumum tilfellum líka um að ræða farmgjöld með járnbrautum
eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem vöru er síðast
útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukost'naður o. fl. Fer þetta
eftir því, við hvaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður
að því, að vörur séu seldar cif íslenska innflutningshöfn. í slíkum tilfellum er
tilsvarandi fob-verð áætlað af tollyfirvöldum.
Frá og með Verslunarskýrslum 1977 þarf innflutningur frá landi að nema
minnst 500 þús. kr., til þess að hann sé tilgreindur sérstaklega í töflu IV — nema
um sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um.
2. yfirlit sýnir verðmœti innflutningsvaranna bœði cifogfob eftir vörudeildum.
Ef skip og flugvélar er undanskilið nemur foþ-verðmæti innflutnings 1978 alls
161 722 217 þús. kr., en cif-verðið 178 621 904 þúr. kr. Fob-verðmæti inn-
flutnings 1978 að undanskildum skipum og flugvélum var þannig 90,5% af
cif-verðmætinu. — Ef litið er á einstaka flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs
og cif-verðs er mjög mismunandi, og enn meiri verða frávikin til beggja handa, ef
litið er á einstakar vörutegundir.
Til þess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs skiptist á
vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað 1% af cif-verði
flestra vara, nema á sekkjavöru í vörudeildum 04,06,08, og 56, þar er trygginga-
iðgjald reiknað 0,83% af cif-verði. Svo er einnig á kolum (32). Tryggingaiðgjald á
timbri í vörudeildum 24 og 63 er reiknað 0,94% af cif-verði, á salti (í 27.
vörudeild) 0,55%, og á olíum og bensíni (í 33. vörudeild) 0,55%. Á fólksbifreið-
um í 78. vörudeild er tryggingaiðgjald reiknað 2,50% af cif-verði, en 1,50% af
vörubifreiðum. — Að svo miklu leyti sem tryggingaiðgjald kann að vera of hátt
eða of lágt í 2. yfirliti, er flutningskostnaður o. fl. talið þar tilsvarandi of lágt eða of
hátt.
Innflutningsverðmœti 7 skipa, sem flutt voru inn 1978 (tollskrámr. 89.01.51 og
89.01.53), nam alls 5 111 078 þús. kr., og fer hér á eftir skrá yfir þau:
Rúmlestir Innflutn. verðm.
brúttó þús. kr.
Asbjörn RE-50 frá Noregi, skuttogari .................................... 442 920 036
Sigurey SI-71 frá Frakklandi, skuttogari ................................ 490 421 789
Grindvíkingur GK-606 frá Danmörku, fiskiskip ............. 577 1 015 823
Bjarai Ólafsson AK-70 frá Svíþjóð, fiskiskip ............................ 556 733 293
Ýmir HF-343 frá Bretlandi, skuttogari ................................... 469 228 927
Eldborg HF-13 frá Svíþjóð, fisldskip ..................... 1 314 1 785 152
Fiskibátur (óskráður) frá Bretlandi ...................................... 11 6 058
Samtals 3 859 5 111 078
í verði skipa eru talin öll tæki, sem talin eru hluti af þeim, svo og heimsiglingar-
kostnaður. Fyrir getur komið, að tæki, sem talin em í innflutningsverði, séu keypt
hér á landi og því tvítalin í innflutningi. — 4 fyrst talin skip em talin með
innflutningi júnímánaðar, en hin með innflutningi desembermánaðar.
Á árinu 1978 vom fluttar inn 20 flugvélar að verðmæti alls 190 242 þús. kr.
Með innflutningi júnímánaðar em taldar 2 svifflugur frá Danmörku að verðmæti
2 114 þús. kr., 1 flugvél frá Frakklandi að verðmæti 10 432 þús. kr. og 10