Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1979, Síða 35
Verslunarskýrslur 1978
33*
Innflutningur vamarliðseigna. Við lok heimsstyrjaldarinnar var sett á fót
nefnd, er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir setuliðanna tveggja, sem þau
fluttu ekki úr landi. Nefndin sá og um sölu slíkra eigna til innlendra aðila. Árið
1951 hófust sams konar kaup af bandaríska liðinu, sem kom til landsins sam-
kvæmt vamarsamningi íslands og Bandaríkjanna í maí 1951. Síðar hafa hér bæst
við kaup á bifreiðum o. fl. frá einstökum varnarliðsmönnum, svo og kaup frá
íslenskum aðalverktökum á tækjum o.fl., sem þeir hafa flutt inn tollfrjálst vegna
verka fyrir varnarliðið. Em hvor tveggja þessi kaup meðtalin í þeim tölum, sem
hér fara á eftir. — Vörur þær, sem hér um ræðir, fá ekki tollmeðferð eins og aðrar
innfluttar vömr, og er þar af leiðandi ógerlegt að telja þær með innflutningi í
verslunarskýrslum. Rétt þykir að gera hér nokkra grein fyrir þessum innflutningi,
og fer hér á eftir yfirlit um heildarupphæð þessara kaupa hvert áranna 1951—78
(þús kr.):
1951 204 1957 2 401 1963 6 335 1969 10 570 1975 51 263
1952 77 1958 5 113 1964 4 141 1970 19 319 1976 64 085
1953 664 1959 9 797 1965 4 283 1971 18 119 1977 98 439
1954 1 731 1960 16 825 1966 4 123 1972 19 342 1978 133 243
1955 2 045 1961 8 029 1967 5 345 1973 24 575
1956 2 439 1962 4 473 1968 9 158 1974 34 940
í kaupverðmætinu er innifalinn kostnaður við viðgerðir o. fl. til aukningar á
söluverðmæti o. fl. Sundurgreining kaupverðmætisins eftir vöruflokkum 1977 og
1978 fer hér á eftir (í þús kr.):
Fólksbílar (1977: 163, 1978: 196) ..........................
Vöru- og sendifcröabílar (1977: 30, 1978: 25) ..............
Aðrir bflar ................................................
Vörulyftur, dráttar- og tengivagnar ........................
Vinnuvélar .................................................
Aðrar vélar og tæki ........................................
Varahlutir í bíla og vélar, einnig hjólbarðar ..............
Skrifstofu- og búsáhöld, heimilistæki og húsgögn ...........
Fatnaður ...................................................
Matvæli, niðursoðin, sælgæti og gosdrykkir .................
Ýmsar vörur ................................................
Vörur keyptar innanlands vegna söluvarnings, svo og viðgerðir
Bankakostnaður .............................................
1977 1978
63 754 88 471
3 563 814
826 1 810
50 812
14 093 3 664
241 536
5 266 8 195
115 7 686
5 56
4 938 9 080
1 672 707
3 885 11 293
31 119
98 439 133 243
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 225—238) er sýndur útflutningur á hverri einstakri vörutegund
eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður vömskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vörutegunda í þessari töflu
samkvæmt sérstakri vömskrá Hagstofunnar fyrir útflutning. Um þetta vísast til
nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á bls. 225.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir vömdeildum
nýendurskoðaðrar vömskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu III á bls.
3