Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1979, Side 39
Verslunarskýrslur 1978
37*
f töflum III og V er útflutningurinn sundurgreindur á lönd, í fyrmefndu töflunni
nokkuð samandreginn, en í síðar nefndu töflunni eftir dýpstu sundurgreiningu
útfluttra vara.
í 8. yfirliti í inngangi er sýnt, hvemig verðmæti innfluttra og útfluttra vara hefur
skipst síðustu þrjú árin eftir löndum. Aftari dálkar yfirlitsins sýna þátt hvers lands
hlutfallslega í utanríkisverslun íslands samkvæmt verslunarskýrslum.
Það erframleiðsluland, ekki innkaupsland, sem tekið er í innflutningsskýrslur.
Oftast fer þetta saman. Á aðflutningsskýrslu skal tilgreina bæði framleiðsluland
og innkaupsland. Vanti hið fyrr nefnda, er innkaupslandið tekið sem fram-
leiðsluland, nema ástæða sé til að ætla, að varan sé ekki framleidd í inn-
kaupslandinu. Svo er oft um t. d. ávexti, og þungavöru, svo sem olíu, bensín, salt o.
fl. Er þá reynt að afla upplýsinga um framleiðsluland, ef ekki er þegar vitað um
það. Hins vegar kveður óhjákvæmilega eitthvað að því, að á skýrslu sé tekið
innkaupsland í stað framleiðslulands. — Á hliðstæðan hátt er það notkunarland
útfluttrar vöru, en ekki söluland, sem tekið er í útflutningsskýrslur. Eitthvað er um
það, að notkunarland vöm sé annað en landið, þar sem kaupandi er. Komi
notkunarland ekki fram á útflutningsskýrslu, er sölulandið tekið á skýrslu, nema
ástæða sé til að ætla, að endanlegt móttökuland sé annað en sölulandið. Er þá
reynt að bæta úr þessu. Fyrir kemur — eins og við er að búast — að á skýrslu sé
tekið söluland í stað notkunarlands, enda er útflytjanda sjálfum stundum ókunn-
ugt um notkunarland, og auk þess kemur hér sitt hvað annað til.
6. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External trade by places of customs clearance.
Töflu VII á bls. 240 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöm eftir
tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þessarar töflu em
að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er að bæta úr. T. d.
kveður talsvert að því, að farmar og einstakar vömsendingar séu tollafgreiddar—
og þar með taldar fluttar inn — í öðm tollumdæmi en þar, sem innflytjandi er
búsettur. Eins og vænta má, er það aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar em
vömr, sem fluttar em inn af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmynd um skiptingu
útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið á reiki, hvaðan
útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því, að sölusambönd, sem
hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning á sumum helstu útflutn-
ingsvömnum, þannig að útflutningsvömr utan af landi em afgreiddar í Reykjavík
og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem útflutningur frá viðkomandi afskipunar-
höfn.
Eiginn afli fiskiskipa, seldur af þeim sjálfum í erlendri höfn (aðallega ísuð síld
og annar ísvarinn fiskur) var áður fyrr í töflu VII allur talinn fluttur út frá
Reykjavík. Á þessu vom augljósir annmarkar, sem aukast með vaxandi ísfiskút-
flutningi, og því var þessu breytt frá og með Verslunarskýrslum 1970. Þessi
útflutningur er nú í sérstökum lið í töflu VII.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um útflutning í pósti
og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem sendir em að gjöf, hvort
heldur hingað til lands eða héðan frá einstaklingum, em ekki teknir með í
verslunarskýrslur.
3*