Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1979, Page 48
46*
Verslunarskýrslur 1978
í töflu VII kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvörugeymsluna í
Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráðherra til að reka almenna
tollvörugeymslu í Reykjavík (sbr. lög nr. 47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf
starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlutverk hennar er að skapa innflytjendum aðstöðu til
að fá, að vissu marki, einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir
hentugleikum. Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega fyrirferðarlitlar vörur,
og vörur með háum tolli, sem færðar eru í tollvörugeymslu. — Það skal tekið fram,
að Hagstofan telur allar vörur í vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru færðar í
tollvörugeymslu eftir komu þeirra til landsins í farmrými skips eða flugvélar, eða í
pósti, — en ekki þegar einstakir hlutar vörusendingar eru endanlega tollafgreiddir
og afhentir innflytjanda. — í júlí 1970 tók til starfa Almenna tollvörugeymslan
h.f. á Akureyri, og í júní 1976 hóf starfsemi Tollvörugeymsla Suðumesja h.f.,
Keflavík. Vörur, sem fara um þær, eru teknar í innflutningsskýrslur á sama hátt og
vömr, sem fara um tollvörugeymslu í Reykjavík.
7. Tollar og önnur gjöld á innflutningi.
Customs duties etc.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sem vom á innfluttum vömm á árinu
1978.
Frá ársbyrjun 1978 kom til framkvæmda hin fyrirfram ákveðna 10% lækkun
frá „upphaflegum" tolli á svo nefndum verndarvörum frá EFTA- og EBE-lönd-
um. Skal slík 10% lækkun á þeim eiga sér stað árlega, í síðasta sinn frá 1. janúar
1980, er þeir falla niður. Aðrar tollabreytingar 1978 voru ekki teljandi.
Innflutningsgjald á bensíni hækkaði frá 1. janúar 1978 úr kr. 23,28 í kr. 36,50 á
lítra og aftur frá 22. júlí 1978 í kr. 48,40 á lítra (sbr. reglugerðir nr. 1/1978 og
248/1978). Gjald á hjólbörðum og gúmmíslöngum hélst óbreytt á árinu 1978, kr.
45,00 á kg.
50% innflutningsgjaldið á bifreiðum og bifhjólum hélst óbreytt á árinu 1978,
en með reglugerð nr. 163 18. apríl 1978 var fellt niður innflutningsgjald af þeim
tegundum ökutækja, sem áður hafði verið innheimt af 25% gjald (dráttarbifreið-
um, almenningsbifreiðum, grindum og vörubifreiðum með burðarþol 6 tonn og
þar yfir).
Innflutningsgjald á gasolíu og brennsluolíu hélst óbreytt á árinu 1978, kr. 1,33 á
kg. Að öðru leyti vísast til greinargerða á þessum stað í inngangi Verslunar-
skýrslna fyrir hvert ár 1972—77.
Með lögum nr. 83 18. maí 1978 var ákveðið, að innheimta skyldi 3% jöfnunar-
gjald í ríkissjóð af tollverði (cif-verði) innfluttrar vöru, er tollar hefðu verið
lækkaðir af eða felldir niður vegna aðildar íslands að EFTA og vegna samnings
íslands við EBE. Tekjur af þessu gjaldi skyldi ráðstafað í fjárlögum ár hvert að
hluta til eflingar iðnþróun, þó skyldi tekjum af því 1978 ráðstafað af ríkis-
stjórninni. í reglugerð (nr. 233/1978) var kveðið á um, til hvaða tollskrárnúmera
gjald þetta skyldi taka, og voru þau 635 talsins. Jöfnunargjaldið kom til fram-
kvæmda 1. júlí 1978. Lög nr. 83/1978 gilda til 31. desember 1980.
Samkvæmt upplýsingum Ríkisbókhaldsins voru tekjur afinnfluttum vörum sem
hér segir, í millj. kr.: