Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1979, Side 296
Hagstofa Islands
gefur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru
birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verslunar-
skýrslur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur, Alþingis-
kosningar, Dómsmálaskýrslur o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914,
voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951 hafa komið út 70 rit. — Áskrifendum
Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau rit koma út, og þeir eru beðnir að
senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit send þeim í pósti.
2. Hagtíðindi, mánaðarrít. Par eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um
utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu og aðrar vísitölur, og
árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af
Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda er 1800 kr.
3. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það er á
ensku — enda ætiað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og með 1963,
þar áður var það mánaðarrit). Statistical Bulletin svipar til Hagtíðinda að því er varðar
birtingarefni, en er yfirgripsminna. Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en
innanlands er árlegt áskriftargjald þess 1000 kr.
4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að
geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1978 er 1300 bls., og verð
23.000 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að
hún seljist upp.
5. Fyrirtækjaskrá. í ritinu Skrár yfir fyrirtœki á íslandi 1969 var birtur frumstofn skrár
Hagstofunnar um fyrirtæki (þar eru með bændur, útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.)
að meðtöldum stofnunum og félagssamtökum. Viðaukar við þetta rit voru gefnir út
1972 og 1973. í júní 1976 kom út ný heildarskrá fyrirtækja, en hún var takmörkuð við
aðila, sem hafa sérstakt auðkennisnúmer, það er annað númer en nafnnúmer sam-
kvæmt þjóðskrá. Einstaklingar, sem reka starfsemi á eigin nafni, eru þannig ekki í því
riti. Ný slík skrá kom út í ágúst 1978 og er hún miðuð við júlí 1978. Átvinnufyrirtæki,
stofnanir og félagssamtök í þessu riti eru um 13500 að tölu. Verð þess er 1700 kr.
6. Skrár yflr dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána,
koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yfir dána eftirtalin ár kosta sem hér segir:
1965—67 (eitt hefti) 1000 kr., 1968—76 9 hefti hvert á 500 kr., 1977 700 kr.
7. Bifreiðaskýrsla kemur út árlega í fjölrituðu hefti. í því eru um 20 töflur með fjölþættum
upplýsingum um bifreiðaeign landsmanna. Hagstofan tók við þessu verkefni af Vega-
gerð ríkisins frá og með Bifreiðaskýrslu 1. janúar 1972. — Bifreiðaskýrsla 1. jan.
1972—77 kostar 700 kr. hver um sig, Bifreiðaskýrsla 1. jan. 1978 850 kr.
8. í ritinu Skrá um stofnanaheiti, sem kom út, fjölritað, á árinu 1972, er dönsk og ensk
þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Uppsláttaratriði í riti
þessu eru um 1500 að tölu. Ven julegar orðabækur eru haldlitlar í þessu efni, og er þessu
riti ætlað að bæta úr þeirri vöntun. Verðið er 700 kr.
Afgreiðsla ofangreindra ríta er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð),
101 Reykjavík. Sími 26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646. Rit eru send
gegn póstkröfu, sé þess óskað, þó ekki rít það, er um ræðir í Uð 4.