Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1985, Blaðsíða 21
Verslunarskýrslur 1984
17
einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri útflutningshöfn til
Islands, heldur er í sumum tilfellum líka um að ræða farmgjöld með járnbrautum
eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem vöru er síðast
útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl. Fer þetta
eftir því, við hvaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður
að því, að vörur séu seldar cif, komnar í íslenska innflutningshöfn. í slíkum
tilfellum er tilsvarandi fob-verð áætlað af tollyfirvöldum.
Frá og með Verslunarskýrslum 1984 þarf innflutningur frá landi að nema
minnst 50 þús. kr., til þess að hann sé tilgreindur sérstaklega í töflu IV — nema
um sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um.
2. yfirlit sýnir verðmœti innflutningsvaranna bæði cifogfob eftir vörudeildum.
Ef skip og flugvélar er undanskilið nemur fob-verðmæti innflutnings 1984 alls
23 332 662 þús. kr., en cif-verðið 26 181 748 þús. kr. Fob-verðmæti innflutnings
1984 að undanskildum skipum og flugvélum var þannig 89,1% af cif-verðmætinu
(1983: 87,9%, 1982: 88,1%). — Ef litið er á einstaka flokka, sést, að hlutfallið
milli fob-verðs og cif-verðs er mjög mismunandi, og enn meiri verða frávikin til
beggja handa, ef litið er á einstakar vörutegundir.
Til þess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs skiptist á
vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað 1% af cif-verði
flestra vara, nema á sekkjavöru í vörudeildum 04, 06, 08, og 56, þar er trygg-
ingaiðgjald reiknað 0,83% af cif-verði. Svo er einnig á kolum (32). Trygginga-
iðgjald á timbri í vörudeildum 24 og 63 er reiknað 0,70% af cif-verði, á salti (í 27.
vörudeild) 0,55%, og á olíum og bensíni (í 33. vörudeild) 0,55%. Á bifreiðum í
78. vörudeild er tryggingaiðgjald reiknað 2,50% af cif-verði. — Að svo miklu
leyti sem tryggingaiðgjald kann að vera of hátt eða of lágt í 2. yfirliti, er
flutningskostnaður o. fl. talið þar tilsvarandi of lágt eða of hátt.
Innflutningsverðmœti 7skipa, sem flutt voru inn 1984 (tollskrárnr. 89.01.40 og
89.01.52), nam alls 430 617 þús. kr., og fer hér á eftir skrá yfir þau:
Rúmlestir Innflutn. verðm.
brúttó þús. kr.
Fjallfoss frá V-Þýskalandi, farskip 1 000 46 428
Dísarfell frá V-Þýskalandi, farskip 1 600 78 448
Gideon VE-104 frá Póllandi, skuttogari 222 67 768
Halkion VE-105 frá Póllandi, skuttogari 222 70 212
Jökull SH-215 frá Póllandi, skuttogari 223 72 720
Hekla frá Noregi, farskip 492 41 400
Hofsá frá Kanada, farskip 999 26 641
Samtals 403 617
í verði skipa eru talin öll tæki, sem talin eru hluti af þeim, svo og
heimsiglingarkostnaður. Fyrir getur komið, að tæki, sem talin eru í innflutnings-
verði, séu keypt hér á landi og því tvítalin í innflutningi. — Fjögur fyrst töldu
skipin eru talin með innflutningi júnímánaðar, en hin með innflutningi
desembermánaðar.
Á árinu 1984 voru fluttar inn 14 flugvélar að verðmæti alls 194 944 þús. kr.
Með innflutningi júnímánaðar er talin 1 flugvél frá Noregi að verðmæti 521
þús. kr., 2 flugvélar frá Bretlandi að verðmæti 3 475 þús. kr., 1 sviffluga frá V-
Þýskalandi að verðmæti 125 þús. kr. og 2 flugvélar frá Bandaríkjunum að
verðmæti 8 833 þús. kr. Með innflutningi desembermánaðar eru taldar 2
flugvélar frá Danmörku að verðmæti 1 132 þús. kr., 3 flugvélar frá Frakklandi
að verðmæti 3 258 þús. kr., 2 DC-8 farþegaþotur frá Lúxemborg að verðmæti
174 816 þús. kr. og 1 flugvél frá Bandaríkjunum að verðmæti 2 784 þús. kr.
2