Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1994, Síða 30
28
Verslunarskýrslur 1993
5. Skipting innflutnings eftir tollhlutfalli
Break-down of imporls by percentage tariffs
í verslunarskýrslum undanfarinna ára hefur verið gerð grein
fyrir helstu gjöldum af útflutningi og innflutningi. Utflutn-
ingur frá Islandi er almennt toll- og gjaldfijáls og aðeins er
um að ræða álagningu fullvinnslugjalds af lagmeti. Á
innfluttar vörur eru hins vegar lögð margvísleg gjöld.
Nákvæm grein er gerð fyrirþeim í inngangi Tollahandbókar
ríkistollstjóra og vísast til hennar um nánari upplýsingar um
þetta efhi. Tollur er mikilvægasta gjaldið af innflutningi. I
17. yfirliti kemur fram hvemig innflutningur skiptist eftir
gjaldflokkum tolls árið 1993. Þar kemur fram að um 88% af
heildarinnflutningnum var tollfijáls. Innflutningur skipa og
flugvéla er að langmestu leyti tollfijáls og sé hann frátalinn
reynist um 87% annars innflutnings hafa verið tollfijáls árið
1993. Á 6% af heildarinnflutningnum lagðist 10% tollur,
3% hans bar 15% toll, á 2% innflutningsins lagðist 20-35%
tollur og á 1% hans lagðist 50% tollur.
17. yfirlit. Skipting innflutnings eftir tollhlutiollum og markaðssvæðum árið 1993
Table 17. Break-down of imports by percentage tariffs and market areas in 1993
Millj. kr. MillionlSK Ölllönd EFTA EB Önnur Evrópulönd Other European Bandaríkin Önnur lönd
All countries EFTA EC countries United States Other countries
0 80.054,9 21.164,9 41.411,3 3.540,3 5.544,7 8.393,6
4 4,8 - - 0,0 0,8 4,0
5 359,1 - - 5,8 237,9 115,5
10 5.108,9 138,8 861,1 124,1 1.302,5 2.682,5
15 2.295,9 111,0 401,6 92,2 221,9 1.469,3
20 592,7 30,5 225,6 0,0 287,2 49,4
25 1,8 1,2 0,5 0,0 0,1 0,0
30 2.028,4 130,2 1.151,8 27,1 233,1 486,3
35 111,6 0,4 99,7 0,0 10,8 0,6
50 748,4 26,6 40,5 0,0 671,7 9,5
Samtals Total 91.306,6 21.603,6 44.192,2 3.789,4 8.510,8 13.210,7
6. Viðskipti eftir markaðssvæðum og löndum
External trade by market areas and countries
í töflum II og III er utanríkisverslunin tilgreind eftir helstu
viðskiptalöndum og eftir þriggja stafa SITC-flokkun. I töflu
IV er útflutningur sýndur eftir helstu markaðslöndum og
þriggja stafa útflutningsflokkun Hagstofunnar. Töflur V og
VI sýna innflutning og útflutning eftirtollskrámúmerum og
einstökum löndum. TöflurVIIogVIII sýna hagræna flokkun
innflutnings og útflutnings svo og skiptingu eftir markaðs-
svæðum.
I inngangi eru sýnd þrenns konar yfirlit um utanríkis-
verslunina eftir markaðssvæðum og löndum. 18. yfirlit sýnir
útflutning og innflutning eftir markaðssvæðum og einstökum
löndum innan þeirra árin 1992 og 1993. 19. yfirlit sýnir
hlutdeild landa og gjaldmiðla í útflutningi og innflutningi
árið 1993. Þessi tafla byggist á því að á útflutnings- og
aðflutningsskýrslum kemur ffam í hvaða gjaldmiðli hver
sending útfluttrar og innfluttrar vöru er reiknuð. í mörgum
dæmum munar töluverðu á hlutdeild landa í vömskiptum og
hlutdeild gjaldmiðla sömu landa í viðskiptum með vörur.
Þetta kemur skýrt ff am hvað snertir Bandaríkin og bandaríkja-
dollar. Árið 1993 fór 15,9% vöruútflutningsins til Banda-
ríkjanna en 26,9% útflutningsins voru reiknuð í dollurum
samanborið við 18,2% 1992. Afinnflutningi komu 9,3% ffá
Bandaríkjunum árið 1993 en 25,6% innflutningsins voru
reiknuð í dollurum samanborið við 24,9% árið 1992.
Loks sýna 20. og 21. yfirlit innflutning og útflutning eftir
einstökum löndum.
I sambandi við alla landaskiptingu í verslunarskýrslum
skal tekið ffam að miðað er við neyslulönd hvað útflutning
snertir og ffamleiðslulönd fyrir innflutning. Þannig er leitast
við að greina endanlegan áfangastað útfluttrar vöru og
upprunaland innfluttrar vöru en ekki söluland eða viðskipta-
land. Fyrir kemur að útflytjanda sé ókunnugt um endanlegt
móttökuland vörunnar og verður þá að taka á skýrslu
viðskiptaland í stað notkunarlands.