Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1924, Page 9
Inngangur.
Introduction.
I. Búpeningur.
Le bétail.
Framteljendur búpenings hafa verið taldir í búnaðarskýrslum
svo sem hjer segir:
1918 ... . . 12 103
1919 ... .. 11 940
1920 ... . . 11 924
1921 ... 11691
1922 ... .. 12 078
Árið 1922 hefur tala framteljanda fjölgað nokkuð.
í fardögum 1922 var sauðfjenaður talinn samkvæmt búnaðar-
skýrslunum 571 þúsund. Reynslan undanfarið bendir til þess, að fjártalan
í búnaðarskýrslunum muni vera töluvert of lág. Þannig reyndist sauð-
fjenaður við fjárskoðunina veturinn 1906—07 um 109 þús. fleiri en fram
var talið í búnaðarskýrslunum vorið eftir (1907). En með því að ekki
virðist ástæða til að ætla, að framtalið muni vera mun betra eða lakara
eitt árið heldur en annað, mun líklega óhætt að byggja á búnaðar-
skýrslunum samanburð milli ára um tiltölulega fjölgun eða fækkun.
Vorið 1921 töldu búnaðarskýrslurnar sauðfjenaðinn 554 þúsund.
Hefur honum því fjölgað fardagaárið 1921—22 um 17 þúsund eða um
3.i o/o. Fjölgunin á þessu ári hefur þó ekki nærri vegið upp á móti
fækkuninni árið á undan, svo að tala sauðfjenaðarins hefur verið lægri
heldur en vorið 1920.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig sauðfjenaðurinn skiftist vorið 1922
samanborið við árið á undan.