Hagskýrslur um landbúnað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1924, Qupperneq 15

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1924, Qupperneq 15
Búnaðarskýrslur 1922 11 í öllum landshlutum nema Austurlandi hefur töðufengurinn orðið meiri árið 1922 heldur en meðaltal áranna 1917—21. Aftur á móti hefur útheyskapurinn í öllum landshlutum orðið miklu minni. Uppskera af jarðeplum varð með minna móti þetta ár, 22 þús. tunnur. Er það að vísu töluvert meira en uppskeran árið á undan, sem var að eins 16 þús. tunnur, en töluvert minna en meðaluppskera 5 næstu áranna á undan (1917—21), sem talin var 26 þús. tunnur. — Sama máli er að gegna um uppskeru af rófum og næpum. Hún var 9V2 þús. tunnur árið 1922, en 11 þús. tunnur að meðaltali árin 1917—21. Arið 1921 var hún þó að eins 6 V2 þús. tunnur. Mótekja hefur verið 377 þús. hestar haustið 1922. Er það miklu minna heldur en árið á undan, er hún var 428 þús. hestar, og heldur en meðaltal 5 áranna á undan, sem var 467 þús. hestar. — Hrísrif hefur verið 20 þús. hestar árið 1922. Er það töluvert minna en meðaltal áranna 1917—20 sem var 23 þús. hestar. Árið 1921 var það þó ekki' nema 19 þús. hestar. IV. Jarðabætur. Améliorations iniroduites aux fermes. Jarðabótaskýrslurnar eru teknar eftir skýrslum búnaðarfjelaganna, sem þau senda stjórnarráðinu, en það miðar úthlutunina á styrk þeim til búnaðarfjelaganna, sem veittur er í fjárlögunum, við jarðabætur þær, sem unnar hafa verið í hverju búnaðarfjelagi næsta almanaksár á undan út- hlutuninni. í þeim hreppum, sem búnaðarfjelög eru í, mun mega gera ráð fyrir, að langmestur hlutinn af þeim jarðabótum, sem unnar eru, sjeu gerðar innan búnaðarfjelagsins. En í sumum hreppum er ekkert bún- aðarfjelag og eins er svo að sjá sem búnaðarfjelög í sumum hreppum sendi eigi æfinlega skýrslu. En lítið mun kveða að jarðabótum í þeim hreppum, þar sem ekkert búnaðarfjelag er til. Og þar sem búnaðarfjelag er til, en ber sig ekki eftir jarðabótastyrknum með því að senda skýrslu, mun líka óhætt að gera ráð fyrir, að mjög litlar jarðabætur muni vera gerðar, eg ef þær eru nokkrar, munu þær sennilega teknar til greina, þegar fjelagið sendir næst skýrslu. Vfirlitsskýrslan eftir sýslum um jarðabætur búnaðarfjelaganna (tafla VI, bls. 19—23) hefur verið gerð jafn nákvæm og sundurliðuð eins og skýrslurnar frá búnaðarfjelögunum eru, en skýrslurnar um jarðabætur ein- stakra fjelaga (tafla VII, bls. 24—33) hafa verið dregnar nokkuð saman, svo að þær eru ekki eins mikið sundurliðaðar. Síðustu árin hefur tala búnaðarfjelaga, sem styrk hafa fengið,

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.