Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1924, Page 16
12
BúnaÖarskýrsIur 1922
tala jarðabótamanna í þeim og tala dagsverka unnin af þeim
við jarðabætur, verið sem hjer segir:
Jarðabótamenn Dagsverk
Fjelög alls á fjelag alls á mann
1918 ............. 105 1 669 15.9 68 000 41
1919 ............. 100 1 518 15.2 78 000 51
1920 .............. 97 1 464 15.1 82 000 56
1921 ............. 111 1 779 16.0 102 000 57
1922 ............ 111 1 924 17.3 102000 53
Jarðabætur hafa verið álíka miklar og jafnmörg fjelög starfandi
árið 1922 eins og næsta ár á undan, en jarðabótamenn heldur fleiri, svo
að minni dagsverkatala kemur á hvern. Jarðabótastyrkurinn úr ríkissjóði
árið 1922 nam alls 20 þús. kr. og kom því á hvert dagsverk 19 V2 au.
Túnasljettur hafa samkv. búnaðarskýrslunum verið gerðar síð-
ustu árin svo sem hjer segir (talið í hektörum):
1918 ..................... 161.7 ha
1919 .................... 146.4 —
1920 .................... 126.1 —
1921 .................... 159.5 —
1822 ....................... 175.0 —
Túnasljettur hafa verið meiri árið 1922 heldur en undanfarin ár.
Túnútgræðsla hefur verið síðustu árin svo sem hjer segir:
Óbylt Plægð 1918 27.3 ha , 31.4 — 1919 27.2 ha 33.3 — 1920 38.4 ha 35.3 — 1921 12.2 ha 56.6 — 1922 14.3 ha 8O.1 —
Samtals . . 58.7 ha 60.5 ha 73.7 ha 68.8 ha 94.4 ha
Túnútgræðsla hefur verið töluvert'meiri árið 1922 heldur en næstu
ár á undan. Hafa plægingar verið með langmesta móti en lítið gert að
útfærslu túna í óbyltu landi.
Aukning á kálgörðum og öðrum sáðreitum hefur verið þessi
samkvæmt jarðabótaskýrslum búnaðarfjelaganna:
1918 ................. 16.5 ha
1919 ................... 7.5 —
1920 ................... 7.5 —
1921 ................... 7.4 —
1922 ................... 7.9 —
Samkvæmt þessu hefur viðbótin af nýjum sáðreitum árið 1922 verið
lík eins og 3 næstu árin á undan. En tölurnar munu hvergi nærri sýna alla
þá aukningu, sem orðið hefur á kálgörðum á landinu síðustu árin, því að
þetta er einmitt sú jarðabót, sem minst er bundin við búnaðarfjelögin. Og